Skessuhorn - 06.02.2019, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 20196
Allt í sóma við
skólana
AKRA/BORG: Lögregla var
við eftirlit við grunn- og leik-
skóla í landshlutanum í vikunni
sem leið. Þá er fylgst með um-
ferðinni, kannað hvort börn
séu ekki örugglega spennt í bíl-
belti og fleira í þeim dúr. Síð-
astliðinn föstudag var eftirlit
við báða grunnskólana á Akra-
nesi og leikskólann Vallarsel,
sem og Grunnskólann í Borg-
arnesi. Á mánudagsmorgun var
sömuleiðis eftirlit við Grunda-
skóla, Brekkubæjarskóla og
leikskólann Vallarsel á Akra-
nesi. Í dagbók lögreglu kemur
fram að allt hafi verið í sóma
við skólana og er lögregla að
vonum ánægð með það.
-kgk
Hestastóð á vegi
SNÆF: Eins og í síðustu viku
var tilkynnt um lausagöngu
hrossa í vikunni sem leið. Að
þessu sinni var lögregla lát-
in vita af 30 hrossa stóði sem
var laust á Snæfellsnesvegi,
skammt frá Þursstaðavegi. Tel-
ur lögregla að sama sé uppi á
teningnum í síðustu viku, að
hross hafi sloppið úr girðing-
um sem fennt hafi niður. Bið-
ur lögregla vegfarendur að
hafa augun opin og passa sig
á hrossum sem gætu hafa villst
út á þjóðveg og bændur sömu-
leiðis að athuga með hross sín.
-kgk
Bókað vegna
vegaeftirlits
VESTURLAND: Nokkuð er
um það að höfð séu afskipti
af atvinnutækjum við vegaeft-
irlit lögreglu. Við vegaeftir-
lit hafa eftirlitsmenn auga með
því hvernig gengið er frá farmi
og fylgjast með hvíldarákvæð-
um atvinnubílstjóra. Þrjú lög-
regluumdæmi annast eftirlitið
í sameiningu fyrir landið allt;
Lögreglan á Vesturlandi, Lög-
reglan á Norðurlandi eystra
og Lögreglan á Suðurlandi.
Eitt mál kom upp á Vestur-
landi í vikunni þar sem brot-
in var reglugerð um frágang
og merkingu farms. Að sögn
lögreglu er alltaf töluvert um
bókanir sem tengjast vega-
eftirlitinu. Gerist menn upp-
vísir að lögbrotum sem tengj-
ast hleðslu og merkingu farms
eða hvíldarákvæðum, til dæm-
is, fá þeir á sig kæru og þurfa
að greiða sekt.
-kgk
Rafrettur
til umsagnar
LANDIÐ: Reglugerð um
merkingar á umbúðum raf-
rettna og áfyllinga og efni upp-
lýsingabæklings sem fylgja skal
rafrettum og áfyllingum hef-
ur verið birt til umsagnar á
Samráðsgátt stjórnvalda. Um-
sagnarfrestur er til 13. febrúar
næstkomandi. „Í reglugerðinni
er fjallað um merkingar á um-
búðum rafrettna og áfyllinga
og efni upplýsingabæklings
sem fylgja skal slíkum vörum.
Lagastoð reglugerðarinnar er
að finna í 2. mgr. 16. gr. laga
nr. 87/2018, um rafrettur og
áfyllingar fyrir rafrettur,“ seg-
ir í tilkynningu frá heilbrigðis-
ráðuneytinu.
-mm
Bíll brann á
Innnesvegi
HVALF.SV: Lögreglunni á Vest-
urlandi og Slökkviliði Akraness
og Hvalfjarðarsveitar barst út-
kall vegna elds í bíl á Innnes-
vegi skammt sunnan við Akranes,
kl. 18:00 á föstudaginn. Að sögn
lögreglu hafði eigandi skilið bíl-
inn eftir í lausagangi og varð var
við eld við hægra þokuljós þegar
hann kom að honum aftur. Eig-
andinn náði að bjarga verðmæt-
um úr bílnum en eldurinn breidd-
ist hratt út og bíllinn brann að lok-
um til kaldra kola. Að sögn lög-
reglu er ekki hægt að segja til um
orsök brunans að svo stöddu. Bíll-
inn verður skoðaður hjá bílaum-
boði og tryggingafélagi eigandans.
-kgk
Ók um þéttbýlið
á snjósleða
HVANNEYRI: Lögregla hafði
afskipti af manni sem ók á snjó-
sleða á Hvanneyri 30. janúar sl.
