Skessuhorn - 06.02.2019, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 20198
Heimsóttu
lögreglu
AKRANES: Í síðustu viku
kom hópur af krökkum úr
félagsmiðstöðinni Arnardal
á Akranesi í heimsókn á lög-
reglustöðina þar í bæ. Far-
ið var um alla stöðina og hún
skoðuð, auk þess sem krakk-
arnir fengu að kíkja inn í lög-
reglubílana, skoða fangaklef-
ana og spjalla við lögregluna.
Að lokum fengu allir krakk-
arnir endurskinsmerki að gjöf.
-kgk
Átak um upp-
runamerkingar
LANDIÐ: Í liðinni viku skrif-
uðu forsvarsmenn Bændasam-
taka Íslandi, Neytendasam-
takanna, Samtaka verslun-
ar og þjónustu og atvinnu-
málaráðherrra undir sam-
komulag um að gera gang-
skör í því að bæta merkingar
á matvælum og tryggja þann-
ig betur rétt neytenda til upp-
lýsinga um uppruna, fram-
leiðsluhætti, lyfjanotkun og
umhverfisáhrif þeirra. Sam-
kvæmt samkomulaginu verð-
ur skipaður samráðshópur
með fulltrúum fyrrgreindra
aðila um að ráðast í átaksverk-
efni um merkingar og hvernig
betur megi upplýsa neytend-
ur og fyrirtæki um réttindi og
skyldur á skýran og einfaldan
hátt, í samræmi við alþjóðleg-
ar skuldbindingar. Verkefnið
er tímabundið í eitt ár og að
þeim tíma liðnum verður ár-
angurinn metinn og ákvörðun
tekin um framhaldið. -mm
Frumvarp um
burðarpoka
LANDIÐ: Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverfis-
og auðlindaráðherra, mælti í
síðustu viku fyrir frumvarpi
til laga um breytingu á lögum
um hollustuhætti og meng-
unarvarnir sem varðar notk-
un burðarpoka. Lagt er til í
frumvarpinu að frá og með 1.
júlí á þessu ári verði óheim-
ilt að afhenda alla burðar-
poka, þar með talið burðar-
poka úr plasti, án endurgjalds
á sölustöðum vara og skuli
gjaldið vera sýnilegt á kassa-
kvittun. Frá og með 1. janú-
ar 2021 verði síðan óheim-
ilt fyrir verslanir að afhenda
burðarpoka úr plasti, hvort
sem er með eða án gjalds.
Bannið sjálft á þannig við um
plastpoka en ekki burðarpoka
úr öðrum efnum. „Banni við
burðarplastpokum er ekki
ætlað að vera allsherjarlausn
á plastvandamálinu, held-
ur ein aðgerð af mörgum,“
segir ráðherrann. „Verkefnið
fram undan er umfangsmikið
og ýmiss konar lausnir nauð-
synlegar, plastpokarnir eru
þar einungis eitt skref. Hér
er hins vegar um mikilvægan
áfanga að ræða.“
Tilkynning frá
Pírötum vegna
ráðninga
LANDIÐ: „Píratar hafa ráð-
ið í þrjár nýjar stöður hjá
flokknum,“ segir í tilkynn-
ingu. „Berglind Jónsdóttir
hefur verið ráðin kynningar-
og miðlunarstjóri Pírata, Ró-
bert Ingi Douglas sem upp-
lýsingastjóri og Hans Benja-
mínsson sem skrifstofustjóri.
Þau vinna öll á skrifstofu Pí-
rata, ásamt Erlu Hlynsdóttur
framkvæmdastjóra flokksins,
og mynda sem heild öflugt
teymi sem mun styrkja starf
Pírata um allt land, segir í til-
kynningu. -mm
Hagkaup lokað
BORGARNES: Í árshluta-
uppgjöri Haga sem birt var á
miðvikudaginn í síðustu viku
kemur fram að í apríl næst-
komandi rennur leigusamn-
ingur Hagkaups í Borgarnesi
út. Ekki er fyrirhugað að end-
urnýja samninginn og verð-
ur versluninni því lokað eftir
12 ára rekstur. Verslunin var
opnuð vorið 2007 og var með-
fylgjandi mynd tekin þá. -arg
Mótmæla frest-
un Kjalarness
BORGARBYGGÐ: „Byggð-
arráð Borgarbyggðar gerir al-
varlegar athugasemdir við að
teknar hafi verið ákvarðanir
um að flytja fjármagn frá fyrir-
hugaðri uppbyggingu vegarins
á Kjalarnesi til annarra verk-
efna eins og fréttir hafa bor-
ist af í fjölmiðlum.“ Í ályktun
byggðarráðs frá því fyrir helgi
segir að slík ákvörðun muni
þýða mikla og óásættanlega
seinkun á nauðsynlegum sam-
göngubótum milli höfuðborg-
arsvæðisins og Vesturlands
miðað við þær áætlanir sem
kynntar hafa verið af yfirvöld-
um samgöngumála. „Óum-
deilt er að vegurinn um Kjal-
arnes er hættulegur og hann
ber ekki þá miklu umferð sem
um hann fer. Ástand hans er
því orðin veruleg hindrun í
uppbyggingu atvinnulífs og
samfélaga í nágrannabyggð-
um höfuðborgarsvæðisins á
Vesturlandi þegar það er borið
saman við gæði annarra sam-
gönguæða milli höfuðborgar-
svæðisins og nágrannabyggða.
Nauðsynlegt er því að fá upp-
lýst á hvaða forsendum fjár-
magn er flutt frá fyrirhuguð-
um framkvæmdum á Kjalar-
nesi til annarra verkefna,“ seg-
ir í ályktuninni.
