Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 10
Viltu vinna með utanríkisráðuneytinu á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar? Ráðuneytið vill fjölga samstarfsaðilum á þessu sviði, sérstaklega með skírskotun til áherslu á mannréttindi og samstarf við atvinnulíf. Ráðuneytið ætlar að verja 211 milljónum króna til verkefna á sviði þróunarsam- vinnu og mannúðarmála í gegnum félaga- samtök. Til mannúðarverkefna verður varið 121 milljón króna og til verkefna á sviði þróunarsamvinnu 90 milljónum króna. Opið er fyrir umsóknir til mannúðarverk- efna allt árið, með fyrirvara um að fjár- heimildir kunni að vera fullnýttar áður en árið er liðið, en umsóknafrestur um styrki til þróunarsamvinnu verkefna er nú til 31. mars 2020. Athygli er vakin á því að þessi auglýsing er breytt frá fyrri birtingu í janúar og umsóknarfrestur framlengdur. Nánari upplýsingar á vef Stjórnarráðsins: utn.is/heimsljos Þróunarsamvinna og mannúðaraðstoð: Styrkir til félagasamtaka DÓMSMÁL Hlutafjáreign dómara við Hæstarétt varð ekki umkvört- unarefni þeirra sem leitað höfðu til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna meðferðar svokallaðra hrun- mála fyrr en eftir að fjölmiðlar hófu að fjalla um fjárfestingar dómara á grundvelli gagna um Glitni sem lekið hafði verið til þeirra. Af málsgögnum á vef MDE má sjá að á mánuðunum eftir uppljóstr- anir fjölmiðla sendu fjölmargir kærendur, sem þegar höfðu kvartað til MDE, viðbótarkvartanir sem lutu að meintu vanhæfi dómara við Hæstarétt vegna fjárhagstaps sem þeir höfðu orðið fyrir við fall bankanna. Fréttir fjölmiðla, fyrst um launa- kjör dómara í upphafi árs 2016 og svo fjárfestingar þeirra og hlutafjár- eignir í lok ársins, vöktu hörð við- brögð innan dómarastéttarinnar og í febrúar 2016 upplýsti formaður Dómarafélagsins, Skúli Magnús- son, að félagið hefði beint kvörtun, bæði til fjölmiðlanefndar og siða- nef ndar Blaðamannafélagsins vegna umfjöllunar Fréttablaðsins um launakjör dómara. Úrskurðað var Fréttablaðinu í vil í báðum til- vikum, enda hefðu fréttir blaðsins um launakjör dómaranna verið réttar, þótt þær hefðu mátt vera nákvæmari. Þrátt fyrir niðurstöðu fjölmiðla- nefndar og siðanefndar Blaða- mannafélagsins gerði Skúli framan- greinda umfjöllun fjölmiðla aftur að aðalumfjöllunarefni í setningar- ræðu sinni á aðalfundi Dómara- félagsins í nóvember 2017. Óttast frávísun í Hæstarétti og aukna réttaróvissu um endurupptöku mála Eftir að fjölmiðlar greindu frá hlutafjáreign dómara í föllnu bönkunum sagði þáverandi formaður Dómarafélagsins þeim stríð á hendur. Hann er einn fimm dómara sem fjalla munu um hlutafjáreign dómara og meint vanhæfi vegna hennar í Hæstarétti 11. mars næstkomandi. Lögmenn reyna nú að lesa í aðgerðir Hæstaréttar. Óttast frávísun og viðvarandi réttaróvissu um endurupptöku mála. Skúli Magnússon ræddi umfjöllun Fréttablaðsins um hlutafjáreign dómara við setningu aðalfundar Dómarafélagsins árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK „Þaulskipulögð aðgerð“ Í ræðunni rakti Skúli umfjöllun Fréttablaðsins um málið. Upphaf- lega hefðu fréttirnar varðað ófull- nægjandi tilkynningar dómaranna um hlutaf járeign sína, en svo hefði kvæðinu verið vent í kross með fréttum um að hlutaðeigandi dómarar hefðu þá verið vanhæfir í málum þess banka sem þeir áttu þessi hlutabréf í, en samt sem áður tekið þátt í afgreiðslu þessara mála. „Almenningur átti að fá það á tilfinninguna að eitthvað meiri- háttar væri að hjá dómstólunum,“ sagði Skúli í ræðu sinni. Hann lauk svo þessum þætti ræðunnar á því að saka blaðamenn Fréttablaðsins um skipulagða aðför að dómsvaldinu. „Öll þessi uppákoma byggði á illa fengnum gögnum frá Glitni banka. Því gat það ekki farið á milli mála hvaða tilgangi afhending gagnanna til blaðamanna átti að þjóna. Og allt ber að sama brunni. Um var að ræða þaulskipulagða aðgerð til að koma höggi á íslenska dómstóla, hugsan- lega að reyna að knýja tiltekna dóm- ara til að segja af sér embætti.