Skessuhorn - 01.05.2019, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201910
Aðalfundur Björgunarfélags Akra-
ness var haldinn þriðjudagskvöldið
23. apríl. Góð aðsókn var á fund-
inn. Tvær breytingar voru gerðar
á stjórn björgunarfélagsins. Birna
Björnsdóttir, fráfarandi formaður,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs og
þá hafði Kristján Hagalín Guðjóns-
son gengið úr stjórninni á miðju
síðasta tímabili. Nýr formaður
Björgunarfélags Akraness er Gísli
Sigurjón Þráinsson. Aðrir stjórnar-
menn eru; Sigurður Axel Axelsson
varaformaður, Kjartan Kjartansson
gjaldkeri, Sigurður Ingi Grétarsson
ritari og Þórður Guðnason með-
stjórnandi. Varamenn í stjórn eru
Björn Guðmundsson og Ásmund-
ur Jónsson.
Þrír skrifuðu undir eiðstaf Björg-
unarfélags Akraness á fundinum
og teljast því fullgildir meðlimir
félagsins. Það voru þeir Gísli Björn
Rúnarsson, Stefán Ýmir Bjarnason
og Tómas Alexander Árnason.
kgk
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið hefur í nýlegum úr-
skurði komist að þeirri niðurstöðu
að álagning Orkuveitu Reykjavíkur
á vatnsgjaldi ársins 2016 hafi ver-
ið ólögmæt. Í kjölfar úrskurðarins
hefur ráðuneytið, á grundvelli eft-
irlitshlutverks síns í sveitarstjórn-
arlögum, ákveðið að taka til skoð-
unar gjaldskrár allra sveitarfélaga,
sem settar hafa verið á grundvelli
laga um vatnsveitur sveitarfélaga
nr. 32/2004.
Í úrskurði ráðuneytisins segir,
að með hliðsjón af 10. gr. laga um
vatnsveitur sveitarfélaga, sé með
öllu óheimilt í gjaldskrá að ákveða
hærra gjald en nemur meðalkostn-
aði af því að veita þjónustuna. Sam-
kvæmt skýru orðalagi 1. mgr. 10.
gr. skuli vatnsgjaldi, ásamt öðrum
tekjum vatnsveitu, aðeins ætlað að
standa undir rekstri vatnsveitunnar.
Undir það falli einnig fjármagns-
kostnaður, fyrirhugaður stofn-
kostnaður samkvæmt langtíma-
áætlun veitunnar og kostnaður við
að tryggja nægilegt vatn til slökkvi-
starfs og fyrir sérstakan slökkvibún-
að í samræmi við skyldur veitunnar.
Í lögum eða reglugerð væri á hinn
bóginn hvergi að finna ákvæði, sem
heimilar að tekinn sé arður af starf-
semi vatnsveitu.
Í úrskurðinum kemur einnig
fram, að miðað við fyrirliggjandi
gögn og umsögn Orkuveitunnar,
telji ráðuneytið ljóst að arðsemi
fyrirtækisins umfram fjármagns-
kostnað sé að lágmarki um 2%.
Ákvæði gjaldskrár Orkuveitunnar
vegna álagningar ársins 2016 væru
að þessu leyti í andstöðu við ákvæði
1. mgr. 10. gr. laga um vatnsveitur
sveitarfélaga. Loks gefi fyrirliggj-
andi gögn til kynna að Orkuveitan
hafi á undanförnum árum haft um-
talsverðan arð af starfsemi sinni og
muni svo verða áfram, sbr. fjárhags-
áætlun fyrir árin 2017 til 2021.
OR vill leiðbeiningar
vegna vatnsgjalds
Í kjölfar tilkynningar ráðuneytis-
ins um fyrrgreindan úrskurð sendi
Orkuveita Reykjavíkur frá sér yfir-
lýsingu. Þar segir m.a. að frá 2016
hafi vatnsgjald í Reykjavík tvisv-
ar sinnum verið lækkað umtals-
vert; um 11,2% í byrjun árs 2017
og aftur um 10% í byrjun árs 2018.
Samanlögð lækkun OR á gjaldskrá
á þriggja og hálfs árs tímabili hafi
því verið 13,1%. „Í framhaldi af
úrskurði samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytisins, sem féll um
miðjan síðasta mánuð, hefur Orku-
veita Reykjavíkur ítrekað óskað
eftir leiðbeiningum frá ráðuneyt-
inu um hvað leggja skuli til grund-
vallar við álagningu vatnsgjalds. Í
lögum um vatnsveitur sveitarfé-
laga er sagt að nánar skuli kveðið
á um þetta atriði í reglugerð. Slík
reglugerð hefur ekki verið sett og
hefur OR vísað til leiðbeiningar-
skyldu stjórnvalda í erindum sín-
um til ráðuneytisins.“
mm
Vinna við uppsteypu tíu hæða
íbúðablokkar á Stillholti 21 á Akra-
nesi gengur vel. Það er Skagatorg
ehf. sem byggir á lóðinni 37 íbúða
blokk, sambærilega þeirri sem fyr-
irtækið byggði einnig á næstu lóð
við hliðina, Stillholti 19, fyrir um
þrettán árum síðan. Jarðvegsfram-
kvæmdir hófust í september 2017
en í apríl á síðasta ári voru reknir
niður 115 staurar niður á klöpp til
að tryggja undirstöður fyrir bygg-
inguna.
