Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 12
Við fordæmum
harðlega alla
mismunun, eða ofbeldi, á
grundvelli kynhneigðar eða
kynvitundar.
Evrópuráðið
Aukahlutapakkinn er: Hiti í framrúðu og rúðusprautum, hiti í stýri og stýri klætt mjúku leðri,
rafdrifin upphituð leður framsæti með stillingu á 10 vegu, hiti í aftursætum, 380W Meridian
hljóðkerfi, sjálfvirk háljósaaðstoð, svartur útlitspakki, tvöfalt krómað púst, skyggðar rúður
að aftan, lykillaus opnun, rafknúinn afturhleri, hiti í aftursætum.
800.000 kr. aukahlutapakki
fylgir Jaguar E-Pace S D150
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
e
r
fr
áb
ru
g
ð
in
n
au
g
lý
st
u
ve
rð
i
VERÐ: 7.990.000 KR.
Jaguar E-Pace S D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur.E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
1
1
J
a
g
u
a
r
E
-
P
a
c
e
5
x
2
0
f
e
b
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE
JAGUAR E-PACE
PÓLLAND Þriðjungur sveitarfélaga
og sýslna í Póllandi hefur gefið út
yfirlýsingar um að „áróður hinsegin
fólks sé bannaður“ eða að svæði
séu „LGBT laus“. Eru þetta svæði í
suður- og austurhluta landsins, sem
eru íhaldssamari hlutar landsins og
þar sem stjórnarflokkurinn Lög og
réttlæti er stærstur. Evrópuráðið
hefur fordæmt yfirlýsingarnar og
sagt þær ganga gegn gildum Evr-
ópusambandsins.
Bylgjan er mikið bakslag fyrir
hinsegin fólk í Póllandi. Fyrir ári
tilkynnti hinn frjálslyndi borgar-
stjóri Varsjár, Rafal Trzaskowski,
að hinsegin fræðsla yrði tekin inn
í skólakerfið. Jaroslaw Kaczynski,
leiðtogi Laga og réttlætis, og f leiri
frammámenn í f lokknum gagn-
rýndu þetta harðlega og sögðu jafn-
réttislöggjöf vera útlenskan áróður
sem ógnaði pólskum gildum. Verið
væri að spilla börnum með því að
kenna þeim um samkynhneigð og
þá höfðu margir áhyggjur af stöðu
kirkjunnar, sem er nátengd Lögum
og réttlæti. Varð þetta að einu af
aðalmálum f lokksins fyrir þing-
kosningarnar sem haldnar voru í
október síðastliðnum, þar sem Lög
og réttlæti unnu stórsigur.
Í mars í fyrra varð bærinn Swid-
nik, í austurhluta Póllands, sá fyrsti
til að lýsa yfir „frelsi frá áróðri hin-
segin fólks“. Sífellt f leiri sveitarfélög
og sýslur hafa bæst í hópinn. Í ágúst
voru þau orðin 30 talsins og í dag
eru þau orðin um 100. Eru þetta að
langmestu leyti svæði þar sem Lög
og réttlæti sækja sitt kjarnafylgi;
sveitir og bæi í suður- og austurhlut-
anum. Þetta á þó einnig við svæði í
norðri og vestri og mikill þrýstingur
er í borgum á borð við Kraká, Lodz
og Gdansk. Sums staðar, eins og í
borgunum Bialystock og Lublin,
hefur yfirlýsingum verið hafnað.
Hinsegin fólk í Póllandi hefur
mjög miklar áhyggjur af þróuninni
og segir að yfirlýsingar um „bann
við hinsegin áróðri“ þýði í raun að
hinsegin fólk sé ekki velkomið á
svæðunum. Hefur samanburður
verið gerður við hernám nasista í
seinni heimsstyrjöldinni þar sem
ákveðnir hópar fólks voru bannaðir
á ákveðnum svæðum.
Í desember gaf Evrópuþingið út
yfirlýsingu þar sem „hinsegin lausu“
svæðin í Póllandi voru fordæmd. Í
febrúar gerði Evrópuráðið slíkt
hið sama. „Við fordæmum harð-
lega alla mismunun, eða of beldi, á
grundvelli kynhneigðar eða kyn-
vitundar, sem gengur gegn grunn-
gildum Evrópusambandsins og
Mannréttindasáttmála Evrópu,“
segir í yfirlýsingunni. Þá sagði Hel-
ena Dalli, yfirmaður jafnréttismála
ESB, að hún hefði miklar áhyggjur af
líkamlegum árásum á hinsegin fólk.
Veist hefur verið að hinsegin fólki
í Póllandi, bæði í gleðigöngum og
annars staðar. Verður sífellt erfiðara
fyrir það að búa á þessum svæðum.
Sýnilegustu áhrifin eru límmiðar
sem dagblaðið Gazeta Polska hefur
dreift til lesenda sinna, þar sem sjá
má yfirstrikaðan regnbogafánann.
Þessir límmiðar hafa verið festir
upp víða.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Hinsegin-laus svæði fordæmd
Þriðjungur sveitarfélaga og sýslna í Póllandi hefur lýst yfir að „áróður hinsegin fólks sé bannaður“. Bylgj-
unni er stýrt af stjórnarflokknum. Límmiðar með hatursáróðri gegn hinsegin fólki sjást víða um landið.
TYRKLAND Tyrknesk yfirvöld munu
ekki stöðva för sýrlenskra f lótta-
manna sem leggja leið sína yfir
landamærin til Evrópu samkvæmt
fréttastofu Reuters.
Þessar fréttir bárust í kjölfar
frétta um aukin átök í Idlib-héraði
í Sýrlandi, þar sem í það minnsta
33 tyrkneskir hermenn létu lífið
á fimmtudag í árásum sýrlenska
stjórnarhersins.
„Við höfum ákveðið að stöðva
ekki sýrlenska f lóttamenn sem
reyna að komast til Evrópu á landi
eða sjó. Allir f lóttamenn, þar með
taldir Sýrlendingar, eru nú vel-
komnir,“ sagði háttsettur tyrk-
neskur embættismaður í samtali
við Reuters.
Að sögn tyrkneskra stjórnvalda
hefur landið ekki bolmagn til að
taka við f leiri f lóttamönnum.
Átökin í Sýrlandi eru því sögð geta
valdið nýrri öldu f lóttamanna til
Evrópulanda. Um 3,7 milljónir
flóttamanna dvelja nú þegar í Tyrk-
landi. – bdj
Tyrkir opna
landamæri sín
til Grikklands
Dagblaðið Gazeta Polska dreifir hatursfullum miðum. NORDICPHOTOS/GETTY
Fjöldi var við landamæri Tyrklands
og Grikklands í gær. MYND/GETTY
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð