Morgunblaðið - 21.11.2019, Page 43

Morgunblaðið - 21.11.2019, Page 43
UMRÆÐAN 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ER08 hægindastóll Leður – verð 285.000,- Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Demantar í úrvali fyrir ástina þína Biskup okkar hefur haldið því fram að orð- ið hafi siðrof meðal þjóðarinnar vegna of lítils lesturs á biblíu- sögum í skólum. Þetta tel ég mjög ólíklegt. Ég tel líklegra að ein- hvern tíma á tíma- bilinu milli 1984 og 1996 hafi kristna trúin á Íslandi sofnað og í lok þess tímabils hafi nýr átrúnaður verið tekinn við. Birtingarmynd þess átrúnaðar er hið svokallaða Afla- markskerfi sem er áætlunarbúskap- ur vísinda og fjármagns byggður á spartverskri fyrirmynd. Fram til þess tíma höfðu Íslend- ingar stundað frjálsar fiskveiðar af nokkru harðfylgi og tekist að draga þjóðina upp úr moldarkofunum á tæpri öld og lagt grunninn að nú- tímasamfélagi. Prestar báðu fyrir góðum afla og farsælli útgerð og mörg sjávarþorp blómstruðu af dugnaði og lífskrafti. En í lok þess tímabils sem ég nefndi var hinn nýi átrúnaður tekinn við og prestar þjóð- kirkjunnar hættir að biðja um góðan afla enda hafa þeir flestir eflaust tal- ið að slíkt málefni tilheyrði sviði Hafró. En Hafrannsóknastofnun hefur ekki tekið við því hlutverki að útvega fisk eða tryggja viðgang lífríkis og veiða í hafinu. Hennar hlutverk í hin- um nýja sið hefur verið að tryggja hátt verð aflamarks fyrir fjármagns- öflin og risana í útgerðinni og það gerir hún með því að tryggja skort á veiðiheimildum miðað við ástand líf- ríkisins. Margir sem kalla sig fiski- fræðinga og hafa til þess akademískt umboð vinna á Hafró og eru hinir bestu menn en síðasta aldarfjórð- unginn eða svo hefur aðeins einn fiskifræðingur á Íslandi staðið undir nafni og hann vinnur ekki á Hafró að því er ég best veit. Sá heitir Jón Kristjánsson og hefur verið ofsóttur af hinum nýju trúarbrögðum um langan tíma fyrir skoðanir sínar. Hafrannsóknastofnun hefur verið látin virka eins og nokkurskonar seðlabanki hafsins og ætti því frekar heima sem deild í Seðlabankanum ef húsrúm leyfir. Þegar og ef vinir mínir á Hafrann- sóknastofnun hætta að úthluta frelsi til fiskveiða í kílóum og tonnum fjöl- margra tegunda og einbeita sér að rannsóknum og þekkingaröflun verður staða þeirra mun trúverðugri. Við Íslendingar eigum margar hetjur í fortíð og nútíð og sjálfsagt er ég ekki einn um að dást að Agli Skallagrímssyni og Gunnari á Hlíð- arenda. Eins og allir vita voru þessir menn fjöldamorðingjar en það dreg- ur ekki úr aðdáun minni heldur vorkenni ég þeim líka vegna þess að ég veit að þeir voru mótaðir af samtíð sinni, hefðum og átrúnaði. Ég geri mér einnig grein fyrir að ef þeir hefðu ekki drepið fjölda manna hefðum við lík- lega ekki vitað af tilveru þeirra. Á Íslandi síðustu ald- ar voru hinar sönnu hetjur fiskverkafólk og sjómenn og einnig mætti finna ein- hverja stjórnmálamenn, vísinda- menn og framkvæmdamenn sem verðskulduðu titilinn hetja vegna rösklegrar framgöngu. Ég hef fylgst með sjávarútvegi frá blautu barnsbeini og jafnframt stundum reynt að hafa af honum framfærslu með misjöfnum árangri. Í dag eru stærstu hetjur okkar í sjáv- arútvegi að mínu mati Þorsteinn Már Baldvinsson og Guðmundur Krist- jánsson sem lifðu báðir af hrunið og hafa verið iðnir við að safna að sér fyrirtækjum og kaupa aflamark. Þegar ég heyri nafnið Þorsteinn Már Samherji hefur það svipuð áhrif á mig og að heyra nafnið Gunnar á Hlíðarenda og þegar ég heyri nafnið Guðmundur Kristjánsson í Brimi hefur það svipuð