mm
Fyrsti þáttur Skagahraðlestarinn-
ar var gerður aðgengilegur síðast-
liðinn föstudag, daginn fyrir fyrsta
heimaleik ÍA í Pepsi Max deild
karla í knattspyrnu. Skagahraðlest-
in er hlaðvarpsþáttur, en að honum
standa félagarnir Björn Þór Björns-
son og Snorri Kristleifsson. Björn
gegnir hlutverki umsjónarmanns en
öll tæknimál eru í höndum Snorra.
Stefna þeir að því að taka upp þátt
fyrir hvern einasta heimaleik kar-
laliðs ÍA í sumar þar sem þeir fá til
sín góða gesti.
Fyrsti þáttur bar yfirskriftina
Kynslóðalið og gestir hans voru
þau Benedikt Valtýsson, Daníel Þór
Heimisson og Margrét Ákadóttir.
Þar var farið stuttlega yfir komandi
sumar áður en gestirnir völdu lið
sinnar kynslóðar, draumalið leik-
manna sem þeir hafa séð spila í
gulu treyjunni. Næsta þætti Skaga-
hraðlestarinnar verður hlaðið upp
laugardaginn 15. maí, sama dag og
ÍA tekur á móti FH á Akranesvelli.
Hlusta má á þættina á Spotify.
kgk
Snæfellsjökull hefur rýrnað mik-
ið síðustu áratugi vegna hlýnandi
loftslags og talið er að hann verði
að mestu horfinn um árið 2050, að
því er fram kemur á vef Veðurstofu
Íslands. Flatarmál hans er nú inn-
an við 10 ferkílómetrar, en var um
það bil 22 ferkílómetrar árið 1910.
„Jökullinn er að jafnaði aðeins um
30 metra þykkur og er talið líklegt
að hann verði að mestu horfinn um
miðja þessa öld,“ segir á vef Veður-
stofunnar.
Vetrarafkoma jökulsins var mæld
í fyrsta sinn á annan dag páska,
22. apríl síðastliðinn. Þá fóru sjö
manns á jökulinn á vegum Veður-
stofunnar, Þjóðgarðsins Snæfells-
jökuls og ferðaþjónustufyrirtæk-
isins Summit Guides. Snjókjarni
var boraður í um 1350 metra hæð,
sunnan við Miðþúfu. Kjarninn var
vigtaður, eðlisþyngd hans ákvörðuð
og lagskipting skráð. Hiti snævar-
ans var einnig mældur og reyndist
vera innan við tveggja stiga frost
í öllu vetrarlagi jökulsins. Önnur
hola var boruð í um þúsund metra
hæð í norðurhlíðum jökulsins. Þar
reyndist vetrarlagið vera rúmlega
fjögurra metra þykkt og vatnsgild-
ið 2250 mm. Þar liggja oft skafl-
ar sumarlangt og borað var í eldra
hjarn niður á sjö metra dýpi.
Þorsteinn Þorsteinsson, sér-
fræðingur í jöklarannsóknum hjá
Veðurstofunni, hefur mælt afkomu
fjölda jökla og var einn leiðang-
ursmanna á Snæfellsjökli. Hann
segir niðurstöðurnar ekki koma á
óvart. „Niðurstöður þessara mæl-
inga koma okkur svo sem ekkert á
óvart, en vissulega höfum við ekki
samanburð úr öðrum mælingum á
jöklinum þar sem þetta er sú fyrsta.
Það væri hins vegar full ástæða til
að reyna að fjármagna reglulegar
afkomumælingar á Snæfellsjökli,
til að auka enn þekkingu okkar á
viðbrögðum íslensku jöklanna við
loftslagsbreytingum og ekki síður
vegna þess að jökullinn hefur öðl-
ast frægð í máli og myndum,“ segir
Þorsteinn. kgk/ Ljósm. úr safni.
Gjaldskrár vatnsveitna
teknar til skoðunar
Snæfellsjökull líklega horfinn
um miðja öldina
Önnur Stillholtsblokkin
er óðum að rísa
Viðmælendur fyrsta þáttar Skagahraðlestarinnar voru f.v. Daníel Þór Heimisson,
Benedikt Valtýsson og Margrét Ákadóttir. Ljósm. Skagahraðlestin.
Skagahraðlestin
í loftið
Gísli Sigurjón Þráinsson er nýr for-
maður Björgunarfélags Akraness.
Ljósm. úr safni/ eo.
Formannsskipti hjá
Björgunarfélagi Akraness