Skessuhorn - 01.05.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201914
Síðastliðinn miðvikudag var Gesta-
stofa fyrir friðland fugla í Anda-
kíl opnuð í gömlu fjóshlöðunni við
Landbúnaðarsafn Íslands á Hvann-
eyri. Um er að ræða fyrsta áfanga
gestastofunnar, en drög að næstu
áföngum verkefnisins voru lögð
með ráðningu Brynju Davíðs-
dóttur sem sinna mun ráðgjöf við
næstu skref við uppbyggingu gesta-
stofunnar. Guðmundur Ingi Guð-
brandsson umhverfisráðherra opn-
aði sýninguna formlega og stað-
festi um leið með undirskrift sinni
verndaráætlun fyrir Ramsarsvæðið
Andakíl. Gestum var boðið að vera
viðstaddir viðburðinn og þekktust
margir það boð. Að endingu var
gestum boðið í kaffi og meðlæti í
Skemmunni á Hvanneyri.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands
sagði í ávarpi sínu við þetta tilefni
að langþráðum áfanga væri náð með
þessum fyrsta áfanga gestastofunn-
ar. „En þetta er kannski ekki hefð-
bundið húsnæði fyrir gestastofu,“
sagði hún og rifjaði upp að það hafi
verið hugmynd Ragnars Franks
Kristjánssonar að finna starfsemi
gestastofu stað í hlöðunni. „Flest-
ir hafa þá ímynd að gestastofur séu
bjartar og hlýjar,“ sagði hún. „En
fyrir mig er þetta ákveðinn sjarmi
að hafa gestastofuna í þessu rými
sem á einmitt þessa sögulegu teng-
ingu við nýtingu landsins í kring.
Hér var vetrarforðinn af þessum
miklu engjum hér fyrir neðan og
síðar túnunum úti á mýrunum til
suðausturs varðveittur, þannig að
kýr skólans gætu lifað veturinn
af. Og það er líka góð tenging að
í ár eru 130 ár frá því að búnaðar-
fræðsla hófst hér á Hvanneyri og
því er ágætt að geta komið formi
utan um næsta þrep í fræðslustarf-
semi hér á stað.“ Samnýting verð-
ur með móttöku Landbúnaðarsafns
og nýju gestastofunni, Ullarselið er
með sína flottu vöru í mjaltabásn-
um, auk þess sem samnýttar verða
snyrtingar, bílastæði og annað sem
fylgir starfsemi sem þessari.
Ragnhildur Helga sagði það hafa
verið mikinn happafeng fyrir svæð-
ið að bresku fuglafræðingarnir Rac-
hel Stroud og Niall Tierney stund-
uðu árið 2017 ítarlegar rannsóknir
á fuglalífinu í Andakíl. Dvöldu þau
í níu mánuði á svæðinu, töldu fugla
og greindu svæðið með tilliti til bú-
skapar fugla og ekki síst viðkomu
blesgæsarinnar. Þau hafa unnið
sem fuglafræðingar í heimalöndum
sínum Bretlandi og Írlandi og hafa
lagt undirbúningi gestastofu frið-
landsins í Andakíl mikið lið. Sömdu
þau m.a. efni sem nú þegar er að-
gengilegt á veggspjöldum í hlöð-
unni. Hönnun veggspjaldanna var
í höndum Rósu Bjarkar Jónsdóttur
en fuglamyndir hafa tekið heima-
maðurinn Sigurjón Einarsson og
Alex Máni frá Stokkseyri. Rósa
Björk hefur einnig hannað og gert
myndir af fuglum á flugi. Þau verk
eru skorin út í krossvið og verða
látin hanga úr lofti hlöðunnar.
Fram kom í máli Ragnhildar að
Uppbyggingarsjóður Vesturlands
hefur styrkt stofnun gestastofunnar
auk Borgarbyggðar og Skorradals-
hrepps og umhverfis- og auðlindar-
áðuneytisins.
mm
Fuglafræðingarnir Niall Tierny og Rachel Stroud eiga drjúgan þátt í því efni sem
nú þegar er til og varpað er upp á spjöld í nýju gestastofunni. Ljósm. úr safni/ kgk.
Gestastofa fyrir friðland fugla opnuð á Hvanneyri
Fuglafræðingur að störfum. Þessari mynd smellti Rachel Stroud af Niall Tierney við vettvangsrannsóknir á háflóði í minni Borgarfjarðar haustið 2017 þegar þau voru í Andakíl við rannsóknir og skráningu fugla.
Ragnhildur Helga ávarpar hér gesti við opnun Gestastofunnar.
Umhverfisráðherra og fulltrúar Umhverfisstofnunar undirrituðu verndaráætlun fyrir Ramsarsvæðið Andakíl. F.v. Guðbjörg
Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi og Sigrún Ágústsdóttir.
Veggspjöld sem Rósa Björk hannaði, en efni á þeim sömdu fuglafræðingarnir Ra-
chel Stroud og Niall Tierney, myndskreytt með ljósmyndum Sigurjóns Einarssonar
og Alex Mána.
Ragnhildur Helga afhenti Rósu Björk blómvönd fyrir hennar þátt í verkefninu.
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir formaður byggðarráðs Borgarbyggðar ávarpaði ges-
ti og færði Ragnhildi Helgu blóm sem þakklætisvott fyrir hennar frumkvöðlastarf
við undirbúning að opnun gestastofunnar.