Skessuhorn - 01.05.2019, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201920
Í nýlegri könnun Maskínu var af-
staða almennings könnuð til starfa
ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Könn-
unin var gerð dagana 15.-27. mars
og byggir á svörum 848 þátttakenda
á öllum aldri. Fleiri Íslendingar eru
ánægðir en óánægðir með frammi-
stöðu fimm af ellefu ráðherrum rík-
isstjórnarinnar. Þeir ráðherrar eru
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra, Þór-
dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt-
ir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, Katrín Jakobsdótt-
ir forsætisráðherra, Guðmundur
Ingi Guðbrandsson umhverfis- og
auðlindaráðherra og Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Flestir lýsa ánægju með frammi-
stöðu Lilju Daggar Alferðsdóttur
(67,6%) og fæstir eru ánægðir með
frammistöðu Sigríðar Á. Andersen
(13,8%), en Sigríður steig til hlið-
ar stuttu áður en könnunin var lögð
fyrir. Almennt eru fleiri ánægðir
með störf ríkisstjórnarinnar nú en
í lok árs 2018. Meiri ánægja er með
störf allra ráðherranna nú, aðutan-
skilinni Sigríði Á. Andersen. Mesta
aukning ánægju er með mennta-
og menningarmálaráðherra þótt
fólk hafi verið ánægðast með Lilju
Dögg í lok árs 2018.
mm
Fyrir sautján árum hófst góðgerða-
verkefnið Team Rynkeby þegar
nokkrir starfsmenn danska safa-
framleiðandans Rynkeby Foods
ákváðu að hjóla frá Danmörku til
Parísar. Fengu þeir styrki til ferð-
arinnar og rann ágóði af söfnun
þeirra til krabbameinsdeildar barna
á sjúkrahúsinu í Óðinsvéum. Upp
frá því hefur þessi 1300 kílómetra
hjólreiðaferð vaxið og dafnað að
umfangi og þátttökulið bæst við frá
fleiri löndum. Nú eru lið frá öll-
um Norðurlöndunum auk Þýska-
lands sem æfa af kappi og hjóla flest
frá sínum heimabæ til Parísar. Öll
hjóla þau til styrktar börnum með
alvarlega sjúkdóma. Íslenska liðið
samanstendur af 38 hjólurum og 8
aðstoðarmönnum. Íslendingar tóku
fyrst þátt árið 2017 og í ár æfa 38
liðsmenn víðs vegar af landinu af
kappi fyrir þátttöku í Team Ryn-
keby verkefninu, samhliða því að
safna styrkjum fyrir Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna (SKB).
Auk hjólaranna eru átta manns í að-
stoðarliði, sem hefur umsjón með
fæði, viðgerðum, akstri á bílum og
fleiru. Í liðinu í ár eru 15 Skaga-
menn, þar af ellefu hjólarar (fimm
brottfluttir) og fjórir í aðstoðarliði.
Team Rynkeby Ísland er orðinn
einn helsti styrktaraðili SKB. Árið
2017 söfnuðust rúmar 9,5 millj-
ónir króna og árið 2018 um 16,6
milljónir, alls rúmlega 26 milljónir
króna. Skessuhorn ræddi við Svan-
borgu Þórdísi Frostadóttur sem
tekur nú í fyrsta skipti þátt í undir-
búningi fyrir hjólaferðina sem hefst
í Kolding 29. júní í sumar og lýk-
ur 6. júlí þegar 2.600 þátttakendur
frá 54 liðum hittast um hádegisbil
í almenningsgarðinum Prairie du
Cercle Sud í París.
