Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 73
Við erum mjög
eftirsótt erlendis
sem vinnuafl, við erum
með gott nám sem við
þurfum að verja og erum
að skila mjög flottum
fagmönnum af okkur út í
atvinnulífið.
KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 KOKKALANDSLIÐIÐ
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, matreiðslumeistari og formaður MATVÍS, segir andrúmsloftið á Stórhöfða 31 einkennast af miklum metnaði, samvinnu og bjartsýni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Óskar Hafnfjörð Gunnars-son, formaður MATVÍS og matreiðslumeistari, er afar
hreykinn af árangri liðsins. Hann
segir mikinn metnað ríkja í iðn-
greinum innan MATVÍS.
Blómlegt iðnaðarsamfélag
Óskar segir húsnæðisbreytingar
undanfarins árs á Stórhöfða 31
hafa orðið til þess að nú blómstri
þar líf legt iðnaðarsamfélag þar
sem metnaður og stuðningur
ræður ríkjum.
„Forsagan er sú að árið 2017
byrjar undirbúningur að því að
fleiri iðnaðarfélög komi upp á
Stórhöfða. Iðnfélögin Byggiðn,
FIT og Samiðn keyptu hlut í Stór-
höfða 31, undir því yfirskini að fá
iðnaðarsamfélagið, stéttarfélögin,
á sama blettinn,“ útskýrir Óskar.
„Fljótlega var farið í vinnu við
að breyta húsnæðinu þannig að
hægt væri að koma starfsemi allra
félaganna fyrir. Við erum öll að
fást við og glíma við sömu vanda-
málin, við erum að reyna að verja
menntunina og þjónusta félags-
menn og sáum tækifæri í því að
koma okkur saman. Út frá því kom
MATVÍS með þá ósk að hægt væri
að koma upp aðstöðu fyrir allar
greinarnar, bæði til að setja upp
æfingar og námskeið, en það hefur
vantað fyrir okkar félagsmenn.“
Það hefur gengið á ýmsu á
Stórhöfðanum undanfarin ár.
„Landsliðið sem var á undan
þessu var við æfingar líka meðan á
breytingunum stóð þannig að það
voru oft ansi erfiðar aðstæður sem
þau voru að æfa við. En svo eftir
því sem tíminn leið og við náðum
að klára breytingarnar þá varð
aðstaðan alltaf betri og betri. Hún
er svo orðin fantagóð í dag, við
erum komin með alveg frábæra
aðstöðu í dag.“
Þrautseigja og metnaður
Að baki þessum glæsta árangri
liggur mikil erfiðisvinna og segir
Óskar að það hafi verið magnað
að fylgjast með æfingum. „Þetta
er auðvitað margra mánaða ferli
og alveg ótrúleg seigla og dugn-
aður hjá krökkunum og fólkinu
í kringum landsliðið og hvernig
þau gera þetta með vinnu. Þau
eru í vaktafríum á kvöldin og um
helgar, langt fram eftir öllu. Þau
byrja í smá skorpum og svo ágerist
þetta eftir því sem nær dregur
keppni en Sigurjón var mjög skipu-
lagður í þessu frá byrjun, hann
kom með æfingaplan þar sem þau
voru að æfa fast aðra hverja viku í
tvo daga.
Svo varð þetta alltaf meira og
meira og inn á milli voru ein-
staklingar að koma að æfa einstök
atriði, ein og sér. Það var alveg
magnað að fylgjast með þeim,
hvað þau voru fókuseruð á verk-
efnið og lögðu sig öll í þetta. Þetta
hefur sett mjög skemmtilegan svip
á húsið, það er mikið líf í kringum
þetta og starfsfólkinu hjá verka-
lýðsfélögunum finnst ótrúlega
gaman að fylgjast með þeim þegar
þau eru á æfingum og samstarfið
við landsliðið og hópinn í þessu
hefur verið alveg einstaklega gott.
Það hefur líka skilað sér í öllu,
það eru allir af vilja gerðir og vilja
aðstoða og reyna að hjálpa til.“
Hann telur að það séu ýmsar
ástæður að baki þessari aðdáunar-
verðu velgengni. „Við höfum lengi
verið mjög framarlega í matreiðsl-
unni og árangur síðustu ára sýnir
að við erum meðal fremstu þjóða.
Við erum mjög eftirsótt erlendis
sem vinnuafl, við erum með gott
nám sem við þurfum að verja
og erum að skila mjög flottum
fagmönnum af okkur út í atvinnu-
lífið.“
Áhrifamikill árangur
Óskar segir hópinn þéttan og
ástríðuna smitandi. „Eins og þessi
árangur, ég held að það sé ekki síst
liðsheildin og samheldnin sem
er í þessu, fólk lagði sig allt fram
í þetta, æfingarnar voru stífar
og gleðin mikil og það hafa allir
brennandi áhuga á þessu. Svo
smitar þetta svo rosalega út frá sér
inn á staðina þar sem fólkið er að
vinna þannig að vinnustaðirnir
eru farnir að taka þátt í þessu líka.
Ég held að það sé stór partur í
þessu. Enda sjáum við það að við
erum með ótrúlegan fjölda af
framúrskarandi veitingastöðum,
við erum komin með Michelin-
stjörnuna aftur til landsins þannig
að gróskan er alveg gríðarleg og
metnaðurinn eftir því.“
Áhrifanna gætir víða. „Við
sjáum líka að þessi árangur lands-
liðsins smitar út frá sér, ekki bara
í matreiðsluna, heldur líka í hinar
greinarnar okkar, eins og kjötiðn,
bakstur og framreiðslu. Þau sjá
metnaðinn sem er þarna, eins og
til dæmis kjötiðnaðarlandsliðið
sem er að fara að keppa á heims-
meistaramótinu í Bandaríkjunum
í sumar, bakararnir eru alltaf að
horfa meira og meira í keppnir sem
hægt er að taka þátt í,“ segir Óskar.
„Svo er það framreiðslan líka,
að taka þátt í keppnum erlendis,
en það er að fara hópur Íslendinga
út núna í Euroskills-keppnina í
Austurríki í september og þar er
keppt í matreiðslu, framreiðslu,
kjötiðnaði og bakstri ásamt öðrum
iðngreinum. Þetta er það sem rífur
upp metnaðinn og kveikir rosalega
í krökkum í dag, að geta keppt á
alþjóðavísu og borið sig saman
við aðrar þjóðir. Þegar þau horfa á
þennan rosalega árangur lands-
liðsins – ég veit ekki hvort fólk
gerir sér grein fyrir hversu stór-
fenglegur hann er, þá kveikir þetta
mikinn áhuga á fögunum sem er
akkúrat það sem við þurfum því
okkur vantar alltaf f leiri og fleiri
iðnaðarmenn, sérstaklega í okkar
greinar en það er búið að vera
dálítill skortur á þeim.“
Eftirvænting og bjartsýni
Þá er nóg fram undan. „Til dæmis
eru nemarnir sem taka þátt í
norrænu nemakeppninni að
byrja að æfa sig núna í MATVÍS
fyrir keppnina sem verður í apríl
og í kjölfarið munu krakkarnir
sem eru að fara að keppa í okkar
greinum á Euroskills líka koma á
æfingar. Sigurjón, þjálfari lands-
liðsins, er að fara að taka þátt í
Nordic Chef og mun verða við
æfingar líka upp frá, þannig að
það er nóg að gera og okkur finnst
geggjað hvað húsið er vel nýtt. Svo
sér Iðan fræðslusetur um endur-
menntunina fyrir okkar félags-
menn að setja upp námskeið og
ætlar að keyra námskeið núna upp
í MATVÍS þar sem við erum að
reyna að fá erlenda fagmenn til að
koma og halda námskeið.
Framtíðin lítur vel út. „Maður
horfir svo björtum augum til fram-
tíðar eftir þennan árangur lands-
liðsins að maður hlakkar svo til
að sjá bæði gróskuna sem kemur í
kjölfarið og áhugann sem myndast
í kringum fögin. Við erum mjög
spennt að horfa á eftir krökkunum
gera enn þá stærri og flottari hluti
á komandi árum. Þessi árangur
liðsins er magnað afrek og þvílík
lyftistöng fyrir greinina.“
Gríðarleg gróska og
metnaðurinn eftir því
Íslenska kokkalandsliðið sópaði á dögunum til sín fjölda
verðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara. Óhætt
að fullyrða að það sé meðal þeirra allra fremstu í faginu.