Skessuhorn - 01.05.2019, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201916
Í veðurblíðunni á sumardaginn
fyrsta renndi blaðamaður í hlað á
Geitfjársetrinu á Háafelli í Hvítár-
síðu. Töluvert rennerí var af gest-
um og framan við gömlu útihúsin
spókuðu geitur sig með nokkurra
daga kiðlinga. Þrátt fyrir að enn
væri vika eftir af aprílmánuði var
græna grasið sprottið til gagns og
nutu geiturnar þess að kroppa það.
Fáar ef nokkrar skepnur eru jafn
heillandi og kiðlingar sem ásamt
spökum mæðrum sínum þiggja með
þökkum klapp frá gestum. Háafells-
geitur eru sumar hverjar svo mann-
elskar að þær ætla bókstaflega inn
í linsuna þegar þær eru myndaðar.
Hafa ekkert á móti óskertri athygl-
inni og frekar að þær sýni takta ef
þær fá enga athygli. Jóhanna Berg-
mann Þorvaldsdóttir geitabóndi og
fjölskylda hennar hefur með mikilli
þrautseigju átt sinn þátt í að geita-
stofninum hér á landi var bjarg-
að frá bráðri útrýmingarhættu.
Nú hefur heldur fjölgað í stofni ís-
lensku geitanna þó ennþá sé langt í
land með að það markmið náist að
koma honum af válista yfir skepn-
ur í útrýmingarhættu. Í viðtalinu
er rætt vítt og breitt um búskapinn.
Einhverju sinni var sagt; „basl er
búskapur,“ og má mögulega heim-
færa það á hugsjónastarf Jóhönnu.
En nú er bjartari tíð framundan.
Næsta kynslóð að koma
inn í búskapinn
Tímamót hafa orðið í rekstri geit-
fjársetursins á Háafelli. Dóttir og
tengdasonur Jóhönnu og Þorbjarn-
ar Oddssonar bónda hafa flutt heim
og taka nú virkan þátt í búrekstr-
inum, þau Elsa Þorbjarnardóttir og
Guðmundur Freyr Kristbergsson,
sem búa í litlu húsi úti í garði ásamt
þremur barna sinna. Ekki veitir af
fleiri höndum til að létta undir í
búskapnum og vaxandi ferðaþjón-
ustu. Jóhanna upplýsir blaðamann
að 205 fullorðnar geitur séu nú á
búinu og er von á um 200 kiðling-
um í vor. Það er því í mörg horn
að líta því auk almennrar umhirðu
við geiturnar taka þau á móti þús-
undum ferðamanna á hverju ári. Á
síðasta ári skráðu sig 7128 gestir í
gestabókina en árið áður voru þeir
5980. Von er á að áfram muni þeim
fjölga enda er sífellt að spyrjast út
sú upplifun sem heimsókn á geit-
fjársetrið er. Þannig hefur búið ver-
ið að fá afar jákvæða dóma í ferða-
tímaritum að undanförnu og er í
hópi þeirra íslensku ferðaþjónustu
fyrirtækja sem flokkast undir „must
see“ staði. Meðal annars þriðji eft-
irsóknarverðasti staðurinn á Vestur-
landi á eftir Snæfellsjökli og Djúpa-
lónssandi hjá tímariti sem nýverið
kom út.
Stóð tæpt
Geitastofninn í landinu þarf að ná
5000 kvendýrum til að komast af
hinum alræmda válista yfir dýr í
útrýmingarhættu. Árið 1962 stóð
tæpt með stofninn. Þá voru innan
við 100 geitur eftir af þessum stofni
sem hér hefur lifað allt frá landnámi
og þar af einungis ein kollótt huðna.
Stofninn var og er hugsanlega enn
einn minnsti einangraði geitastofn
í heimi. Nú er eigendum íslenskra
geita blessunarlega aftur tekið að
fjölga, eru um hundrað. Fjöldi vetr-
arfóðraðra geita í fyrra var kominn
í 1300. Jóhanna eignaðist fyrst geit-
ur árið 1989 en þá voru 300 geitur
í landinu hjá 40 bændum. Þess má
geta að kollóttar og hyrndar geit-
ur verður að rækta saman þar sem
kollóttir hafrar eru nær alltaf ófrjó-
ir en séu þeir hnýflóttir gefa þeir
kollótt afkvæmi. Sá stofn sem rækt-
aður var út frá þessari einu kollóttu
geit 1963 var nefndur Þerneyjar-
stofn og voru þau dýr gefin í Hús-
dýragarð Reykjavíkur þegar hann
var opnaður. 1996 var skipt um
stofn þar og þessar geitur gefnar
að Sólheimum í Grímsnesi þar sem
þær voru til 1999 en þá var búið að
panta slátrun fyrir öll dýrin. „Fyrir
tilstilli Sigurðar Sigurðarsonar yf-
irdýralæknis smitsjúkdóma fengust
fjögur yngstu dýrin flutt hingað að
Háafelli; þrjár huðnur og einn haf-
ur. Einungis tvö þeirra báru brúna
litinn. Þessu fylgdi sú kvöð að við
máttum ekki selja lífdýr frá búinu
næstu tíu árin. Um sama leiti hætt-
um við með kýrnar hér á Háafelli
og smám saman tók geitfjárræktin
yfir hér á bæ,“ segir Jóhanna.
