Skessuhorn - 01.05.2019, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 13
Auðarskóli
Ábyrgð – Ánægja – Árangur
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Auðarskóli óskar eftir að ráða
í eftirfarandi stöður skólaárið
2019-2020
Kennarar í Auðarskóla
Við Auðarskóla er laus 100% staða umsjónarkennara á unglingastigi og
100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi fyrir skólaárið 2019-2020.
Umsjónarkennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina eru:
Íslenska
Samfélagsfræði
Erlend tunugmál
Val
Umsjónarkennsla á yngsta stigi, meðal kennslugreina eru:
Stærðfræði
Íslenska
Náttúrufræði
Samfélagsfræði
Enska
Mikilvægt er að umsækjendur búi að:
Færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu
Auðarskóla í teymiskennslu.
Umsóknarfrestur er til 1.maí 2019
Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla.
Umsóknir um starfið berist á netfangið keli@audarskoli.is. Í umsókninni
þurfa að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Upplýsingar um
starfið veitir Þorkell aðstoðarskólastjóri í síma 4304757.
Nýtt húsnæði fyrir
leikskólann Hnoðraból
Framkvæmdir við nýtt húsnæði fyrir leikskólann Hnoðraból eru nú í útboðsferli hjá Ríkiskaupum.
Óskar Borgarbyggð eftir tilboðum vegna byggingaframkvæmda við Grunnskólann á Kleppjárnsreykj-
um. Um er að ræða nýbyggingu á einni hæð við Grunnskólann á Kleppjárnsreykjum um 540 m2 að
stærð, þar sem leikskólinn Hnoðraból verður staðsettur ásamt skrifstofum fyrir starfsfólks leikskólans
og grunnskólans.
Mun húsnæði leikskólans verða hluti af húsnæði Grunnskóla Borgarfjarðar-Kleppjárnsreykjum og
gefur það möguleika á öflugu samstarfi þessara skóla sem hafa marga sameignlega fleti í starfi sínu.
Sjá nánari upplýsingar á útboðsvef Ríkiskaupa
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Sunnudaginn 12. maí næstkom-
andi verða haldnir tveir sögu-
tengdir viðburðir í Dölum. Sögu-
skilti verður afhjúpað við afleggjar-
ann að Hjarðarholti í Laxárdal og
síðan verður Sturlufélag stofnað.
Fyrst verður afhjúpað söguskilti
við afleggjarann að Hjarðarholti.
Er það fyrsta skiltið af fjórum sögu-
skiltum á Gullna söguhringnum
svokallaða. Mjólkursamsalan kost-
ar gerð skiltanna, sem útbúin hafa
verið í samvinnu við Hvítahúsið og
Sturlunefnd, en Vegagerðin annast
uppsetningu þeirra. Guðrún Nor-
dal, forstöðumaður Árnastofnun-
ar, mun afhjúpa skiltið og njóta til
þess fulltingis nemenda úr Auðar-
skóla. „Á skiltinu við Hjarðarholt
verður mynd af þeim fóstbræðr-
um Bolla og Kjartani og af Guð-
rúnu sem þeir hugsuðu svo einlægt
um ungir menn og heimsóttu að
Laugum í Sælingsdal,“ segir á vef
Dalabyggðar. Næsta skilti verður
við afleggjarann út á Fellsströnd,
þar sem Auður djúpúðga verður
aðalpersónan. Ingólfur Örn Björg-
vinsson teiknaði aðalmyndirnar á
skiltunum þar sem Guðrún Ósvíf-
ursdóttir, Auður djúpúðga, Eiríkur
rauði og Sturla Þórðarson eru í að-
alhlutverki.
Að afhjúpun lokinni verður mót-
taka í Dalabúð á vegum Mjólkur-
samsölunnar og Dalabyggðar. Þar
munu Ari Edwald, forstjóri Mjólk-
ursamsölunnar og Kristján Sturlu-
son sveitarstjóri bjóða gesti vel-
komna og nemendur úr Auðar-
skóla taka lagið.
Að móttöku lokinni verður
Sturlufélagið stofnað með form-
legum hætti. Með stofnun þess
er ætlunin að heiðra og halda á
lofti minningu Sturlu Þórðarson-
ar, sagnaritara, lögsögumanns og
skálds sem lengi bjó á Staðarhóli í
Saurbæ. Bergur Þorgeirsson, for-
stöðumaður Snorrastofu, ræð-
ir um ritstofur við þetta tilefni og
Guðrún Norðdal flytur erindi um
Sturlu Þórðarson.
kgk
Íslandsmóti unglingaliða í keilu
lauk laugardaginn 27. apríl þeg-
ar fjögur lið léku til úrslita. Niður-
staða mótsins varð sú að ÍA-1 stóð
uppi sem sigurvegari. Liðið var
skipað þeim Hlyni Atlasyni, Jónasi
Hreini Sigurvinssyni og Matthíasi
Leó Sigurðssyni.
Skagapiltar lögðu KFR-1 með
tveimur vinningum gegn einum
í æsispennandi viðureign í un-
danúrslitum þar sem úrslitin réðust
ekki fyrr en í lokaramma leiksins.
Í úrslitaviðureigninni lögðu þeir
síðan ÍR-1 með tveimur vinning-
um gegn einum og fögnuðu því Ís-
landsmeistaratitlinum.
kgk
Nýkrýndir Íslandsmeistarar unglingaliða í keilu. Ljósm. KLÍ.
Skagapiltar Íslands-
meistarar unglingaliða
Frá Hjarðarholti í Dölum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safn.
Söguviðburðir framundan í Dölum
Afhjúpun söguskiltis og
stofnun Sturlufélags