Skessuhorn - 06.02.2019, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 7
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2019
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudagur 14. febrúar
Föstudagur 15. febrúar
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
9
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur, hefur end-
urútgefið bókina LífsKraftur í al-
gjörlega nýrri mynd. „Allir sem
greinast með krabbamein á aldr-
inum 18-45 ára og fjölmargir fleiri
fá bókina afhenta sér að kostnaðar-
lausu en hún liggur einnig frammi
á öllum spítölum landsins,“ segir í
tilkynningu.
„Bókin kom fyrst út árið 2003 og
er þetta er fimmta útgáfan af Lífs-
Krafti en við tókum mið af gömlu
bókinni en ákváðum að endurskrifa
hana með það í huga að hún höfð-
aði betur til ungs fólks. Hún er
eftir sem áður handbók um flest
sem viðkemur krabbameini og þær
hugleiðingar sem fólk hefur um
krabbamein,” segir Hulda Hjálm-
arsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts,
í samtali við Skessuhorn. „Undir-
titill bókarinnar er einmitt Fokk
ég er með krabbamein sem er jú
oftast það fyrsta sem kemur upp í
kollinn á fólki þegar það greinist
með krabbamein,“ segir Hulda enn
fremur.
LífsKraftur inniheldur hagnýtar
upplýsingar fyrir einstaklinga sem
greinst hafa með krabbamein, að-
standendur þeirra og vini. Tilgang-
ur þessarar útgáfu er að safna saman
á einn stað upplýsingum, fræðslu-
efni og bjargráðum sem koma að
gagni fyrir ungt fólk með krabba-
mein og aðstandendur.
mm
Kraftur gefur út bókina LífsKraft
Síðastliðinn fimmtudag var í versl-
unarmiðstöðinni við Smiðjuvelli á
Akranesi opnuð samsýning nem-
enda á þriðja ári við umhverfis-
skipulagsbraut LbhÍ á Hvanneyri
og nemenda á þriðja ári í arkitekt-
úr við hönnunar- og arkitektúr-
deild Listaháskóla Íslands. Efnt er
til þessarar sýningar í samstarfi við
Akraneskaupstað enda verkin sem
til sýnis eru tengd Akranesi, eink-
um Sementsreitnum, sem nú geng-
ur í gegnum gríðarlegar breyting-
ar.
Á sýningunni eru til sýnis nokkur
verkefni, teikningar og módel, sem
höfðu það að markmiði að nem-
endur skólanna hleyptu nýju lífi í
jarðveginn og gáfu hugmynd um
þá fjölmörgu möguleika sem geta
sprottið upp við slíka umpólun,
eins og Sementsreiturinn gengur
nú í gegnum. Sýningin verður opin
í verslanamiðstöðinni til 14. febrú-
ar, en meðfylgjandi myndir voru
teknar við opnunina sl. fimmtudag.
mm
Samsýning um arkitektúr og Sementsreit opnuð á Akranesi
Ritstjórn LífsKrafts í útgáfuhófi sem haldið var sl. mánudag.