Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 14. - 25. NÓVEMBER SIRIUS LIVA 80 ljós. Hjarta. Ø64 cm. 6.995 kr.Nú 5.596 kr. Bordstofudögum- t 20-40% AF ÖLLUM BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM & BORÐBÚNAÐI 20% AF JÓLAVÖRUM LÝKUR ÁMÁNUDAG NÝR LITUR: RAWMATARSTELL.Metallic brown. Matardiskur. Ø28 cm. 2.395 kr.Nú 1.916 kr. Hliðardiskur. Ø23 cm. 1.995 kr.Nú 1.596 kr. Hliðardiskur. Ø20 cm. 1.795 kr.Nú 1.436 kr. Súpuskál. Ø19,4 cm. 1.995 kr.Nú 1.596 kr. Skál. Ø13,5 cm. 1.795 kr.Nú 1.436 kr. Kanna með handfangi 30cl. 1.495 kr.Nú 1.196 kr. Bolli 30cl. 1.395 kr.Nú 1.116 kr. Verkið „The speaking silence“ eftir Matthew Brown verður flutt á há- degistónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, kl. 12, í tónleika- röðinni Á ljúfum nótum. Flytjendur eru Margrét Hrafnsdóttir sópran og gítarleikararnir Svanur Vilbergs- son, Þröstur Þorbjörnsson, Þór- arinn Sigurbergsson og Arnþór Guðjónsson. Tónverk fyrir sópran og gítara í Fríkirkjunni FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 325. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Grasvallatæknifræðingurinn Bjarni Þór Hannesson segir ekkert mál að spila fótboltaleiki á Íslandi í mars en til þess þurfi almennilegan grasvöll. Ísland á leik við Rúmeníu eða Ungverjaland í umspili EM karla í fótbolta í mars og óttast margir að Laugardalsvöllur verði ekki leik- fær og flytja þurfi leikinn til Danmerkur. »55 Víða spilað á grasi í snjókomu og frosti ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Víkingur varð Íslandsmeistari í fót- bolta 1991, tryggði sér titilinn með 3:1 sigri á Víði í síðustu umferð eftir að hafa verið 1:0 undir í hálfleik í Garðinum. „Það var ánægjulegt að sjá boltann í netinu,“ sagði Helgi Bjarnason þá við Morg- unblaðið um fyrsta mark gest- anna. „Jöfn- unarmarkið var byrjunin á skrefinu að bikarnum og það gaf okkur þann aukakraft sem þurfti til að ná því markmiði.“ Nú um 28 árum síðar er Helgi for- stjóri VÍS og á meðal starfsmanna fyrirtækisins eru margir sem hafa náð langt í íþróttum og fagnað glæstum sigrum í ýmsum greinum eins og fótbolta, vaxtarrækt, hand- bolta, dansi, körfubolta og hjól- reiðum. „Ég hef ekki orðið svo frægur að hampa bikar í dansi en eftirminni- legasti sigurinn er þessi í Garðinum, sem tryggði okkur Víkingum Ís- landsmeistaratitilinn 1991,“ rifjar hann upp. „Ég hélt að mín yrði minnst fyrir að hafa skorað þetta fyrsta mark en enginn man eftir því heldur bara fyrirgjöfinni frá Bjössa Bjartmarz, sem kom inn á sem vara- maður í byrjun seinni hálfleiks og skoraði svo hin tvö mörkin.“ Öflugur hópur Hátt í 30 starfsmenn VÍS hafa unnið til titla í íþróttum auk þess sem margir aðrir lifa á fornri frægð. Fyrir utan þá sem eru á myndunum má nefna handboltamennina Þráin Ásmundsson og Elvar Guðmunds- son, körfuboltamanninn Guðna Ólaf Guðnason og fótboltakempur eins og Arnar Má Björgvinsson, Davíð Sæv- arsson, Reyni Leósson, Alex Frey Hilmarsson, Gunnar Ormslev, Val- geir M. Baldursson, Þorvald Þor- steinsson, Ingva Hrafn Ingvason, Davíð Sævarsson, Gunnar Hilmar Kristinsson, Óttar Stein Magnússon og Snæbjörtu Pálsdóttur. Helgi segir að afreksfólk í íþrótt- um sé ekki vísvitandi ráðið til starfa hjá fyrirtækinu. „Margt afreksfólk hefur ráðist til starfa hjá okkur og það endurspeglast svo í miklum keppnisanda og stemningu í fyrir- tækinu,“ segir hann. Fjölbreytileikinn í hópi starfs- manna er mikilvægastur, að mati Helga. „Rétt eins og í íþróttum þarf mismunandi fólk í mismunandi stöð- ur og góð og rétt blanda nær bestum árangri. Þú þarft bæði fólk í vörn og sókn til að vinna leiki.“ Helgi segir að hver íþróttatitill starfsmanns eða starfsmanna liti daginn og umræðuna. „Hver hefur sína skoðun og ekki eru allir KR- ingar, þó að þeir hafi orðið meist- arar, en allir hafa gaman af því að tala um árangurinn og fylgjast með. Fyrir vikið verða umræður oft fjör- ugar og skemmtilegar í kaffinu.“ Þegar titill kemur í hús reyna starfsmenn VÍS að gera sér daga- mun, að sögn Helga. „Við sam- fögnum með okkar fólki,“ segir hann og vísar meðal annars til þess að fólk hafi komið saman í höfuðstöðvunum fyrir bikarúrslitaleik Víkings og FH í fótboltanum í haust. „Við reynum að fagna á góðan og hóflegan máta, því alltaf er gaman að taka þátt í sigrum, stórum og smáum.“ Morgunblaðið/Eggert Íþróttakappar hjá VÍS Efri röð frá vinstri: Rúnar Örn Ágústsson hjólreiðakappi, Halldór Smári Sigurðsson knatt- spyrnumaður, Guðmundur Birkir Ægisson handboltamaður, Björn Steffensen körfuboltamaður, Guðmundur Ped- ersen handboltamaður og Kristján Finnbogason knattspyrnumaður. Fremri röð frá vinstri: Árni Henrý Gunnarsson dansari, Þórir Sigfússon knattspyrnumaður, Bjarni Guðjónsson knattspyrnumaður, Helgi Rúnar Jónsson knatt- spyrnumaður, Gísli Örn Reynisson Schram vaxtarræktarmaður og Gunnar Örn Jónsson knattspyrnumaður. Mörk gleymast ekki  Margir starfsmenn VÍS hafa náð langt í íþróttum Helgi Bjarnason Í kvöld kl. 20 verður boðið upp á dagskrána „Kvöldstund með Mous- taki“ í menningarhúsinu Hannesar- holti. Gérard Lemarquis mun segja frá Georges Moustaki, einu ástsæl- asta söngvaskáldi Frakka (1934- 2013), og kynna nokkur kunnustu laga hans sem hljómsveitin Les Métèques túlkar. Sveitina skipa þau Anna Von Heynitz á fiðlu, Ásta Ingibjarts- dóttir sem syngur, Eyj- ólfur Már Sigurðs- son sem syngur og leikur á gít- ar og Olivier Moschetta bassaleik- ari. Georges Moustaki kynntur í tali og tónum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.