Skessuhorn - 06.02.2019, Blaðsíða 1
Skert framlag til vegabóta á Kjalar-
nesi á þessu ári og því næsta mun
tefja að vinna við breikkun Vestur-
landsvegar um Kjalarnes hefjist af
fullum þunga eins og að var stefnt í
samgönguáætlun. Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgönguráðherra ákvað
í liðinni viku að í stað eins milljarðs
króna fjárveitingar sem ætluð var
til verksins næstu tvö ár verði hún
skorin niður í 400 milljónir króna.
Ástæðan er að sögn ráðherra til-
færsla fjármuna, en hann ítrekar að
stefnt verði að verklokum á Kjalar-
nesi árið 2022 eins og fram kemur
í samgönguáætlun. Þessi tilfærsla
fjármuna nú snýst um einn og hálf-
an milljarð vanfjármagnaðra fram-
kvæmda annars staðar. Meðal ann-
ars til að greiða fyrir 800 milljóna
króna rafvæðingu nýs Herjólfs sem
er í smíðum erlendis og hins veg-
ar til vegagerðar í Mosfellsbæ. Auk
þess var hagræðingarkrafa í þá veru
að skerða fé til málaflokksins. Þessi
tilfærsla fjármuna í Kjalarnesveg
nú kom þingmönnum á óvart. Það
staðfesti Haraldur Benediktsson,
fyrsti þingmaður NV kjördæmis, í
samtali við Skessuhorn á mánudag-
inn og kveðst hafa lesið um þessar
breytingar í fjölmiðlum fyrir helgi.
Misvísandi skýringar voru í fyrstu
viku gefnar fyrir þessum tilfærslum
á fé, svo sem þær að tafir hafi orðið
á verkhönnun og að samningar hafi
ekki náðst við landeigendur. Síðari
þátturinn var svo dreginn til baka
í yfirlýsingu. Viðbrögð við þeim
fréttum voru hörð enda eru vega-
bætur um Kjalarnes mikið tilfinn-
inga- og hagsmunamál fyrir íbúa á
Vesturlandi. Til að mynda brugðust
forsvarmenn Akraneskaupstaðar og
Borgarbyggðar strax við og sendu
frá sér yfirlýsingar þar sem þeir
gagnrýndu meinta töf á verkinu.
Hörð viðbrögð leiddu til þess að
ráðherra tók af allan vafa um verk-
efnið eftir helgina: „Framkvæmd-
ir við breikkun Vesturlandsvegar
hefjast í haust og mun þeim ljúka á
árinu 2022 eins og til hefur staðið.
Þrátt fyrir tilfærslur á fjárveitingum
í verkið milli ára mun verklokum
ekki seinka,“ segir Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgönguráðherra í sam-
tali við Skessuhorn.
„Í ljósi umræðu um Vesturlands-
veg um Kjalarnes átti ég fund með
meirihluta umhverfis- og sam-
göngunefndar og fulltrúum Vega-
gerðarinnar [síðdegis á mánudag,
innsk. blm.] vegna álitamála sem
hafa verið í umræðunni,“ segir Sig-
urður Ingi. „Tilefnið var að tryggja
að þau áform, að þrátt fyrir minni-
háttar breytingar á samgönguáætl-
un, myndu verklok ekki tefjast og
að framkvæmdirnar yrðu boðnar út
á þessu ári. Áfram verður unnið að
útfærslum sem leiða til þess að hægt
sé að fara fyrr í endurbætur á vega-
kerfinu sem verða settar fram í sam-
gönguáætlun í haust,“ segir Sigurð-
ur Ingi.
Í samgönguáætlun er lagt upp
með að vegurinn um Kjalarnes
verði svokallaður 2+1 vegur, en ekki
tvöfaldur með tveimur aðskildum
akreinum til beggja átta. Spurður
hvers vegna það er svarar ráðherra:
„Það er mikil eftirspurn eftir vega-
bótum víðs vegar um landið. Þetta
er hins vegar ódýrara leið en tvö-
földun, en við hönnun nú verður
gert ráð fyrir að síðar verði hægt að
tvöfalda veginn um Kjalarnes,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson í samtali
við Skessuhorn.
Deiliskipulag vegarins um Kjalar-
nes, sem var samvinnuverkefni Vega-
gerðarinnar og Reykjavíkurborgar,
var staðfest síðastliðið sumar. „Síð-
an hefur verkið verið í undirbúningi
og stefnt er að því að bjóða út verk-
hönnunina á næstunni en verkið er
það viðamikið og stórt að talsverð
vinna liggur í gerð útboðsgagna,“
sagði í tilkynningu frá Vegagerðinni
á mánudaginn. „Reikna má með að
í haust verði strax hafist handa við
t.d. lagningu hliðarvega sem síðan
munu nýtast til að beina umferð-
inni um þegar framkvæmdir verða í
fullum gangi við sjálfa breikkun veg-
arins,“ segir jafnframt í tilkynningu
Vegagerðarinnar. mm
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 6. tbl. 22. árg. 6. febrúar 2019 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
Gildir alla daga
frá 11–16
ef þú sækir
1.000 KR.
Lítil pizza af matseðli
0,5 lítra gos
1.500 KR.
Pizza af matseðli, miðstærð
0,5 lítra gos
Landnámssetur
í febrúar
sími 437-1600
„Farðu á þinn stað“
Í flutningi Tedda löggu
föstudaginn 16. febrúar kl. 20:00
Næstu sýningar
laugardaginn 23. febrúar kl. 20:00
sunnudaginn 24. febrúar kl. 16:00
Grettissaga Einars Kárasonar
Ekki missa af þessari sýningu
laugardaginn 9. febrúar kl. 20:00
sunnudaginn 10. febrúar kl. 16:00
Nánar um dagskrá og miðasala á
landnam.is/vidburdir
UPPSELT
ÖRFÁ SÆTI LAUS
NOKKUR
SÆTI LAUS
20 ÁR
Talsverðar vetrarhörkur voru í liðinni viku og frost fór víða á landinu um eða upp fyrir 20 gráðurnar, einkum inn til landsins. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að muna
eftir smáfuglunum. Þessa skemmtilegu mynd tók Gunnlaugur A Júlíusson, sveitarstjóri í Borgarbyggð, af grýlukertum og smáfuglum á þakbrún.
Umferð um Kjalarnes í síðustu viku.
Hluti framkvæmdafjár í veg um Kjalarnes „lánaður“ í annað