Skessuhorn - 06.02.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Lengi getur lítið minnkað
Að mínu mati fellur það undir áhættusækni að aka um suma íslensku
þjóðvegina. Ekki eingöngu að þeir eru þröngir og ósléttir, heldur eru
þeir lagðir um svæði þar sem veður geta orðið býsna válynd. Við þekkj-
um jú vindhviður við Hafnarfjall og á Kjalarnesi þar sem mannskaðaveð-
ur eru reglulega nokkrum sinnum á ári. Við þetta bætist svo að fimmti
hver ökumaður er útlendingur með litla eða enga reynslu af akstri við
þessar aðstæður. Þegar allt þetta fer saman er bókstaflega galið að ríkis-
valdið skuli ekki líta á það sem forgangsmál að hraða tvöföldun þessara
stofnvega og aðgreina akstursleiðir.
Það hálfpartinn þyrmdi yfir mig í síðustu viku þegar fréttir bárust
af því að þessi eini milljarður króna sem áætlað hafði verið í fram-
kvæmdir á Kjalarnesi næstu tvö árin var orðinn að 400 milljónum. Með
einni ákvörðun ráðherra, einu pennastriki, voru teknar af verkefninu
600 milljónir króna sem tefur fyrir að verkið komist á þann skrið sem
alþingismenn höfðu samþykkt. Í fyrstu var klénn fyrirsláttur notaður
sem ástæða. Það var nefnilega ekki byrjað að hanna veginn og í ljósi
þess var eðli málsins samkvæmt ekki búið að ræða við þá landeigen-
dur sem leggja þurfa land undir hann. Í einfeldni minni efaðist ég ekki
um að Vegagerðin væri búin að hanna nýjan veg og við værum innan
tíðar að sjá fram á endurnýjun fyrsta hluta vegarins frá Mosfellssveit
og upp að Hvalfirði. En, nei, það var draumsýn. Eftir því sem málin
skýrðust síðustu daga kom í ljós að ástæða þessarar geðshræringar sem
greip um sig var sú að ráðherra hafði „gleymt“ að fjármagna ýmis verk,
meðal annars rafvæðingu Herjólfs. Hann þurfti að fá peninga að láni,
á Kjalarnesi. Þarna stendur hnífurinn í kúnni. Þingmenn sem eru jú
fjárveitingavaldið og semja samgönguáætlanir voru smánaðir af fram-
kvæmdavaldinu sem greip framí þeirra verk, að þeim forspurðum. Svo
var Vegagerðin, aðstoðarmenn og fleiri settir í það á mánudaginn að
semja hrútskýringar þegar allt var orðið vitlaust út af seinkun fram-
kvæmda. En þá var kippt í einhverja spotta og við fáum hálfan annan
veg á Kjalarnesi 2022 jafnvel þótt klukkan verði færð aftur um einn
tíma, eins og skopmyndateiknari vor dregur svo skemmtilega upp í
teikningu í blaðinu í dag.
Tvisvar í liðinni viku þurfti ég að taka þá áhættu að skreppa til Reyk-
javíkur. Var einn þeirra níu þúsund ökumanna sem þar fara um dagle-
ga og leggja líf sitt og limi í töluverða hættu. Þarna var lágarenningur
þannig að skyggni var takmarkað en umferðin engu að síður býsna stíf.
Mér varð hugsað til þess að fimmti hver bíll sem ég mætti væri ekið af
erlendum ferðamönnum. Varð hugsað til suður-kóresku mannanna sem
við tókum fréttaviðtal við fyrir skömmu, þar sem þeir höfðu ekið út úr
hringtorgi í Mosó, líklega í fyrstu eða annarri beygjunni sem þeir þurftu
að taka frá því þeir leigðu bílinn. Þeir skyldu bara ekkert í því hvernig
Íslendingar færu að við aksturinn! Auðvitað erum við sem hér höfum
alist upp orðin nokkuð vön akstri við erfiðar aðstæður. En vandamálið
er hinsvegar alltaf að stækka. Umferðin eykst en vegurinn breytist ek-
kert! Sá er munurinn.
Þessi skilaboð ráðherrans sem tók af verkefninu Kjalarnesvegi 600
milljónirnar í síðustu viku til að fjármagna aðrar framkvæmdir, eru
slæm. Skilaboð sem við eigum ekki undir nokkrum kringumstæðum að
sætta okkur við. Réttur okkar á tvöföldum Vesturlandsvegi alla leið í
Borgarnes er kristalskýr og ég er ekki tilbúinn til að gefa minnsta afs-
látt af honum.
Magnús Magnússon
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, hyggst leggja
til þriggja ára átak til að flýta þrí-
fösun rafmagns í væntanlegri fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir
árin 2020-2024. Í áætluninni verð-
ur lögð áhersla á að ljúka þrífös-
un á Mýrum og í Skaftárhreppi. Í
tilkynningu á vef Stjórnarráðsins
í síðustu viku sagði að á Mýrum
færi saman brýn þörf vegna land-
búnaðar og sú staðreynd að unnið
væri að útboði á lagningu ljósleið-
ara. Ná megi fram samlegðaráhrif-
um með því að leggja þriggja fasa
rafmagn samhliða ljósleiðarakapl-
inum. Svæðið sem um ræðir nær
frá Hvítárósum vestur að sveitar-
félagamörkum Borgarbyggðar og
Eyja- og Miklaholtshrepps.
Tillaga Þórdísar Kolbrúnar er í
samræmi við stjórnarsáttmála rík-
isstjórnarinnar, þar sem kveðið er
á um að flýta þrífösun rafmagns.
Átakið hefur einnig beina skírskot-
un til byggðaáætlunar sem sam-
þykkt var á Alþingi síðasta sum-
ar, en þar var einnig lögð áhersla
á þrífösunina. Meira en þriðjungur
dreifikerfis RARIK er einfasa í dag.
Takmarkar það bæði flutningsgetu
og einnig hve öflugan rafbúnað er
hægt að nota á hverjum stað. Þrí-
fösun er því talin mikilvægt með
tilliti til orkuskipta, byggðasjónar-
miða, ferðaþjónustu, landbúnaðar
og annarra atvinnutækifæra.
Samkvæmt núgildandi áætlun
yrði þrífösun rafmagns ekki lok-
ið fyrr en árið 2035, eða eftir 16
ár. Tillaga Þórdísar gengur út á
að leggja aukið fé til verkefnis-
ins, 80 milljónir á ári í þrjú ár frá
2020-2022 og breytta forgangs-
röðun. Í stað þess að forgangsraða
eftir aldri núverandi raflína og álagi
verði einnig horft til þess hve mikil
þörfin fyrir þrífösun er á hverjum
stað og hvort ná megi fram sam-
legðaráhrifum með áætlunum um
ljósleiðaralagningu. „Þessi endur-
nýjun á dreifikerfinu þjónar bæði
umhverfinu og atvinnulífi en lengi
hefur verið kallað eftir því að hún
gengi hraðar fyrir sig. Ég tel því
mikilvægt að setja aukinn kraft í
hana og einnig að tekið sé tillit til
fleiri þátta við forgangsröðun verk-
efna til að tryggja að fjármunum sé
varið með sem skynsamlegustum
hætti,“ segir Þórdís Kolbrún.
Þegar litið er til kostnaðar vegna
átaksins ber að hafa í huga að í öll-
um tilvikum er um að ræða að flýta
framkvæmdum sem hvort sem er
þarf að ráðast í seinna við nauð-
synlega endurnýjun dreifikerfisins,
að því er fram kemur á vef Stjórn-
arráðsins.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Ráðherra vill flýta
þrífösun rafmagns
Mýrar og Skaftárhreppur í fyrsta áfanga verkefnisins
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra.
Á Mýrum fer saman brýn þörf á þrífösun og sú staðreynd að unnið er að útboði
vegna lagningar ljósleiðara. Ná megi fram samlegðaráhrifum með því að leggja
þriggja fasa rafmagn samhliða ljósleiðara.
Uppbygging ehf. hefur náð samn-
ingum um að byggja Reebok Fit-
ness líkamsræktarstöð og heilsu-
lind á Smiðjutorgi á Akranesi. Frá
þessu er greint á Facebook-síðu
Uppbyggingar. Líkamsræktarstöð
og heilsulind Reebok Fitness verð-
ur um 1800 fermetrar að flatarmáli
og stefnt er að opnun hennar um
mitt ár 2020. „Í boði mun verða
allt það nýjasta sem í boði er í dag
í heilsurækt, fullkomnustu tæki og
salir sem völ er á, sauna og gufuböð
ásamt heitum og köldum pottum,“
segir á síðu Uppbyggingar. Þar seg-
ir enn fremur að fleiri stórir aðilar
séu að skoða aðkomu að verslunar-
og þjónustumiðstöðinni sem fengið
hefur nafnið Smiðjutorg.
Eigendur Uppbyggingar ehf.
eru hjónin Engilbert Runólfsson
og Kristín Minney Pétursdóttir. Í
viðtali við Skessuhorn um miðjan
janúar síðastliðinn sagði Engilbert
frá því að þau hyggðust hefja fram-
kvæmdir við Smiðjutorg um leið og
skipulagsferlinu lyki. Vonuðust þau
til að það yrði nú í vor, eftir um það
bil þrjá mánuði.
kgk
Uppbygging hyggst reisa
líkamsræktarstöð á Akranesi
Teikning að Smiðjutorgi, verslunar- og þjónustumiðstöð við Smiðjuvelli á Akranesi.