-mm
„Grunnskóli Borgarfjarðar er með
gæðastarf þar sem stuðst er við lög,
reglugerðir, aðalnámskrá og ann-
að sem lögum samkvæmt snýr að
þeim þáttum skólastarfs sem metn-
ir voru,“ segir í frétt um starfsemi
Grunnskóla Borgarfjarðar sem
byggir á ytra mati sem Mennta-
málastofnun gaf nýverið út. Ytra
mat var framkvæmt á skólanum
vorið 2018 og voru fjórir þætt-
ir metnir; þ.e. stjórnun, nám og
kennsla, innra mat og skólabrag-
ur. „Sérstaða skólans er m.a. mikil
umhverfismennt t.d. með þátttöku
í „Skólar á grænni grein“ og verk-
efninu „Leiðtoginn í mér.“ Báðir
þessi þættir eru sagðir áhrifaríkir
og tengja vel saman einkunnarorð-
in; „gleði, heilbrigði og árangur,“
segir í umsöng stofnunarinnar.
Skoðuð voru fyrirliggjandi gögn
um starfsemi skólans en matið
byggir einnig á vettvangsheim-
sóknum matsaðila og á viðtölum
við nemendur, starfsfólk skóla og
foreldra. mm
Grunnskóli Borgarfjarðar
kom vel út úr ytra mati
Slysavarnadeildin Líf á Akranesi
gerði síðastliðinn mánudagsmorg-
un talningu á notkun endurskins-
merkja í bænum. Niðurstaðan var
sláandi: „Því miður er staðan sú að
notkun hangandi endurskinsmerkja
er sáralítil. Endurskin á útifatnaði,
mest á snjógöllum, virðist vera á
pari við þá sem voru ekki með nein
merki. Allt of mikið er af algerlega
svartklæddu fólki án endurskins-
merkja á ferðinni því miður,“ segir
í frétt frá Líf. „Notum endurskins-
merkin! Þau gera gagn hangandi á
fötum, en ekki ofan í skúffum. Lát-
ið börnin nota endurskinsvestin.
Þau sjást langbest,“ segir í áskorun
frá Slysavarnadeildinni Líf. mm
Lítil notkun endurskinsmerkja og
margir svartklæddir
Líkamsárás sem starfsmaður Mat-
vælastofnunar varð fyrir í eftirliti
hefur verið kærð til lögreglu. „Við
komu á eftirlitsstað hrinti viðkom-
andi aðili starfsmanni stofnunar-
innar og barði í höfuð og herðar
með plastíláti,“ segir í tilkynningu.
Matvælastofnun hefur ítrekað haft
afskipti af hundahaldi mannsins,
en tilefni heimsóknar var hins veg-
ar eftirlit með nágrönnum hans.
Tveir aðrir starfsmenn stofnunar-
innar voru viðstaddir árásina ásamt
lögreglumanni sem var með í för
vegna fyrri reynslu stofnunarinnar
af viðkomandi aðila. Gripu þeir inn
í atburðarás og urðu meiðsli eftir-
litsmanns stofnunarinnar ekki al-
varleg.
Í almennum hegningarlögum
segir að hver sá sem ræðst með
ofbeldi eða hótunum um ofbeldi
á opinberan starfsmann þegar
hann er að gegna skyldustarfi sínu
eða sem á sama hátt leitast við að
hindra framkvæmd slíks starfs skal
sæta fangelsi allt að sex árum. Jafn-
framt segir að beita megi sektum ef
brot er smáfellt.
„Allt ofbeldi eða hótanir um of-
beldi í garð starfsmanna Matvæla-
stofnunar verður kært til lögreglu,“
segir í tilkynningu frá stofnuninni
þar sem mál þetta er litið alvarleg-
um augum. mm
Matvælastofnun kærir líkamsárás
sem starfsmaður varð fyrir
Framleiðsla nýrra vegabréfa hófst
hjá Þjóðskrá Íslands 1. febrúar. Eldri
vegabréf halda gildi sínu þar til þau
renna út og því þurfa handhafar vega-
bréfa ekki að sækja um ný nema eldri
vegabréf séu runnin út. Ný útgáfa
vegabréfa hefur verið í undirbún-
ingi síðan 2015. Stofnkostnaður er
um 200 milljónir króna og var fjár-
magnaður af Landamærasjóði ESB,
dómsmálaráðuneytinu og Þjóðskrá
Íslands.
Helstu breytingar felast í auknu
öryggi í framleiðslukerfi og vega-
bréfabókum en útlit breytist einn-
ig. Helstu útlitsbreytingarnar felast
í landslagsmyndum á hverri opnu, úr
öllum landshlutum, ásamt staðsetn-
ingu þeirra á korti. Heiðlóan er jafn-
framt áberandi, en kápan heldur bláa
litnum sem hefur einkennt íslensk
vegabréf.
Með nýrri útgáfu af íslenska vega-
bréfinu er verið að auka öryggi í út-
gáfu vegabréfa á Íslandi í samræmi
við auknar kröfur og alþjóðlega
staðla. Undirbúningur fyrir útboð
hófst fyrir um tveimur árum en um
var að ræða þrenns konar útboð, þ.e.
á framleiðslukerfi, vegabréfabókum
og traustvottorðakerfi. Að öðru leyti
helst öll þjónusta við útgáfu vega-
bréfa óbreytt. Sótt er um vegabréf hjá
embætti sýslumanna og verð á vega-
bréfum helst óbreytt. Afgreiðslutími
vegabréfa er tveir virkir dagar. Nán-
ari upplýsingar um útgáfu vegabréfa
má finna á vegabref.is. mm
Ný útgáfa af íslenskum vegabréfum