Skessuhorn - 06.02.2019, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 20192
Líkt og undanfarnar vikur voru
umferðaróhöpp vegna tíðafarsins
áberandi í dagbók Lögreglunnar á
Vesturlandi undanfarna viku. Mið-
vikudaginn 30. janúar um kl. 10:00
að morgni varð óhapp á Vestur-
landsvegi við Hafnará. Ökumaður
ók á 90 km hraða inn í snjóskafl
sem myndast hafði af brúnni yfir
ána. Hann missti stjórn á bílnum
og rann út af veginum. Lögregla
vill ítreka að á þessum árstíma þarf
að sýna sérstaka aðgát við akstur
og taka mið af aðstæðum í einu og
öllu. Síðdegis sama dag fór ann-
ar bíll út af Vesturlandsvegi und-
ir miðju Hafnarfjalli, en var dreg-
inn upp á veg aftur. Fimmtudag-
inn 31. janúar varð bílvelta á Snæ-
fellsnesvegi um sjöleytið að kvöldi.
Ferðamenn voru á ferð um land-
ið með þrjú börn í bílnum. Öku-
maður missti stjórn á honum og
velti bílnum þrjár veltur. Betur
fór en á horfðist og enginn slasað-
ist, að sögn lögreglu. Seinna sama
kvöld, um tíuleytið, varð önnur
bílvelta á Vesturlandsvegi skammt
frá Melasveitarvegi. Ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni í hálku,
hafnaði utan vegar með þeim af-
leiðingum að hann valt. Bíllinn
er mikið skemmdur og ökumað-
urinn var eitthvað lemstraður en
taldi sig óslasaðan. Hann var flutt-
ur með sjúkrabíl á Heilbrigðis-
stofun Vesturlands á Akranesi til
aðhlynningar. Að morgni sama
dags varð árekstur um kl. 8:00 að
morgni á gatnamótum Háholts og
Heiðarbrautar á Akranesi. Árekst-
urinn var minniháttar, báðir bíl-
arnir ökufærir og var ekið af vett-
vangi. Enginn meiddist. Árekst-
ur varð á Stillholti á Akranesi eft-
ir hádegi á föstudaginn, 1. febrúar.
Hann var sömuleiðis minniháttar
og engin slys á fólki.
Um fimmleytið á sunnudag varð
þriggja bíla árekstur á Vesturlands-
vegi til móts við Fiskilæk. Sjúkra-
bíll var sendur á staðinn, einn
var verkjaður í fótum en enginn
meiddist alvarlega. Leiðindaveð-
ur var á vettvangi þegar óhappið
varð, kalt í veðri, rok og aðstæður
erfiðar. Lögregla segir að töluvert
hafi verið um hraðakstur í vikunni
sem leið. Það sé mjög alvarlegt í
ljósi þess hve tíðarfarið hefur ver-
ið slæmt og aðstæður víða slæmar
til aksturs.
kgk
Nú þegar sólin er farin að hækka á lofti
gætu geislar hennar truflað ökumenn í
umferðinni og þá er gott að hafa sólgler-
augu við höndina í bílnum. En þó sólgler-
augun séu tekin úr hanskahólfinu er enn
vetur og ekki tímabært að skella rúðus-
köfunni í hólfið. Við skulum hafa hana við
höndina aðeins lengur og vera dugleg að
skafa áður en við höldum af stað út í um-
ferðina. Einnig er vert að minna fólk á að
kanna stöðuna á rúðupissinu í bílnum.
Fimmtudag, föstudag og laugardag er
spáð norðaustanátt 8-15 m/s og hvass-
ast verður með austurströndinni. Víða
verða él á norðan- og austanveður land-
inu en léttskýjað að mestu á Suður- og
Vesturlandi. Frost 0-7 stig en kaldara inn til
landsins. Á sunnudag verður fremur hæg
breytileg átt og víða bjartviðri en yfirleitt
skýjað og stöku él norðan heiða. Frost
3-10 stig en talsvert frost inn til lands-
ins. Á mánudag er spáð að gangi í hvassa
suðaustanátt með snjókomu, fyrst á suð-
vestanverðu landinu og hlýnar svo í veðri.
