Skessuhorn - 06.02.2019, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 9
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
4
40
4
0
0
0
Í hverju verður
þú meistari?
@
is
la
nd
sb
an
kiTaktu þátt í Meistaramánuði Íslandsbanka
í febrúar. Skráðu þig í sparnað og náðu
þínum fjárhagslegu markmiðum.
islandsbanki.is/meistari
Meistaramánuður Íslandsbanka
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Lýsing á
deiliskipulagstillögu
Narfastaðalandi
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum
þann 22. janúar 2019 lýsingu á deiliskipulagstillögu sbr. 40.gr
skipulagslaga nr. 123/2010.
Lýsingartillagan er fyrir Narfastaðaland 4.no.2A í
Hvalfjarðarsveit.
Landið er 28,3 ha en deiliskipulagið er 1,5 ha hluta þess
lands.
Skipulagssvæðið afmarkast af byggingarreitum gróðurhúsa,
íbúðarhúss, heimreið og bílaplani.
Kynning lýsingar á deiliskipulagstillögu verður birt á heimasíðu
sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is og einnig í landsmála-
og héraðsblaði.
Vinsamlega skilið ábendingum og athugasemdum inn fyrir
1.mars 2019 á skrifstofu Umhverfis- og skipulagsfulltrúa
Innrimel 3, 301 Akranesi.
Kynningarfundur verður um skipulagslýsinguna þann 8.febrúar
nk. á milli kl 11.00 – 14.00 í fundarherbergi Hvalfjarðarsveitar
að Innrimel 3, 301 Akranes.
Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn
var mánudaginn 4. febrúar. Af því
tilefni er þessi vinnuvika tileinkuð
fræðslu um ýmislegt sem viðkemur
krabbameinum og forvörnum gegn
þeim. Fyrirtæki eru hvött til að hafa
jákvæð áhrif á heilsu starfsfólks síns
og Krabbameinsfélagið býður þing-
mönnum í heimsókn föstudaginn
8. febrúar til að taka þátt í örnám-
skeiðinu „Allt sem þú þarft að vita
um krabbamein.“
Á Alþjóðlega krabbameinsdeg-
inum 2019 hefst þriggja ára herferð
krabbameinsfélaga um allan heim
þar sem fyrirtæki, samfélög og ein-
staklingar eru hvattir til að sýna
stuðning, láta í sér heyra og þrýsta á
stjórnvöld um aðgerðir til að fækka
krabbameinstilvikum. Slagorð al-
þjóðlegu herferðarinnar er: „Ég er...
og ég ætla...“ þar sem hverjum fyrir
sig gefst færi á að lýsa sinni leið til að
vinna gegn krabbameinum.
Krabbameinsfélagið hefur fengið
fyrirtæki til liðs við sig sem skuld-
binda sig til þess að láta til sín taka í
baráttunni gegn krabbameinum með
því að miðla upplýsingum til starfs-
manna sinna og stuðla að heilsusam-
legu vinnuumhverfi.
Þriðji hver veikist
Einn af hverjum þremur Íslending-
ur fær krabbamein einhvern tíma
á ævinni. Í dag látast 9,6 milljón-
ir manna úr krabbameinum í heim-
inum á ári hverju og á Íslandi eru
krabbamein önnur algengasta dán-
arorsökin. Árið 2018 létust tæplega
700 manns vegna krabbameina á Ís-
landi. Hægt væri að koma í veg fyr-
ir að minnsta kosti þriðjung þessara
dauðsfalla með auknum forvörnum,
þekkingu á einkennum, snemm-
greiningu og meðferð.
„Við þurfum öll að vera meðvituð
um lífsstílsþætti sem eru fyrirbyggj-
andi gegn krabbameinum og þegar
fyrirtæki auðvelda starfsfólki sínu að
velja heilbrigða lifnaðarhætti styðja
þau við starfsmannahópinn um leið
og þau vinna gegn krabbameinum,“
segir Halla Þorvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfélags Ís-
lands. „Aukin þekking hjálpar okk-
ur að vera vakandi fyrir einkennum,
taka upplýstar ákvarðanir um heilsu
okkar og takast á við ótta og mis-
skilning um krabbamein.“
Krabbameinsfélagið hvetur for-
svarsmenn fyrirtækja til þess að skrá
sig til leiks á markad@krabb.is og
taka þátt með því að miðla efni frá
Krabbameinsfélaginu. En einnig
býður félagið upp á fyrirlestra í fyr-
irtæki, ráðgjöf eða stuðning og fjöl-
breytt námskeið. mm
Allt sem þú þarft að vita um krabbamein