Fréttablaðið - 29.02.2020, Side 108

Fréttablaðið - 29.02.2020, Side 108
Lífið í vikunni 23.02.20- 29.02.20 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is LICATA hornsófi Hornsófi úr mjög sterku koníaksbrúnu eða steingráu bonded leðri. Hægra eða vinstra horn. Fætur úr svörtu járni. Stærð: 262 x 226 x 82 cm. Fullt verð: 249.990 kr. Aðeins 199.992 kr. 20% AFSLÁTTUR VIKUTILBOÐ BARCELONA svefnsófi Aðeins 159.920 kr. Sérlega vandaður og veglegur ítalskur svefnsófi. Bak er dregið fram á einfaldan hátt til að opna fjaðrandi stálgrind. Þar liggur heil (laus) 194×140×13 cm svampdýna sem fylgir. Svefnsófi sem fer vel með gestina. Fæst blágrænn og ljós- eða dökkgrár. Fullt verð: 199.900 kr. www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN Vikutilboð 27. feb. til 4. mars Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorg) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI 20% AFSLÁTTUR VIKUTILBOÐ ÁTTU VON Á GESTUM? Fjölbreytt úrval svefnsófa Síðrokksveitin Explosions in the sky heldur þrenna tónleika á Íslandi á jafn mörgum dögum í sumar. Enginn í sveitinni hefur áður komið til landsins og Mark Smith gítarleikari segir mik- inn spenning fyrir Íslandsförinni. „Við höfum oft sagt umboðsmanni okkar Ben Dickey að okkur langi mikið að spila á Íslandi. Ég held að hann hafi haft það bak við eyrað og reynt sitt besta til að koma því í kring. Það gekk svo loksins upp,“ segir Mark. Gamall draumur rætist „Ef við hefðum verið spurðir hvar í heiminum okkur myndi langa mest til að spila hefðum við hiklaust svar- að á Íslandi. Þar á eftir myndum við segja í Afríku, ef einhverjir tónleika- haldarar þar eru að lesa þetta,“ segir hann og heldur svo áfram: „Okkur bauðst að spila hérna einu sinni áður en það gekk ekki upp. Hljóm- sveitin er orðin 20 ára og allt lítur út fyrir að tónleikarnir á Íslandi verði þeir síðustu í afmælistúrnum. Það er ótrúlega gleðilegt að þeir verði á þessum stað sem okkur hefur alltaf langað að heimsækja.“ Hljómsveitar- meðlimirnir og föruneyti þeirra eru þegar orðin mjög spennt fyrir ferð- inni, þótt ekki sé enn ákveðið hvað þau ætli að gera og sjá. „Við erum opnir fyrir uppástung- um en langar á jökul og í Bláa lónið. Okkur langar mikið að sjá norður- ljósin, en mér skilst að það sé ólík- legt að þau sjáist á þessum árstíma. Fjölskylda og vinir verða með í för þannig að við erum mjög spenntir fyrir Íslandförinni.“ Hann segist hafa heyrt frá vinum og vandamönnum sem hingað hafa komið, að lands- lagið hérna sé einstakt. „Margir hafa lýst því þannig að maður gæti allt eins verið staddur á annarri plánetu og nánast allir segja þetta vera sína uppáhaldsferð. Harpa virðist líka vera alveg frá- bær tónleikastaður, þannig að við hlökkum vægast sagt mikið til,“ segir Mark. Áhrifin alls staðar Þegar Mark er spurður hvort upp- runi og umhverfi tónlistarfólks hafi mikil áhrif á listsköpun þess, segist hann ekki útiloka það en hann telji sjóndeildarhringinn yfirleitt mun víðari. Honum finnist til dæmis tónlist þeirra félaga fyrst og fremst lituð af persónuleika þeirra og tón- listinni sem þeir hlustuðu sjálfir á í æsku. „Það er samt ekki hægt að neita því að umhverfið hefur áhrif á tón- listarsköpunina. Þrír af okkur eru frá Vestur-Texas og ég man skýrt eftir því að eitt af okkar fyrstu lögum snerist um landslagið, umhverfið og sólsetrið þar. Síðar fluttum við til Austin og vorum svo heppnir að vera í návígi við bönd á borð við American Analog Set og ...And You Will Know Us By the Trail of the Dead. Við hljómum svo sem ekkert eins og þau bönd, en tónlist þeirra og vinátta við meðlimina veitti okkur innblástur. Það hefur margt breyst síðan þá og nú lifir fólk að miklu leyti á internetinu. Fólk fær því oft innblástur frá einhverju sem er ekki endilega í nánasta umhverfi þess. En ég held að það sé eitthvað til í því að umhverfið hafi mikil áhrif á listina, án þess að maður átti sig sjálfur á því. Menningin í kringum þig, fólkið sem þú hittir, mann- mergð borganna og landslagið,“ segir Mark. Miða á tónleika sveitarinnar er hægt að nálgast á tix.is. steingerdur@frettabladid.is Texasrokkarar elta norðurljósadrauminn Hljómsveitin Explosions in the sky stefnir á langþráða tónleika- ferð til Íslands í sumar. Mark Smith gítarleikari segir frá gömlum draumi og veikum vonum sveitarinnar um norðurljósasýningu. Enginn meðlima sveitarinnar hefur áður komið til landsins og segir Mark þá alla hlakka mikið til. MYND/GETTY HEIMSMET Á ÍSLANDI Egill Kaktuz Þorkelsson Wild og Michael Reid stefna á að setja tvö heimsmet á Íslandi. Egill er sirkus- listamaður en þjáist af vöðvarýrn- unarsjúkdómi sem varð til þess að hann lifir nú lífinu til fulls. EINLÆGNIN ER NÓG Alda Karen setti allt á annan endann með möntrunni „þú ert nóg“. Hún verst persónu- legum árásum með einlægn- inni og snéri aftur spennt, ásamt fjórum valkyrjum, með nýjan fyrirlestur sem fram fór í gær. NÝTT LAG MEÐ DIRB Á fimmtudaginn kom út lagið Blow Out, en það er fyrsta sólólag tón- listarmannsins Ingva Rafns Björg- vinssonar. Hann kemur fram undir nafninu dirb. Lagið gerði hann með tónlistarkonunni MSEA. SYNGJA GÖMUL ÞJÓÐLÖG Þjóðlög eru nemum Menntaskóla í tónlist hugleikin þessa dagana. Á morgun fara fram tónleikar þar sem nemendurnir flytja þjóðlög ásamt kennurum sínum, Ragnheiði Gröndal og Ásgeiri Ásgeirs. ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ EITTHVAÐ TIL Í ÞVÍ AÐ UMHVERFIÐ HAFI MIKIL ÁHRIF Á LISTINA, ÁN ÞESS AÐ MAÐUR ÁTTI SIG SJÁLFUR Á ÞVÍ. 2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R60 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.