Slydda eða rigning verður á sunnanverðu
landinu um kvöldið og hiti 0-5 stig en
annars vægt frost.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvað er best að gera við snjóinn?“ Flest-
ir svarendur virtust lítt hrifnir af snjónum
því 34% þeirra sögðu það vera best að
moka honum í sjóinn og 24% sögðu best
að horfa á hann þiðna. 17% svarenda voru
þeirrar skoðunar að best væri að henda
snjónum í annað fólk og 9% vildu held-
ur búa til snjókarl úr honum. 6% svöruðu
því að best væri að „lita“ snjóinn gulan, 5%
vildu ekki gefa upp afstöðu sína, 3% svar-
enda sögðu að best væri að borða snjó-
inn og önnur 3% sögðu að best væri að
búa til hús úr honum.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða sjónvarpsstöð horfið þú mest á?
Sigurður Hjartarson er ungur sagnamað-
ur frá Stóra Kambi í Breiðuvík sem hefur
undanfarin tvö sumur sagt ferðafólki sög-
una af Birni Breiðvíkingakappa og þann-
ig haldið sögu nærsamfélagsins á lofti.
Sigurður er Vestlendingur vikunnar að
þessu sinni, en nánar má lesa um hann í
blaðinu í dag.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Iðnnámið vin-
sælt sem fyrr
AKRANES: Fjölbrauta-
skóli Vesturlands á Akra-
nesi hefur tekið saman smá
tölfræði á vorönn og birt á
heimasíðu skólans. Þar kem-
ur fram að nemendur eru
471 talsins á vorönn 2019.
Af þeim eru 276 karlar, eða
58,6%. Konur eru 195, eða
sem samsvarar 41,5% nem-
enda. Langflestir nemenda
við FVA eru búsettir á Akra-
nesi og nágrenni, eða 79%.
Aðrir nemendur koma víða
að en þó aðallega frá Vestur-
landi og höfuðborgarsvæð-
inu. Meirihluti nemenda við
FVA stundar dagskóla, eða
386. Auk þeirra eru 85 skráð-
ir í kvöld- og helgarnám við
skólann. Flestir stunda nám
á opinni stúdentsbraut og
náttúrufræðibraut, í kring-
um 90 nemendur á hvorri
braut fyrir sig. „Sem áður er
iðnnámið mjög vinsælt og
154 nemendur eru skráð-
ir í vélvirkjun, rafvirkjun og
húsasmíði við FVA,“ segir á
vef skólans.
-kgk
REKO á
föstudaginn
AKRANES: Næsta afhend-
ing REKO Vesturlandi á mat
verður við Matarbúr Kaju,
Stillholti 23 á Akranesi, milli
kl. 17 og 18, föstudaginn 8.
febrúar. Inn í þennan við-
burð á Facebook setja fram-
leiðendur upplýsingar um
vöruframboð sitt og verð og
þar geta neytendur pantað
beint af þeim. „Athugið að
einungis er um afhendingu
að ræða þennan dag og verð-
ur því að vera búið að panta
og greiða fyrir afhendinguna
áður,“ segir í tilkynningu frá
REKO Vesturlandi.
-mm
Hlíðasmára 19, 2 hæð, 201 Kópavogur
Sími: 534 9600 | Netfang: heyrn@heyrn.is
Það er ófært að
heyra illa, gríptu
til þinna ráða og
fáðu heyrnar-
tæki til reynslu
Löggiltur
heyrnar-
fræðingur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Í tölum Þjóðskrár um mannfjölda-
breytingu frá 1. desember til 1.
febrúar sl. kemur fram að íbú-
um fjölgaði hlutfallslega mest í
Skorradalshreppi, eða um 8,6%
en íbúum þar fjölgaði úr 58 í 63
íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega
mest í Árneshreppi, um 5% og í
Borgarfjarðarhreppi um 2,8%. Þá
fækkaði íbúum í 29 af 72 sveitarfé-
lögum landsins frá 1. desember.
Fækkun hefur orðið í þremur
landshlutum frá 1. desember. Mest
fækkaði á Vesturlandi eða um 33
íbúa sem jafngildir 0,2% fækkun.
Ennfremur var lítilsháttar fækk-
un á Austurlandi og Vestfjörðum.
Hlutfallslega mest fjölgun varð á
höfuðborgarsvæðinu og Suður-
nesjum eða um 0,4%. Íbúum höf-
uðborgarsvæðisins fjölgaði um 824
og íbúum á Suðurnesjum um 121
íbúa.
mm
Íbúum á Vesturlandi fækkaði
mest síðustu þrjá mánuði
Hlutfallsleg breyting íbúafjölda eftir landshlutum frá 1. desember til 1. febrúar sl.
Umferðaróhöpp vegna tíðarfarsins