Skessuhorn - 01.05.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 20196
Óhöpp í
umferðinni
VESTURLAND: Árekstur
varð við Brúartorg í Borgar-
nesi síðastliðinn laugardag.
Reyndist hann vera minnihátt-
ar, eitthvað tjón á bifreiðunum
en enginn meiddur. Ökumað-
ur missti stjórn á bifreið sinni
við Höfðasel á Akrafjallsvegi á
mánudag, 29. apríl. Bíllinn fór
út af veginum og hafnaði ofan í
skurði. Engin slys urðu á fólki.
Ferðamenn á leið um Borgar-
fjörð á sunnudag misstu bif-
reiðina út af Hálsasveitarvegi
við Hraunfossa og höfnuðu á
tré. Engin slys urðu á fólki en
bíllinn er mikið skemmdur. Þá
festu erlendir ferðamenn bíl
sinn í snjó á Haukadalsskarði
í Dölum í vikunni. Ekkert am-
aði að fólkinu, bíllinn var los-
aður og ferðamönnunum fylgt
aftur niður á þjóðveginn. -kgk
Fákar á ferð
VESTURLAND: Þrjú mál
komu upp í umdæmi Lög-
reglunnar á Vesturlandi í vik-
unni sem tengjast lausagöngu
hrossa. Tilkynnt var um
hrossastóð á Snæfellsnesvegi
við Stóra-Hraun, en þar voru
á bilinu 15-20 hestar laus-
ir. Maður var ræstur út til að
koma þeim í girðingu. Lög-
reglu var tilkynnt um stak-
an hest á ferð á Vatnaleið á
Snæfellsnesi. Fundið var út úr
því hvaðan hesturinn kom og
málið leyst. Að lokum var til-
kynnt um hest á ferð við Geld-
ingaá í Hvalfirði á mánudags-
morgun.
-kgk
Ekið geyst um
göturnar
VESTURLAND: Mjög mörg
umferðarlagabrot komu inn á
borð Lögreglunnar á Vestur-
landi í vikunni sem leið. Hrað-
akstursbrot voru þar sérstak-
lega áberandi og voru óvenju
mörg að sögn aðstoðaryfirlög-
regluþjóns. Langflest brotin
eru á Vesturlandsvegi og mjög
algengt að ökumenn hafi ver-
ið mældir á milli 115 og 120
km/klst., þar sem hámarks-
hraði er 90 km/klst. Lögregla
minnir á að viðurlög við brot-
um á því hraðabili er 50 þús.
króna sekt. Umferðareftir-
lit er nokkuð stíft í umdæm-
inu, að sögn lögreglu. Notað-
ar eru fastar hraðamyndavél-
ar, auk þess sem lögregla not-
ar ómerktan myndavélabíl og
merkta lögreglubíla við um-
ferðareftirlit.
-kgk
Bitin af hundi
AKRANES: Maður og stúlka
voru bitin af hundi á Akra-
nesi í vikunni sem leið. Stúlka
var á ferð um bæinn með tvo
hunda þegar stærri hundurinn
skyndilega réðist á þann minni
og hélt honum í kjaftinum.
Stúlkan kallaði eftir hjálp og
maður sem var nálægur kom
henni til aðstoðar. Þá vildi
ekki betur en svo að hundur-
inn beit hann í fingurna og
stúlkuna líka. Dýraeftirlits-
manninum á Akranesi var gert
viðvart og sáttir náðust.
-kgk
Grunsamlegar
mannaferðir
VESTURLAND Um sjö-
leytið að morgni sumardags-
ins fyrsta var lögreglu tilkynnt
um grunsamlegar mannaferð-
ir við Miðbæ í Borgarfirði. Þrír
menn sáust sparka í hurð, tveir
dökkklæddir og einn í ljósri
peysu. Mennirnir fundust ekki
við eftirgrennslan lögreglu.
Þá var sagt frá grunsamlegum
mannaferðum á Akrafjallsvegi
við Herdísarholt og Ós en þær
reyndust eiga sér eðlilegar skýr-
ingar. Reyndust þar vera krakk-
ar á veginum sem voru að taka
upp myndband fyrir sirkus, að
sögn lögreglu.