Stóð tæpt
Reksturinn hefur verið strembinn
en þau ánægjulegu umskipti urðu
í fyrra að hann náði jafnvægi. Jó-
hanna dregur engan dul á að þetta
hafi verið brekka allt frá upphafi,
en á þessu ári eru 30 ár síðan fyrsta
geitin kom á bæinn. „Það hefur
vissulega gengið á ýmsu í þessum
búskap og stundum verið hálfgert
rugl,“ viðurkennir hún.
„Árið 2009 þegar einangrun á
geitunum okkar tók enda tók síst
betra við. Þá hækkuðu lán í bank-
anum eins og hjá flestum Íslend-
ingum sem skulduðu. Lítil innkoma
hafði verið árin á undan, almennur
búskapur á undanhaldi og bóndinn
komin í byggingavinnu. Frúin seldi
auk þess snyrtivörur á heimakynn-
ingum á kvöldin og börnin orð-
in sex. Þá reyndist erfitt að standa
við kröfur Arion banka og svo fór
að 2014 átti að taka jörðina upp í
skuld frekar en að lengja í lánum,“
segir Jóhanna. En hjálp barst úr
óvæntri átt: „Þá tók góð vinkona frá
Bandaríkjunum, Jody Edie, sig til
og hratt af stað heimssöfnun á net-
inu í gegnum Indiegogo og gekk sú
söfnun það vel að við gátum endur-
samið við bankann og haldið áfram
hugsjón húsfreyjunnar við að koma
á fót geitabúskap. Í ár eru því þrír
áratugir frá því að fyrstu þrjár geit-
urnar komu hingað frá Rauðkolls-
stöðum í Eyjahreppi.“
Jóhanna segir að svona hugsjóna-
starf sé sjaldnast byggt á skynsemi
eða fyrirhyggju. „En núna þeg-
ar loks er að komast á fjárhagslegt
jafnvægi þá er ég ákaflega þakk-
lát fyrir að vel fór og er auk þess
bjartsýn á framhaldið. En án þol-
inmæði bónda míns og barna hefði
þetta aldrei verið möguleiki. Þó svo
að flestir ráðherrar landbúnaðar á
þessum árum hafi verið heimsótt-
ir til að tala fyrir málefnum geit-
anna, var misjafnlega mikill árang-
ur af þeim ferðum. Ég fékk allt frá
klappi á bakið og til smá styrkja í
eitt og eitt skipti. Jón Bjarnason var
eini ráðherrann sem taldi ástæðu til
að koma og sjá hvað við værum að
gera og hann vildi gera samning til
þriggja ára. En þar sem sá samn-
ingur hafði ekki verið undirritaður
þegar hann lét af enbætti þá varð
ekki úr því nema til eins árs.“
Persónuleg þjónusta
Jóhanna segir að eftir hrun hafi far-
ið að aukast að fólk kæmi í hlaðið til
að fá að skoða geiturnar. „Þetta var
orðið svo algengt að við sáum að
annaðhvort yrði að setja hengilás
á hliðið eða gera þetta að atvinnu.
Síðustu átta árin hefur ferðaþjón-
ustan ár frá ári orðið sífellt stærri
hluti af okkar atvinnu. Enn eru ís-
lenskar fjölskyldur í meirihluta en
erlendum gestum fjölgar ár frá ári.
Við sækjumst ekki eftir stórum
hópum en erum í góðu samstarfi
við minni ferðaskrifstofur. Við selj-
um afurðir staðarins hér í lítilli
verslun á staðnum og einnig í gegn-
um REKO sölukerfi sem er ný leið
smáframleiðenda til að selja afurðir
milliliðalaust til neytenda.“
Bjartari tímar framundan í geitfjárrækt á Íslandi:
Fleiri gestir og
fjölbreyttari geitaafurðir
Jóhanna Bergmann
Þorvaldsdóttir, geitabóndi
á Háafelli, með sprækan
kiðling.
Við afgreiðslu í versluninni á Háafelli.
Kollótti hluti landnámsgeitarinnar var í bráðri útrýmingarhættu þegar Jóhanna
fékk huðnur af þeim stofni á bú sitt árið 1999. Nú er fjöldi afkomenda þeirra til og
meðal annars hún Frökk sem hér gætir kiðlingsins síns.
Þessi kiðlingur slakaði á og kúrði á bakinu á móður sinni Gjósku.