Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni
Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur.
Hann gerir þér einnig kleift að leggja áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð myndavélar sem sýnir nálægð
við gangstéttarbrún. EyeSight er staðalbúnaður í öllum Subaru Forester.
www.subaru.is
Komdu til okkar og reynsluaktu nýjum Subaru Forester
Subaru Forester
Gerður til að kanna
ætlaður til að ferðast
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
6
1
4
9
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dómsmálaráðuneytið hefur undan-
farið keypt þjónustu hjá Attentus –
mannauði og ráðgjöf vegna stjórn-
endaþjálfunar, ráðninga og ráðgjafar
í starfsmannamálum.
Verkefnin voru aðskilin og þótti
umfang þeirra ekki gefa tilefni til að
leita tilboða.
Þetta kemur fram í svari dóms-
málaráðuneytisins við fyrirspurn
Morgunblaðsins.
Tilefnið er umfjöllun blaðsins um
viðskipti ríkisstofnana við Attentus.
Þau námu alls 44,4 milljónum króna á
tímabilinu frá september 2018 til og
með 31. október 2019. Þar af keypti
dómsmálaráðuneytið þjónustu fyrir
2,8 milljónir á tímabilinu.
Þá fékkst það svar frá félagsmála-
ráðuneytinu að velferðarráðuneytið
hefði keypt þjónustu af Attentus
vegna ráðgjafarþjónustu ásamt láni á
mannauðsstjóra.
Alls á þriðju milljón króna
Spurt var um þrjá reikninga, alls
að fjárhæð 2,15 milljónir króna, sem
samkvæmt vefsíðunni opnirreikning-
ar.is voru stílaðir á velferðarráðu-
neytið. Velferðarráðuneytinu var
skipt í tvö ráðuneyti um síðustu ára-
mót. Einn reikninganna, að fjárhæð
596 þúsund, var gefinn út eftir það.
Það svar fékkst frá félagsmálaráðu-
neytinu að ekki hefði verið leitað til-
boða vegna þessara viðskipta.
Dómstólasýslan keypti þjónustu
hjá Attentus fyrir rúmar þrjár millj-
ónir króna á tímabilinu. Það svar
fékkst frá Dómstólasýslunni að til-
efnið var aðstoð við stefnumótunar-
vinnu, ráðningar starfsfólks og
stjórnendaþjálfun. Ekki var talið til-
efni til að leita tilboða í verkefnin
„þar sem umfang gaf ekki tilefni til“.
Morgunblaðið hefur einnig sent
fyrirspurn til forsætisráðuneytisins
sem ekki hefur verið svarað.
Hins vegar bárust svör frá Um-
hverfisstofnun, lögreglunni á Suður-
nesjum og Héraðsdómi Reykjavíkur
vegna viðskipta við Attentus. Í öllum
tilvikum var ekki leitað tilboða vegna
þjónustunnar.
Þá leitaði umhverfisráðuneytið
heldur ekki tilboða en viðskiptin við
Attentus voru samkvæmt þjónustu-
samningi. Ráðuneytið var stærsti
viðskiptavinur Attentus hjá hinu
opinbera á tímabilinu, keypti þjón-
ustu fyrir alls 16,3 milljónir króna.
Hjá Héraðsdómi Reykjavíkur
(HDR) fengust þær upplýsingar að
rammasamningur um rekstrarráð-
gjöf hefði tekið gildi 14. nóvember
2018. Þegar viðskipti HDR við Att-
entus hófust í október 2018 hafi því
enginn rammasamningur verið í
gildi. Þá hafi hluti þeirrar þjónustu
sem keypt var hjá Attentus verið
markþjálfun; fræðslu- og þjálfunar-
þjónusta sem ekki sé útboðsskyld.
Viðskipti ríkisstofnana við Atten-
tus voru til umræðu í tengslum við
viðskipti félagsins við Vinnueftirlitið.
Vegna óánægju starfsmanna var
mannauðsstjóri Attentus látinn
hætta störfum fyrir eftirlitið.
Ber að leita tilboða
Fram kom í Morgunblaðinu 7. nóv-
ember að samningar ríkisstofnana
um kaup á þjónustu frá fyrirtækinu
Attentus – mannauði og ráðgjöf hafa
verið utan rammasamninga við Rík-
iskaup. Halldór Ó. Sigurðsson, for-
stjóri Ríkiskaupa, sagði aðspurður að
þegar ríkisstofnanir keyptu þjónustu
utan rammasamnings væri þeim
skylt að leita tilboða frá minnst
þremur aðilum, svo að um eðlilega
samkeppni væri að ræða í samræmi
við lög um opinber innkaup.
Tekjur Attentus jukust úr 166
milljónum 2017 í 215 millj. árið 2018.
Leituðu ekki tilboða í
viðskiptum við Attentus
Dómsmálaráðuneytið og velferðarráðuneytið fá ráðgjöf við ráðningar og þjálfun
Morgunblaðið/Eggert
Ráðgjöf Attentus selur þjónustu til
fjölda ríkisstofnana og ráðuneyta.
Morgunblaðið/Golli
Velferðarráðuneytið Attentus seldi ráðuneytinu ráðgjöf og þjónustu.
Ellefu aðildarfélög BHM héldu sam-
eiginlegan baráttufund í gær. Á fund-
inum var samþykkt ályktun þar sem
fullum stuðningi er lýst við kröfur
samninganefnda félaganna í yf-
irstandandi kjaraviðræðum við ríkið.
Eru viðsemjendur hvattir til að
virða áunnin réttindi félagsmanna og
þess krafist að í yfirstandandi kjara-
viðræðum verði „raunveruleg skref
tekin til styttingar vinnuvikunnar, án
þess að kjör og réttindi verði skert“.
Á fundinum fóru forsvarsmenn fé-
laganna yfir stöðuna í viðræðunum
við ríkið og kynntu helstu sjónarmið
og áherslur. Kjarasamningar félag-
anna við ríki og sveitarfélög hafa nú
verið lausir í tæplega átta mánuði eða
frá 1. apríl og hafa viðræður, enn sem
komið er, skilað litlum árangri.
Seinagangur í viðræðunum var enn
fremur harmaður og kjararýrnun
hafnað. Þá voru viðsemjendur hvattir
til að virða áunnin réttindi fé-
lagsmanna.
Samningafundi í kjaradeilu Blaða-
mannafélags Íslands og Samtaka at-
vinnulífsins lauk á níunda tímanum í
gærkvöld. Nýr fundur hefur verið
boðaður klukkan 13.30 í dag.
Fundur Félagsmenn 11 aðild-
arfélaga fjölmenntu á fundinn.
Harma
seinagang
Áfram fundað
hjá BÍ og SA