Langt og strangt
æfingaferli
Til að komast í liðið þarf að senda
inn formlega umsókn. Í septem-
ber ár hvert er nýtt lið valið. „Ferð-
in sjálf er ekki keppni, en allir liðs-
menn hjóla alla vegalengdina,“ seg-
ir Svanborg í samtali við Skessu-
horn. Haldnar eru bæði formlegar
æfingar og skylduæfingar sem hver
og einn þátttakandi ábyrgist að
taka þátt í. Hópurinn sem æfir fyr-
ir ferðina er mjög þéttur og góður
vinskapur myndast innan hans, að
sögn Svanborgar. Yfir vetrarmán-
uðina æfir hópurinn saman innan-
dyra en fer svo að æfa úti um leið og
hægt er á vormánuðum. Síðastlið-
inn laugardag fór fram ein af skyldu-
æfingum liðsins þar sem hjólað var
frá Akranesi og inn að Fossá í Hval-
firði og aftur til Akraness. „Þátttak-
endur greiða allan sinn kostnað
sjálfir og hjóla á eins hjólum sem
eru sérframleidd fyrir Team Ryn-
keby. Mælst er til þess að allir liðs-
menn hafi lokið við að hjóla 2.500
km á hjólinu áður en lagt er af stað
í ferðina í lok júní. Því eru sam-
eiginlegar æfingar nauðsynlegar í
aðdraganda sjálfrar ferðarinnar.“
Kliður líkt og í baðstof-
unum forðum
Svanborg segir að fyrir sig pers-
ónulega hafi þátttaka í Team Ryn-
keby verið stór áskorun. Ófeig-
ur Gestsson, eiginmaður hennar,
hafði síðustu tvö árin glímt við al-
varleg hjartveikindi en hann lést 2.
apríl síðastliðinn. Því var ákvörðun
hjónanna um þátttöku Svanborg-
ar áskorun á sínum tíma með til-
liti til veikinda hans. Það hafi hins
vegar verið vilji Ófeigs að eigin-
konan héldi sínu striki hvernig sem
færi. „Fyrst í stað stóð þetta dálít-
ið í okkur á síðasta ári að ég myndi
undirbúa þátttöku fyrir þessa stóru
hjólaferð sem krefst mikils undir-
búnings. En fljótlega sáum við að
það gerði okkur báðum gott and-
lega. Ég keypti mér svokallaðan
hjóla-trainer sem ég hafði í fyrstu
úti í bílskúr. Eftir að ég færði hann
inn í stofu gátum við veitt hvoru
öðru félagsskap, ég hjólaði og hann
gluggaði í blöð og bækur. Ófeig-
ur heitinn hafði það á orði að þetta
hefði skapað notalega baðstofus-
temningu. Hljóðið í æfingahjólinu
hefði ekki verið ósvipað kliðnum
sem heyrðist í rokkunum í baðstof-
um landsmanna á árum áður. Nú
eftir fráfall Ófeigs ætla ég að hjóla
honum til heiðurs og er reyndar
fullviss um að hann fylgir mér og
vakir yfir,“ segir Svanborg.
Hægt að styðja
söfnunina
Félagar í Team Rynkeby standa
sjálfir straum af öllum kostnaði
sem til fellur við æfingar, búnað,
ferðalög og þátttöku í hjólaferð-
inni sjálfri. „Hver einasta króna
sem safnast í áheit og með styrkj-
um fyrirtækja og einstaklinga renn-
ur óskipt til Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna á Íslandi,“ segir
Svanborg og bætir við að styrktar-
aðilar geti valið um fjögur styrkt-
arform, allt eftir getu og fjárhag.
Á síðunni www.facebook.com/
teamrynkebyisland má finna nán-
ari upplýsingar um það hvern-
ig má leggja söfnuninni lið. Einn-
ig má þess geta að laugardaginn 4.
maí nk. mun Team Rynkeby Ísland
standa fyrir fjáröflunarkvöldverði á
Mathúsi Garðabæjar þar sem allur
ágóði rennur óskiptur til SKB. mm
Niðurstaða könnunar Maskínu á trausti til ráðherra.
Mest ánægja með störf Lilju Alfreðsdóttur
á ráðherrastóli
Í störfum sínum hefur Lilja D Alfreðsdóttir lagt mikla áherslu á verndun íslenskrar tungu. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Æfa af kappi fyrir Team Rynkeby í sumar
Hópur Íslendinga í Team Rynkeby 2018.
Sex hjólagarpar af Akranesi eru í hópi 38 Íslendinga sem taka þátt í ferðinni í sumar. Hér er hópurinn að leggja af stað inn að
Fossá í Hvalfirði á laugardaginn. Talið frá vinstri; Svanborg, Lilja, Guðrún, Guðmundur, Dóra, og Gísli.