“ Frá fjölmiðlum til MDE Þegar þessi orð Skúla féllu á aðal- fundi Dómarafélagsins í nóvember 2017 höfðu minnst sjö dómþolar í svokölluðum hrunmálum sem þegar höfðu kært mál sín til Mann- réttindadómstóls Evrópu (MDE) sent dómstólnum viðbótarkærur vegna meints vanhæfis þeirra dóm- ara sem dæmdu mál þeirra í Hæsta- rétti, þrátt fyrir að hafa tapað fjár- hagslega á falli bankanna vegna hlutafjáreignar sinnar. Ein þeirra er Sigríður Elín Sig- fúsdóttir, fyrrverandi forstjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans, en áfellisdómur féll gegn ríkinu í máli hennar síðastliðinn þriðjudag á grundvelli hlutafjáreignar og taps dómarans Viðars Más Matthías- sonar við fall Landsbankans. Það var niðurstaða MDE að brotið hefði verið gegn rétti Elínar til að njóta réttlátrar málsmeðferðar fyrir óvil- höllum dómstóli. Elín og Sigurjón Árnason, fyrr- verandi bankastjóri Landsbankans, voru bæði sakfelld fyrir markaðs- misnotkun árið 2016 en áður en dómur í máli Elínar féll í Strassborg í síðustu viku hafði endurupptöku- nefnd þegar fallist á beiðnir þeirra um endurupptöku dóma Hæstarétt- ar með vísan til þess að draga mætti hæfi dómarans Viðars Más í efa. Skömmu eftir áramót voru málin því sett á dagskrá Hæstaréttar að nýju. Annað málið var á dagskrá 4. mars og hitt þann 11. mars næst- komandi en um tvö aðskilin mál er að ræða; annars vegar svokallað Ímon-mál, en í því voru bæði Elín og Sigurjón sakfelld fyrir markaðsmis- notkun, og hins vegar síðari hluta markaðsmisnotkunarmáls Lands- bankans, en Elín var ekki ákærð í þeim hluta. Önnur frávísun líkleg Ákæruvaldið krefst frávísunar málsins frá Hæstarétti. Í lok síð- ustu viku var dagskrá Hæstaréttar breytt og málin bæði sett á dag- skrá 11. mars næstkomandi. Hefur rétturinn ákveðið að fjalla fyrst ein- göngu um frávísunarkröfu ákæru- valdsins í málunum báðum sam- eiginlega. Lögmönnum sem Fréttablaðið hefur rætt við, ber saman um að aðskilnaður málflutnings um form- og efnishlið máls í Hæstarétti gefi sterkar vísbendingar um að vísa eigi málinu frá. Það hafi ekki gerst í 100 ára sögu Hæstaréttar að fjallað sé sérstaklega um formhliðina og kröfu um frávísun hafnað í kjöl- farið. Hafi rétturinn ákveðið að taka mál til efnisumfjöllunar á annað borð sé málið allt f lutt í heild sinni í einum málflutningi bæði um form og efni og dómur í kjölfarið felldur um málið, þar sem fjallað er bæði um formhlið og efnislega niður- stöðu. Ekki er þó útilokað með vísan til nýs fordæmisgefandi hlutverks Hæstaréttar að dómurinn vilji með þessari aðgreiningu umfjöllunar um formhlið málsins fjalla ítarlega um rétt borgaranna til endurupp- töku mála í kjölfar áfellisdóma frá MDE, enda sannarlega um réttar- óvissu að ræða, þrátt fyrir nýlegan dóm í áþekku máli. Réttaróvissa Töluvert uppnám varð meðal íslenskra lögmanna þegar endur- upptökumáli Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar og Tryggva Jónssonar var vísað frá Hæstarétti en þeir höfðu þá unnið mál sitt gegn ríkinu í Strassborg og fengið úrskurð endur- upptökunefndar um endurupptöku dóms Hæstaréttar. Frávísunin hefur valdið réttar- óvissu um hvort réttur íslenskra borgara til að fá hlut sinn réttan hér heima eftir að hafa unnið mál gegn ríkinu í Strassborg sé nægilega tryggður. Tæpt er á þessari óvissu í umsögn Lögmannafélagsins til allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp um nýjan endurupptökudóm, eins og Fréttablaðið greindi frá fyrr í mánuðinum. Þar segir að verulegur vafi sé nú á því hvort íslenska ríkið geti lengur fullnægt skyldum sínum samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu til að fullnusta dóma MDE hérlendis. Skúli dæmir málið Afstöðu Hæstaréttar til endurupp- töku í máli Elínar og Sigurjóns er beðið með nokkurri eftirvæntingu meðal lögmanna og í réttarkerfinu. Það hefur verið sérlega vanda- samt að setja saman fjölskipaðan dóm til að fjalla um málið, enda er það viðkvæmt fyrir Hæstarétt. Aðeins einn skipaður hæstaréttar- dómari situr í dómi auk tveggja dómara sem látið hafa af störfum og tveggja dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Annar þeirra er títt- nefndur Skúli Magnússon, fyrr- verandi formaður Dómarafélagsins. adalheidur@frettabladid.is Ávörðun Hæstaréttar um að fyrst verði fjallað eingöngu um frávísunar- kröfu ákæruvaldsins þykir benda til þess að rétturinn hafi þegar ákveðið að vísa málinu frá. 2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.