Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019 Árni Þ. Þorgrímsson lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja þann 18. nóvember sl., 88 ára að aldri. Árni var fæddur í Keflavík þann 6. ágúst 1931, sonur Þorgríms St. Eyjólfssonar fram- kvæmdastjóra og Ei- ríku Guðrúnar Árna- dóttur húsfreyju. Árni gekk í barna- skóla í Keflavík og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1952. Hann lagði stund á nám við Háskóla Íslands og stundaði ýmis störf með- fram því. Hann lauk námi sem flug- umferðarstjóri og starfaði sem slíkur til 1994 þegar hann fór á eftirlaun, að undanskildum nokkrum árum er hann starfaði með föður sínum að rekstri Hraðfrystihússins Jökuls í Keflavík. Árni starfaði ötullega að fé- lagsmálum; hann hóf ungur afskipti af íþróttum og sat í stjórnum og ráð- um UMFK og Íþróttabandalags Keflavíkur um árabil og í stjórn KSÍ frá 1974 til 1984, m.a. sem varaformaður stjórnar. Hann var sæmdur gullmerki ÍSÍ árið 1981 og gullmerki KSÍ árið 1984. Þá sat Árni í stjórn Félags ís- lenskra flugumferð- arstjóra um 12 ára skeið, þar af sem for- maður í 4 ár. Hann var einn af stofnendum al- þjóðlegra samtaka flugumferðarstjóra. Hann starfaði í Odd- fellow-reglunni í meira en fjóra áratugi og var félagi í Lionshreyfingunni. Hann var virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, var varabæjarfulltrúi eitt kjörtímabil. Eiginkona Árna var Hólmfríður Guðmundsdóttir, aðalbókari hjá Sparisjóðnum í Keflavík, f. 22. júní 1928, d. 6. febrúar 2003. Börn þeirra eru fjögur – Helga, Eiríka, Þor- grímur og Ragnheiður Elín. Barna- börnin eru 9 og barnabarnabörnin 4. Sambýliskona hans síðustu ár er Em- ilía Ósk Guðjónsdóttir, fv. hjúkr- unarfræðingur. Andlát Árni Þ. Þorgrímsson sp ör eh f. Austurlenskur blær, hefðir, minjar og ólýsanleg náttúrufegurð hrífa okkur í glæsilegri ferð til Dubrovnik og Porec í Króatíu við Adríahafið. Farið verður til Svartfjallalands þar sem við siglum yfir til gömlu borgarinnar Kotor. Við munum eiga góða daga í yndislega listamannabænum Rovinj í Króatíu og endum að lokum góða ferð í tónlistarborginni Salzburg. Verð: 288.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir Vor 4 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík 7. - 19. apríl Páskadraumur í Dubrovnik Enn sér ekki til lands í kjaraviðræð- um mikils meirihluta aðildarfélaga Bandalags háskólamanna við samn- inganefnd ríkisins. Einnig er ólokið samningum við Reykjavíkurborg og samninga- nefnd Sambands íslenskra sveitar- félaga. „Þetta gengur bara hægt og illa. Það er því miður þannig,“ segir Þórunn Svein- bjarnardóttir, for- maður BHM, í samtali við Morgunblaðið. Hún segir einnig að fram komi í samtölum henn- ar við forsvarsmenn í BSRB og Hjúkrunarfræðingafélagi íslands að þeir hafi sömu sögu að segja. Fjögur BHM-félög hafa nú undir- ritað og samþykkt nýja kjarasamn- inga. Eitt félag felldi gerðan samning og eiga alls 17 aðildarfélög BHM því enn ósamið við viðsemjendur sína hjá ríki og sveitarfélögunum. Ellefu að- ildarfélög eru í samstarfi í kjaravið- ræðunum. Húsfyllir var í gærmorgun á sameiginlegum baráttufundi félag- anna ellefu sem hafa haft samstarf í viðræðunum. Þar var farið yfir stöð- una og forsvarsmenn félaganna kynntu helstu sjónarmið og áherslur í kjaraviðræðunum. Var samþykkt ályktun þar sem fullum stuðningi er lýst við kröfur samninganefnda félag- anna í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið og harmar fundurinn þann seinagang sem er í viðræðunum. Voru viðsemjendur hvattir til að virða áunnin réttindi félagsmanna og þess krafist að í yfirstandandi kjaravið- ræðum yrðu raunveruleg skref tekin til styttingar vinnuvikunnar, án þess að kjör og réttindi yrðu skert. Lausir í tæpa 8 mánuði Minnt er á í fréttatilkynningu BHM að kjarasamningar félaganna við ríki og sveitarfélög hafi nú verið lausir í tæplega átta mánuði, eða frá 1. apríl síðastliðnum, og hafi viðræður enn sem komið er litlum árangri skil- að. ,,Krafist er 500 þúsund króna lág- markslauna fyrir háskólamenntaða. Óhóflegt álag á starfsfólk innan al- mannaþjónustu á vegum hins opin- bera er viðvarandi og þekkt að slíkt er heilsuspillandi. Fundurinn krefst þess að viðsemjendur taki raunveru- leg skref til styttingar vinnuvikunnar án þess að skerða kjör og réttindi,“ segir í ályktun fundarins. