Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
100% Merino ull
Flott og þægileg
ullarnærföt
við allar aðstæður
Frábært verð
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins
Eyjólfssonar • Heimkaup • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri Lífland,
Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Verslun Grétars Þórarinns-
sonar, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi
Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði
Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum
Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
Þau eru fjölbreytt viðfangsefnin í
morgunþætti K100, Ísland vaknar.
Í vikunni kom meðal annars kona
í heimsókn sem stendur fyrir
hraðstefnumótum með tantrísku
ívafi, krassandi það. Eins lærðu
hlustendur þáttarins að gera
blöðrudýr og að koma lífinu í jafn-
vægi.
Hægt er að hlusta og horfa á
allar upptökur úr þáttunum á
heimasíðu K100, á k100.is.
Hraðstefnumót Helga Snjólfsdóttir sagði frá hraðstefnumótum með
tantrísku ívafi sem hún stendur fyrir þessa dagana.
Blaðrarinn Daníel Hauksson stendur þessa dagana fyrir námskeiðum þar
sem hann kennir bæði fullorðnum og börnum að búa til blöðrudýr.
Hamingjuhornið Anna Lóa í Hamingjuhorninu er fastagestur í Ísland vakn-
ar. Í vikunni ræddi hún mikilvægi þess að eiga líf í jafnvægi.
Tantrað og
blaðrað á
morgnana
Söngfugl Heiða Ólafs-
dóttir ræddi um líf söng-
konunnar í jólamán-
uðinum og leyfði
hlustendum að heyra
lag af plötunni hennar
sem kom út á árinu.
Bakaranemi Elinora
Rós fór yfir það helsta
sem þarf að hafa í huga í
jólabakstrinum og
reiddi fram þessar fínu
bollakökur.