áhrif á mig og að heyra Egill Skallagrímsson á Borg. Þeir eru allir hetjur í mínum huga hvort sem verk þeirra standast skoð- un eður ei. En ég vorkenni þeim jafn- framt öllum mjög mikið því ég veit að þeir eru mótaðir af samtíð sinni og siðum og háðir metnaði sínum og átrúnaði. Eitt stórmenni mannkynssög- unnar lét hafa eftir sér að trúin væri ópíum fólksins. Íslendingar glíma nú við áhrif eiturlyfsins Aflamark sem hefur þau áhrif að eyða samviskunni og gera atlögu að sálinni. Getið þið séð fyrir ykkur hvernig staða Samherja og Brims væri ef stjórnendur þeirra hefðu verið með samviskubit yfir fólki og þorpum sem á vegi þeirra urðu? Ef svo hefði verið væru nöfn flaggskipa íslenskr- ar útgerðar önnur í dag. Lifið heil. Um siðrof Eftir Sveinbjörn Jónsson Sveinbjörn Jónsson » Íslendingar glíma nú við áhrif eiturlyfsins Aflamark sem hefur þau áhrif að eyða samvisk- unni og gera atlögu að sálinni. Höfundur er sjómaður og ellilífeyrisþegi. svennij@simnet.is málum í RÚV og sagði aðspurð að mannfjölgun í heiminum væri lítið vandamál vegna þess að ekki væri mannfjölgun á Vesturlöndum þar sem mengun á mann væri mest. Spyrjandinn virtist ánægður með svarið. Hún virtist ekki gera ráð fyr- ir því að þeir sem flytjast til Vest- urlanda nái sama neyslustigi og við sem þar búum, hvað þá að neysla á mann aukist á þeim svæðum sem fólksfjölgunin er. Getur verið að hún telji þetta fólk frumstæðara en okk- ur þannig að það geti aldrei náð að nýta tæknina til að rísa úr örbirgð? Þetta er í stíl við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna þar sem hvergi er minnst á að hafa þurfi hemil á fjölskyldustærð og mannfjölgun. Mikil gróðureyðing og bruni skóga af mannavöldum er á þeim svæðum þar sem offjölgun er. Talið er að hvort tveggja hafi áhrif og umfang þess verið gróflega vanmetið í lofts- lagslíkönum. Fréttir voru sagðar af því að börn í Hagaskóla væru að safna fé fyrir Landvernd, sjálfsagt fyrir hvatn- ingu kennara sinna. Landvernd beit- ir sér mikið gegn virkjun endurnýj- anlegrar orku. Ekki kom fram hvort söfnunarféð yrði notað til að sækja ráðstefnur erlendis eða til meiri fals- áróðurs til að koma inn kvíða hjá börnunum okkar og sektarkennd hjá okkur sem eigum þá að láta meira fé af hendi rakna til Landverndar og sætta okkur við auknar skattaálög- ur. » Óskilvirkur sósíal- ismi hefur náð að éta upp alla framleiðniaukn- ingu. Höfundur er náttúrufræðingur. thgunn@gmail.com Matthías Johannessen hélt per- sónulegar dagbækur í áratugi. Þær eru stórkostlegar heimildir, ekki síst um þá tíma er þeir Styrmir sátu við stjórnvölinn á Mogganum. Dagbækur Matthíasar eru öllum aðgengilegar. Samt virðast þær liggja í láginni og má teljast undarlegt. Úr dagbók Matthíasar 1. nóv- ember 1996: Annars heyri ég æ meiri gagn- rýni á Sjálfstæðisflokkinn fyrir það að sitja hjá meðan auður og völd safnast á fárra manna hend- ur, bæði í landi og á miðunum. Held þetta skaði flokkinn verulega og eigi eftir að skaða hann meir þegar fram í sækir. Er farinn að heyra gagnrýni á þessa hlutlausu afstöðu flokksins. Eða er hún hlutlaus? Er þessi þróun ekki þóknunarleg foryst- unni? Ég þekki engan meiri sjálfstæð- ismann en Óla Blöndal frænda minn í Siglufirði. Hitti hann um daginn. Hann fór strax að gagn- rýna Sjálfstæðisflokkinn fyrir að leyfa slíka tilfærslu á peningum og völdum. Þetta er ekki gamli Sjálf- stæðisflokkurinn, sagði hann. Auðunn vestfirski. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Var Matthías Johannessen spámaður? Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.