Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 84
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
Trausti Jóhannsson
Stórholti 8,
Akureyri,
lést á heimili sínu þann 24. febrúar
síðastliðinn. Útför hans fer fram frá
Glerárkirkju á Akureyri, föstudaginn 6. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hollvinasamtök SAk.
Anna Svava Traustadóttir Karl Hjartarson
Mikael Jóhann Traustason Guðrún Vala Ólafsdóttir
Þyrí Margrét Traustadóttir
Sólrún Inga Traustadóttir Angelos Parigoris
Sóley Jóhannsdóttir Guðmundur Víkingsson
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ágúst Stefánsson
vélstjóri,
Norðurbakka 11C, Hafnarfirði,
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut mánudaginn 24. febrúar.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn
3. mars klukkan 15. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
hjartadeildinni fyrir einstaka umönnun.
Anna M. Þórðardóttir
Þórður Ágústsson Friðný Heimisdóttir
Helga Ágústsdóttir Birgir Loftsson
Ívar Þór Ágústsson Bylgja Hrönn Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og bróðir,
Sverrir Örn Olsen
(Bósi)
lést á heimili sínu á Spáni, sunnudaginn
12. janúar. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 3. mars kl. 13.
Sverrir H. Sverrisson
Unnur Svava Sverrisdóttir Jóhannes S. Harðarson
barnabörn, systkini og fjölskyldur.
Þau sem fæðast á hlaupársdag koma í heiminn með félagslegan skotspón á bakinu. Samkvæmt gregoríanska tímatalinu sem við á Vesturlöndum styðjumst við eiga
þessi svokölluðu hlaupársbörn einungis
afmæli á fjögurra ára fresti. Það þarf
ekki mikinn grínista til að reiða til þessa
ódýra höggs að segja að tólf ára barn sé
einungis þriggja ára þar sem það hafi
aðeins átt þrjá afmælisdaga.
Fréttablaðið hafði uppi á fulltrúa
frá þessum ofsótta minnihlutahóp og
komst að því hvernig í ósköpunum
hlaupársbörn takast á við daglegt líf.
Finnst sem hún eldist ekki
„Mér finnst ég alltaf jafn ung, það er bara
þannig,“ segir Hildur Magnúsdóttir glöð
í bragði. Hún er bæði leikkona í leik
hópnum RaTaTam og hlaupársbarn.
„Hversu gömul sem ég verð er eins og
ég eldist ekki enda er ég bara frábær!“
Afmælisdeginum fylgir þó gjarnan
hvimleitt grín. „Þreyttasti brandarinn
er sá þegar fólk segist ekki þurfa að
gefa manni afmælisgjöf því maður
eigi tæknilega ekki afmæli. Mér fannst
það eiginlega leiðinlegast þegar ég var
lítil,“ segir Hildur sem hafði ekki mikið
gaman af afmælisdeginum sínum á
yngri árum.
Aðspurð segir Hildur að þegar ekki
var hlaupár hafi 28. febrúar alltaf verið
valinn til að halda upp á afmælið frekar
en 1. mars. „Af því að það er síðasti
dagurinn í febrúar. Eftir að ég varð eldri
varð það svo yfirleitt bara þegar það
hentaði mér best,“ segir hún.
Raggi Bjarna stendur upp úr
Ein afmælisminning stendur þó upp
úr hjá Hildi. „Þegar ég varð tuttugu og
fjögurra ára gömul, eða sex hlaupára,
hafði ég verið með Ragga Bjarna á sýn
ingu á Hótel Sögu,“ segir Hildur. „Við
sungum svo saman og hann söng fyrir
mig afmælissönginn,“ segir Hildur sem
minnist Ragga hlýlega.
Hildur segist því miður ekki vita til
mikillar samstöðu meðal hlaupársaf
mælisbarna. „Ég þekki eiginlega ekki
marga sem eiga afmæli á þessum degi.
Það væri kannski ráð að stofna Face
bookgrúppu!“ segir Hildur og hlær.
Fréttablaðið óskar Hildi og öðrum
hlaupársbörnum innilega til hamingju
með afmælisdaginn.
arnartomas@frettabladid.is
Hvimleitt hlaupársgrín
Fjórða hvert ár fæðast hlaupársbörn – börn sem eiga afmæli á hlaupársdegi 29. febrúar.
Hildur Magnúsdóttir leikkona hafði ekki gaman af afmælisdeginum í æsku.
Merkisatburðir
1644 Sæfarinn Abel Tasman leggur í aðra ferð sína yfir
Kyrrahafið.
1884 Tímaritið Fjallkonan hefur
göngu sína.
1940 Hattie McDaniel er fyrsti
svarti leikarinn til að vinna Óskars-
verðlaun.
1952 Eyjan Helgoland kemst aftur
undir stjórn Þjóðverja.
1960 Þúsundir manna farast í jarð-
skjálfta í Marokkó.
1968 Mikil flóð verða í Ölfusá með
jakaburði, sem veldur miklum
skemmdum á Selfossi.
1976 Hlaupársbarnið Ja Rule fæðist.
2004 Jean Bertrand Aristide segir af sér sem forseti Haítí í
kjölfar uppreisnar.
2012 Byggingu samskiptamastursins Tokyo Skytree lýkur.
Hildur Magnúsdóttir er leikkona og hlaupársbarn sem lætur afmælisdaginn ekki lengur á sig fá. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þreyttasti brandarinn er sá
þegar fólk segist ekki þurfa að
gefa manni afmælisgjöf.
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT