Morgunblaðið - 21.11.2019, Síða 53

Morgunblaðið - 21.11.2019, Síða 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019 20-40% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM LEÐURSTÍGVÉLUM 21.-24. NÓVEMBER VERÐ FRÁ 19,996 KR. „ÞÚ ÆTTIR AÐ NEITA ÁSÖKUNUNUM UM KYNFERÐISLEGA ÁREITNI. ÞAÐ AÐ KOMA TIL DYRANNA EINS OG ÞÚ ERT KLÆDDUR VÆRU MISTÖK.” „ÉG SAGÐI SPORHUND!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að rækta garðinn sinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG GÆTI EKKI BORÐAÐ BITA MEIR ÞETTA HEF ÉG ALDREI SAGT ÁÐUR GRIMMÚLFUR GRIMMI, KANNSKI ERTU SVONA TUDDI ÞVÍ ÞÉR LÍKAR EKKI HVER ÞÚ ERT! GOTT AÐ ÉG GAT ORÐIÐ AÐ LIÐI! HVERNIG GET ÉG HJÁLPAÐ ÞÉR AÐ LÍÐA VEL Í EIGIN SKINNI? MÉR LÍÐUR VEL NÚNA Kristín Sigurðardóttir, f. 1934, fv. skrifstofumaður, Sigurður Sigurðs- son, f. 1935, d. 1973, hæstaréttar- lögmaður, Sigríður Sigurðardóttir, f. 1937, fv. skrifstofumaður, Geir Sig- urðsson, f. 1939, flugvélstjóri og flug- virki, Ragna Sigurðardóttir Guðjohn- sen, f. 1941, fv. skrifstofumaður, Pétur Sigurðsson, f. 1943, fv. for- stjóri, Auður Sigurðardóttir, f. 1945, bókasafnsfræðingur. Foreldrar Arndísar voru hjónin Ragna Pétursdóttir, f. 14.8. 1904 á Þúfum, d. 21.11. 1955, húsfreyja, og Sigurður Kristjánsson, f. 14.4. 1885 á Ófeigsstöðum, d. 27.5. 1968, kennari, ritstjóri, alþingismaður og forstjóri Samábyrgðar íslenskra fiskiskipa. Úr frændgarði Arndísar Sigurðardóttur Genualdo Arndís Sigurðardóttir Genualdo Jóhanna Jósúadóttir vinnukona á Ströndum Kristján Eggertsson Fjeldsted fór til Vesturheims og var trésmiður í Selkirk í Manitoba, Kanada Þórey Kristjánsdóttir húsfreyja á Stóru-Hvalsá í Hrútafi rði Ragna Pétursdóttir húsfreyja í Reykjavík Pétur Pálsson bóndi í Hafnardal við Ísafjarðardjúp Arndís Pétursdóttir Eggerz húsfreyja í Vatnsfi rði Páll Ólafsson prófastur í Vatnsfi rði og alþingismaður Páll Pálsson bóndi og hreppstj. í Þúfum í Vatnsfi rði Ásthildur Pálsdóttir verkakona í Rvík Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður Jakobína Pálsdóttir húsfr. í Rvík, fórst með mb. ÞormóðiHjálmar Ágústsson verkstj. á Bíldudal Jakob Ágúst Hjálmarsson fv. Dómkirkjuprestur Hrafnhildur Schram listfræðingur Unnur Ágústsdóttir Schram frkvstj. í Rvík Guðrún Pálsdóttir húsfreyja á Bíldudal Þórður Þorbjarnarson forstj. Rannsóknastofnunar fi skiðnaðarins Þórður Þ. Þorbjarnarson borgarverkfræðingur Kristín Þorbjarnardóttir húsfreyja í Rvík Sigurður Guðmundsson fv. landlæknir Björn Þorbjarnarson skurðlæknir og prófessor í New York Kristín Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur Andri Snær Magnason rithöfundur Kristján Árnason bóndi á Ófeigsstöðum í Köldukinn Sesselja Árnadóttir húsfreyja á Hóli, Steinnesi og Fossi Árni Kristjánsson bóndi á Hóli í Köldukinn, Steinnesi í Þingi og Fossi í Vesturhópi Sigurður Kristjánsson kennari, ritstjóri, alþingismaður og forstjóri Samábyrgðar íslenskra fi skiskipa Guðný Guðlaugsdóttir húsfreyja á Ófeigsstöðum Ásmundur Jónsson bóndi á Ófeigsstöðum Kristín Ásmundsdóttir húsfreyja á Ófeigsstöðum Helga Kristjánsdóttir skólastjóri á Akureyri Áslaug Thorlacius húsfreyja í Rvík Örnólfur Thorlacius rektor MH Jónas Kristjánsson forstöðumaður Árnastofnunar Rósa Guðlaugsdóttir húsfreyja á Fremstafelli Guðlaugur Ásmundsson bóndi á Fremstafelli í Köldukinn Sigurlín Hermannsdóttir sagði áBoðnarmiði á föstudag: „Það verður seint logið upp á snillingana í samgöngumálum borgarinnar“: Í fréttum þetta’ er held ég helst hérna í Reykjavíkurborg: Hringtorg ekki hringtorg telst þó hringi vegur sig um torg. Viðar Konráðsson bætti við: Borgarstjórn er býsna slyng, og brestur aldrei þekking. Þótt hverfist götur þar í hring, hringtorgið er blekking! Páll Eyþór Jóhannsson birti á Boðnarmiði mynd af umræddu hringtorgi á Melunum vestan við Hótel Sögu, sagði gáfumann á ferð og lét þessa stöku fylgja: Víst er mikið þjóðar þing að þekkja svona vegi, þó að gata hringist hring hringtorg er samt eigi. Guðmundur Arnfinnsson kveður „Seinheppni“: Rafn mætti ríðandi séra, rauk til og vildi nú þéra, hann þéraði hestinn og þúaði prestinn, en það er að skandalísera. Philip Vogler sagði á mánudag að 10 stiga frost væri á Héraði kl. 6.30, valhent: Sting í myrkri í stúf er hleyp um stíga einn. Stjörnur horfa himni frá og hálkublettum glitra á. Magnús Geir Guðmundsson svar- aði að bragði: Philip um í frosthörkunni flýgur. Háll þó reynist hlaupastígur, hálf- er fjarri lagi vígur. Og bætti síðan við, að „þetta smaug rétt sem snöggvast inn í kollinn og út úr honum aftur við til- hugsunina um kappann á hlaupum þarna eystra ...“. Jón Atli Játvarðarson bregst við kuldanum: Frostið bítur föla kinn fer ég inn á kaffibarinn. Stoppa þar í þetta sinn þrjár mínútur, borga, farinn. Sigurður Pétursson orti: Úr skálmöld frægri skraföld er og skriföld orðin, skötnum bíta skvaldurs sverðin, skeinusöm er þeirra ferðin. Helgi Sveinsson orti: Svífur már á flugi frár. Fley um bárur þýtur. Þar sem gárast glæstur sjár gull í skárum flýtur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hringtorg eða hringtorg ekki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.