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Baráttufundur Fjölmargir lögðu leið sína á fund sem 11 BHM-félög boðuðu til í gærmorgun vegna hægagangsins sem verið hefur í kjaraviðræðunum. „Gengur bara hægt og illa“  Ellefu BHM-félög héldu baráttufund Þórunn Sveinbjarnardóttir ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Ríkisútvarpið ohf. hefur ekki stofnað dótturfélög um annan rekstur en fjölmiðlaþjónustu í al- mannaþágu þrátt fyrir lagalega skyldu þar um,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem birtar eru niðurstöður úttektar á Ríkisút- varpinu ohf. þar sem fjallað er um þörf á aðgreiningu almannaþjón- ustu og samkeppnisreksturs í bók- haldi félagsins. ,,Ríkisendurskoðandi bendir á að ekki sé valkvætt að fara að lögum. Það er skylda RÚV ohf. að fara eftir þeim. Sé það aftur á móti vilji stjórnvalda að félagið raungeri ekki ákvæðið ber þeim að stuðla að því að það verði fellt brott úr lög- um. Á meðan svo er ekki ber RÚV ohf. að uppfylla lagalegar skyldur sínar,“ segir í niðurstöðum skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem ítrek- að er sagt að Ríkisútvarpinu beri að uppfylla lagalegar skyldur um stofnun dótturfélags fyrir aðra starfsemi en fjölmiðlun í almanna- þágu. Fara verði að lögum. Skýrslan var kynnt og rædd á fundi stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis í gær og birt op- inberlega í kjölfarið. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sendi frá sér tilkynningu eftir að skýrslan var birt í gær og sagði mikilvægt að eyða allri óvissu um bókhald Ríkisútvarpsins og fjárhagslegan aðskilnað almannaþjónustu og samkeppnisrekstrar. „Ríkisendur- skoðun tekur af öll tvímæli um nauðsyn þess að stofna dótturfélag fyrir samkeppnisrekstur og ég mun beina þeim tilmælum til stjórnar, að þeirri vinnu verði hraðað. Aðrar tillögur til úrbóta eru gagnlegar, ýmist ráðuneytinu, stjórn félagsins eða Alþingi sjálfu og við tökum þær alvarlega. Það er t.d. mjög brýnt að rekstur félags- ins sé sjálfbær og stjórn sinni sínu eftirlitshlutverki,“ segir hún. Ríkisendurskoðun fer ítarlega yfir stöðu Ríkisútvarpsins, rekstur þess, stjórnskipulag og eftirlit og segir stjórnarfyrirkomulagið óvenjulegt. Efla þurfi fjárhagslegt eftirlit með starfsemi Ríkisútvarps- ins og leggur Ríkisendurskoðun til að fjármála- og efnahagsráðuneyti fari með hlut ríkisins í félaginu í stað mennta- og menningarmála- ráðuneytis. Tvennt skeri sig frá því sem kalla megi almennt fyrirkomu- lag í opinberum hlutafélögum í eigu ríkisins. Mennta- og menning- armálaráðherra fari með eignar- hlut ríkisins í stað fjármálaráð- herra sem að jafnaði fari með slíkt hlutverk og hins vegar falli það ekki í hlut fjármálaráðuneytisins að skipa stjórn félagsins eins og gert er ráð fyrir í lögum um op- inber fjármál. ,,[…] félagið er ekki undir fjárhagslegu eftirliti af hálfu fjármála- og efnahagsráðuneytis líkt og önnur opinber hlutfélög í eigu ríkisins en almennt telur rík- isendurskoðandi að efla þurfi slíkt eftirlit með félaginu,“ segir í skýrslunni. Greint er frá því að komið hafi fram á fundi Ríkisendurskoðunar með fulltrúum mennta- og menn- ingarmálaráðuneytisins að ráðu- neytið hafi ekki eftirlit með fjárhag Ríkisútvarpsins „enda kæmi slíkt í hlut stjórnar félagsins,“ segir í um- fjölluninni. Segir Ríkisendurskoðun ljóst að stjórnvöld hafi minni að- komu að fjárhagslegu eftirliti og aðhaldi með rekstri Ríkisútvarps- ins ohf. en í tilviki annarra op- inberra hlutafélaga. Mikilvægt sé að fyrirsvar allra eigna og réttinda í eigu ríkisins sé á forræði fjár- mála- og efnahagsráðherra. „Við vinnslu þessarar úttektar hefur komið í ljós, m.a. við lestur fund- argerða stjórnar félagsins, að rekstrar- og fjárhagsleg málefni Ríkisútvarpsins ohf. fá misítarlega umfjöllun á milli tímabila.“ Þá kemst Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu að til að auka gagnsæi um aðskilnað fjölmiðla í almanna- þjónustu og samkeppnisrekstrar og tryggja fjárhagslegan aðskilnað þurfi Ríkisútvarpið að verðmeta auglýsingarými milli dagskrárliða og tekju- og gjaldfæra með viðeig- andi hætti. Ógjaldfært án lóðasölunnar Í samantekt um rekstur RÚV kemur fram að rekstrarafkoman á tímabilinu 2013-18 var jákvæð um 1,5 milljarða kr. Sú afkoma skýrist fyrst og fremst af hagnaði vegna sölu byggingaréttar á lóð félagsins við Efstaleiti. „Ef litið er á afkomu félagsins fyrir tekjuskatt og sölu- hagnað hefði heildarafkoma félags- ins á þessu tímabili verið neikvæð um 61 [milljón kr.]. Án lóðasöl- unnar hefði RÚV ohf. orðið ógjald- fært,“ segir í frétt Ríkisendurskoð- unar um niðurstöður úttektarinnar. Ber að fara að lögum  Ríkisendurskoðun segir að RÚV beri að uppfylla lagalegar skyldur um stofnun dótturfélaga  Efla þarf eftirlit með RÚV Áætlað sjóðstreymi RÚV ohf. 2007–2016 Milljónir kr. 400 200 0 -200 -400 -600 -800 -1.000 -1.200 Lækkun á handbæru fé Handbært fé í árslok 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 Heimild: Ríkisendurskoðun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.