Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 45
Ómótstæðilegt umhverfi og frábær börn -
Við leitum að leikskólastjóra og leikskólakennara
við Reykhólaskóla í Reykhólahreppi
Staða leikskólakennara í 100% starfshlutfalli, best er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá
leikskóla og skólastefnu sveitarfélagsins. Nánar um starfssvið leikskólakennara má lesa hér.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun, leyfisbréf og hæfni til kennslu í leikskóla
• Góð íslenskukunnátta
• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
• Reglusemi og samviskusemi
• Hefur hreint sakarvottorð
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf
og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið.
Upplýsingar um starfið veitir Anna Björg Ingadóttir skólastjóri í síma 434-7731 eða í gegnum
netfangið skolastjori@reykholar.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2020.
Umsóknum skal skilað til skólastjóra á netfangið skolastjori@reykholar.is
Staða leikskólastjóra í 100% starfshlutfalli, frá og með 1. júní 2020
eða eftir samkomulagi.
Starfssvið: Leikskólastjóri starfar samkvæmt gildandi lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er
við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Reykhólahrepps. Nánar um starfssvið leikskólastjóra má
lesa hér.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun, leyfisbréf og hæfni til kennslu í leikskóla
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er kostur
• Góð íslenskukunnátta
• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
• Reglusemi og samviskusemi
• Hefur hreint sakarvottorð
Leikskólastjóri á leikskóladeildinni Hólabæ starfar í nánu samstarfi við skólastjóra grunnskólastigs.
Þeir mynda skólastjórn Reykhólaskóla/Hólabæjar sem er ein og sama stofnunin. Þeim ber því að vinna
saman að öllum þeim verkefnum og málum þar sem samstarf þeirra getur leitt til faglegra og árangurs-
ríkara skólastarfs þar sem hagsmunir nemenda/barna eru ávallt hafðir í fyrirrúmi.
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf
og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið.
Upplýsingar um starfið veitir Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, í síma 430-3200 eða í
gegnum netfangið sveitarstjori@reykholar.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2020.
Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra Reykhólahrepps á netfangið sveitarstjori@reykholar.is
Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu
á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu.
Starfsfólk sveitarfélagsins aðstoðar við að finna húsnæði og í boði er flutningsstyrkur.
Reykhólahreppur auglýsir stöður
leikskólastjóra og leikskólakennara
við Reykhólaskóla lausa til umsóknar.
Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistar-
skóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 60
nemendur á leik- og grunnskólastigi.
Á Reykhólum er hægt að lifa af launum sínum!
Flutningsstyrkur og liprar leiðir í húsnæðismálum.
Sviðsstjóri sviðs friðlýsinga
og starfsleyfa
Capacent — leiðir til árangurs
Umhverfisstofnun fer
með framkvæmd laga um
loftslagsmál, náttúruvernd,
mengunarvarnir og
efnamál, hefur umsjón með
veiðistjórnun villtra fugla og
spendýra og verkefnum sem
miða að því að efla samfélagið
í grænum lausnum. Stofnunin
starfar á níu stöðum á landinu.
Nánari upplýsingar má finna á
www.ust.is
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/23681
Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistarapróf á háskólastigi eða sambærileg gráða sem
nýtist í starfi.
Reynsla af stjórnunarstörfum.
Leiðtogahæfileikar og góð færni í samskiptum.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
Þekking og/eða reynsla af málaflokkum sviðsins.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Umsóknarfrestur
16. mars
Starfssvið:
Daglegur rekstur og stjórnun.
Áætlanagerð og eftirfylgni.
Þróun, stefnumótun og markmiðasetning.
Mannauðsmál sviðsins.
Samskipti við Alþingi, ráðuneyti, stofnanir og
hagsmunaaðila f.h. Umhverfisstofnunar.
Umhverfisstofnun leitar að leiðtoga fyrir svið friðlýsinga og starfsleyfa. Stofnunin gegnir mikilvægu hlutverki í náttúruvernd
og mengunarvörnum og er sviðsstjóri stefnumótandi við framkvæmd friðlýsinga og útgáfu starfsleyfa.
Leitað er að hvetjandi einstaklingi sem er tilbúinn að leiða hóp sérfræðinga með jákvæðni og metnað að leiðarljósi.
Sviðsstjóri er fyrirmynd í öllum sínum störfum og samskiptum og ber ábyrgð á jákvæðum skilaboðum innan stofnunar og
út á við og fagnar áfangasigrum.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0