-kgk
Umsóknir um
þátttöku í Plan-B
BORGARNES: „Það er sönn
ánægja að tilkynna að opið er
fyrir umsóknir um þátttöku
listamanna á Plan-B Art Festi-
val 2019 sem fer fram í fjórða
sinn dagana 9. - 11. ágúst í
Borgarnesi. Kallað er eftir öll-
um gerðum samtímalistar, frá
gjörningum til videoverka og
öllu þar á milli. Listafólk sem
valið er til þátttöku fær greidda
þóknun fyrir framlag sitt,“ segir
í tilkynningu. „Við óskum eftir
að umsækjendur sendi tillögur
og ferilskrár á netfangið plan-
bartfestival@gmail.com fyr-
ir miðnætti 26. maí næstkom-
andi. Öllum umsóknum verður
svarað. Ef einhverjar spurning-
ar kunna að vakna er velkomið
að senda okkur póst á planbart-
festival@gmail.com“.
-mm
Verslun Hagkaupa í Borgarnesi
hefur nú verið lokað eftir tólf ára
rekstur, en búið var að kynna fyr-
irhugaða lokun verslunarinnar með
dágóðum fyrirvara. Verslunarrýmið
er 770 fermetrar og í eigu fasteigna-
félagsins Reita sem býður rýmið til
leigu. Í sama húsi er rekið Geira-
bakarí og Bónusverslun.
mm/ Ljósm. þg.
Verslunarhús Reita í Borgarnesi til leigu
Stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands hefur hrint
af stað söfnunarátaki þar sem leitað
er eftir stuðningi til kaupa á 29 nýj-
um sjúkrarúmum sem nauðsynlegt
er að endurnýja í HVE. „Við förum
þá leið að við munum merkja rúm-
in fyrirtækjum, félagasamtökum
og stofnunum sem styðja við söfn-
unina. Fyrir páska póstlögðum við
903 bréf til fyrirtækja og félagasam-
taka á Vesturlandi þar sem við leit-
um stuðnings við verkefnið,“ seg-
ir Sævar Freyr Þráinsson stjórnar-
maður í hollvinasamtökunum.
Hollvinasamtök Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands voru stofn-
uð 25. janúar 2014. Nú eru tæplega
300 félagar í samtökunum. „Við
stofnun samtakanna kom vel í ljós
að íbúar á Vesturlandi hafa sterk-
ar skoðanir á mikilvægi heilbrigð-
isþjónustunnar og að hún skipti
meginmáli sem hornsteinn góðra
búsetuskilyrða. Hlutverk Hollvina-
samtakanna er að fylgja eftir þess-
ari skoðun og fá til liðs við félagið
sem flesta íbúa og fyrirtæki á Vest-
urlandi,“ segir í bréfi vegna átaksins
um sjúkrarúmakaupin.
Stjórn Hollvinsamtaka HVE hef-
ur á þessum fimm árum frá stofnun
félagsins safnað fyrir ýmsum tækja-
búnaði sem gagnast öllum sem nýta
sér heilbrigðisþjónustu á Vestur-
landi og hefur félagið frá stofnun
þess afhent HVE gjafir að andvirði
ríflega 65 milljónir króna. Meðal
þess búnaðar er sneiðmyndatæki,
blóðþrýstingsmælar, gæslutæki,
blöðruómskoðunartæki, skurðstof-
ustæða og öndunarvél.
Aðalfundur Hollvinasamtaka
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
verður haldinn laugardaginn 4. maí
næstkomandi klukkan 11 í fundar-
sal HVE á Akranesi. Þangað eru
nýir félagar velkomnir. Við það
tækifæri verða fimm fyrstu sjúkra-
rúmin afhent. mm
Hollvinasamtökin hefja söfnun
fyrir sjúkrarúmum á HVE
Sævar Freyr Þráinsson stjórnarmaður í Hollvinasamtökum HVE póstlagði fyrir
páska 903 bréf til fyrirtækja og félagasamtaka. Þar er leitað stuðnings við fjár-
mögnun 29 nýrra sjúkrarúma.