Ökumaður sleðans reyndist vera
unglingur og haft var samband
við foreldra hans. Lögregla minn-
ir á að óheimilt er að aka snjósleða
í þéttbýli og að slíkt getur skapað
hættu. -kgk
Styrkir til vatns-
veitna á lögbýlum
LANDIÐ: Matvælastofnun hef-
ur opnað fyrir umsóknir um styrki
vegna vatnsveitna á lögbýlum í
samræmi við reglugerð um fram-
lög úr Jöfunarsjóði sveitarfélaga.
Umsóknum um stuðning skal
skilað inn rafrænt á Bændatorginu
eigi síðar en 1. mars nk. Umsókn-
arfrestur verður ekki framlengdur.
Fylgigögn sem skila þarf með um-
sókn eru mat Búnaðarsambands á
þörf býlis fyrir framkvæmd, kostn-
aðar- og framkvæmdaráætlun og
ef um byggingu er að ræða þurfa
að fylgja með teikningar. „Stuðn-
ingur fyrir hverja framkvæmd
getur að hámarki numið 44% af
stofnkostnaði við vatnsveitu til
heimilis- og búsþarfa,“ segir í til-
kynningu. -mm
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
hafa ákveðið að ráðast í verkefni á
næstunni sem felst í að bjóða starf-
andi fyrirtækjum í landshlutan-
um aðstoð við að meta hvar tæki-
færi þeirra liggja til að bæta ár-
angur sinn í rekstrinum. Samið
hefur verið við ráðgjafafyrirtæk-
ið Áttir ehf. um að vinna að verk-
efninu undir stjórn SSV. „Starf-
andi fyrirtæki eru burðarás verð-
mætasköpunar í samfélaginu. Það
skiptir því miklu máli að þau séu
stöðugt að nýta öll möguleg tæki-
færi til að bæta rekstur sinn,“ segir
Páll Kr Pálsson, hagverkfræðingur
hjá Áttum ehf.
Ólafur Sveinsson er forstöðu-
maður Atvinnuráðgjafar Vestur-
lands. Hann segir að fyrirkomu-
lag verkefnisins verði þannig að
haldnir verða kynningarfundir á
öllum þéttbýlisstöðum á Vestur-
landi, þ.e. Akranesi, Borgarnesi,
Búðardal, Stykkishólmi, Grund-
arfirði og Snæfellsbæ. „Þar ætlum
við að kynna verkefnið og fyrir-
tækjum verður boðið að fá ráð-
gjafa frá Áttum ehf. í heimsókn
til að meta tækifæri viðkomandi
fyrirtækis til að bæta rekstur sinn
og gera verkefnistillögu. Við áætl-
um að fjöldi beiðna á öllu svæðinu
verði þetta tólf til átján fyrirtæki,“
segir Ólafur.
Eftir að fyrirtækin hafa sótt um
aðstoð munu ráðgjafar heimsækja
fyrirtækin og gera tillögu um verk-
efni og tilboð í vinnslu þeirra. Fyr-
irtækin verða rukkuð um 25 þús-
und krónur fyrir tilboðið, sem þau
fá endurgreidd ef þau láta vinna
verkefnið. Ákveði fyrirtæki að láta
vinna hjá sér verkefni, þá gerir fyr-
irtækið samning við Áttir ehf. þar
um og greiðir fyrir vinnuna.
Aðkoma SSV verður með þeim
hætti að samtökin greiða fyrir
fundi og ferðkostnað til kynning-
ar á verkefninu og kostnað vegna
heimsóknar og tilboðsgerðar um
verkefni í fyrirtækjum sem þess
óska.
„Lögð verður áhersla á aðgerðir
sem skila hverju þátttökufyrirtæki
sýnilegum árangri þegar á árinu
2019. Meginsvið aðgerða verða
lækkun kostnaðar, fjárhagsleg end-
urskipulagning, söluaukning, út-
færsla nýrra afurða (vörur og/eða
þjónusta) og gerð rekstraráætlun-
ar til næstu þriggja ára,“ segja þeir
Páll Kr Pálsson og Ólafur Sveins-
son.
Nánar má lesa um áhersluþætti í
ráðgjöfinni, á hverju þessara meg-
insviða, á vef Átta ehf; www.attir.
is. Þá vísast í auglýsingu hér aftar í
blaðinu um kynningarfundina sem
framundan eru í næstu viku.
mm
Ráðgjafarverkefni að hefjast fyrir
starfandi fyrirtæki á Vesturlandi
Stefnt að bættum rekstri
og betri afkomu
Páll Kr Pálsson og Ólafur Sveinsson.