Skessuhorn - 06.02.2019, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 11
Vilt þú vera
í forystu?
Svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi
Arion banki leitar að framsæknum og metnaðarfullum aðila
í starf svæðisstjóra á Vesturlandi sem heyrir beint undir
framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs. Svæðisstjóri er æðsti
stjórnandi bankans á svæðinu en útibúin í Borgarnesi, Stykkishólmi
og Búðardal heyra þar undir.
Svæðisstjóri ber yfirábyrgð á rekstri bankans á svæðinu og starfar
jafnframt sem útibússtjóri í Borgarnesi. Viðkomandi stýrir og ber
ábyrgð á lánanefnd svæðisins og hefur það mikilvæga hlutverk að
efla tengsl við viðskiptavini og tryggja öfluga markaðssókn
á Vesturlandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærileg menntun
• Reynsla af stjórnun og/eða rekstri
• Góð þekking á lánamálum fyrirtækja og einstaklinga
• Hæfni til að leiða þjónustuvegferð og tryggja
jákvæða upplifun viðskipavina
• Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni
• Umbótahugsun, frumkvæði og drifkraftur
Nánari upplýsingar um star�ið veita Iða Brá Benediktsdóttir,
framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, sími 444 7107,
netfang ida.bra.benediktsdottir@arionbanki.is og Hildur
Sigurðardóttir mannauðsstjóri, sími 444 6364,
netfang hildur.sigurdardottir@arionbanki.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2019.
Umsækjendur sæki um á vef bankans, www.arionbanki.is.
Arion banki er skráður á aðallista Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Jafn réttur kvenna og karla til starfa er
okkur hjartans mál. Arion banki er jafnlaunavottaður en það felur í sér formlega staðfestingu á því að fagleg
vinnubrögð séu til staðar við ákvörðun launa og að starfsfólki í jafnverðmætum störfum sé ekki mismunað. arionbanki.is
Reiknað er með 57 milljóna króna
afgangi frá rekstri Stykkishólms-
bæjar á árinu 2019. Fjárhagsáætlun
Stykkishólmsbæjar var samþykkt
á desemberfundi bæjarstjórnar,
samhliða þriggja ára áætlun fyrir
árin 2019-2022. Bæjarstjóri birti
greinagerð fjárhagsáætlunar á vef
Stykkishólmsbæjar 1. febrúar sl.
Heildartekjur A og B hluta bæj-
arsjóðs eru áætlaðar 1.727 millj-
ónir króna, þar af 847 skatttekjur
og 276,6 milljóna króna fram-
lagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga. Rekstrarniðurstaða fyrir af-
skriftir er áætluð 189,3 milljónir
en eftir afskriftir og fjármagnsliði
er gert ráð fyrir 57 milljóna króna
afgangi, sem fyrr segir. Veltufé frá
rekstri er áætlað að verði 230,2
milljónir og handbært fé 90 millj-
ónir króna.
Verðmæti heildareigna A og B
hluta er áætlað 3.172 milljónir
króna í árslok 2019 en Heildar-
skuldir og skuldbindingar 2.345
milljónir, þar af 284 milljóna króna
lífeyrisskuldbindingar og aðrar
skuldbindingar 65 miljónir króna.
Langtímaskuldir við lánastofnan-
ir í B hluta eru 378 milljónir en
1.240 milljónir í A hluta. Afborg-
anir lantímalána eru 148,5 millj-
ónir og fjárfestingar ársins 2019
eru áætlaðar 110 milljónir króna.
Engar lántökur eru áætlaðar á síð-
ari hluta kjörtímabilsins. Lántaka
ársins 2019 er áætluð 45 milljónir
og 10 milljónir á næsta ári.
500 milljóna fjárfest-
ingar næstu fjögur ár
Helstu markmið áætlunar fyr-
ir árin 2019-2022 er að rekstur A
hluta verði í jafnvægi og að rekstr-
arniðurstaða samstæðu A og B
hluta verði jákvæð. „Jafnframt er
stefnt að því að framlegðarhlut-
fall verði a.m.k. 15% í árslok 2019,
að veltufjárhlutfall nálgist 1,0 sem
fyrst, handbært fé verði á bilinu
105-1011 millj. í árslok 2019 og
að skuldaviðmið samkvæmt sveit-
arstjórnarlögum verði í kringum
121-123% strax í lok árs 2019 og
að skuldaviðmið haldi áfram að
lækka út kjörtímabilið,“ segir í
greinagerð með fjárhagsáætlun.
Gert er ráð fyrir rúmlega 500
milljóna krónum til framkvæmda
og fjárfestinga á næstu fjórum
árum. Í áætlun ársins 2019 er lögð
áhersla á fjárfestingu í innviðum
og bætta þjónustu við íbúa. Ber þar
hæst að fyrsti áfangi framkvæmda
við skólalóðina við Borgarbraut.
Lántöku á nýjum langtímalánum
verður haldið í lágmarki næstu
fjögur ár. Aðeins er gert ráð fyr-
ir 55 milljónum króna að láni árin
2019 og 2020 og engum nýjum
langtímalánum árin tvö þar á eft-
ir. „Þetta þýðir að aðeins um 10%
framkvæmdakostnaðar er fjár-
magnaður með lántöku sem nem-
ur alls 55 m.kr. Umræddar fjárfest-
ingar á næstu árum verða því nær
alfarið fjármagnaðar með hand-
bæru fé frá rekstri,“ segir í greina-
gerðinni.
kgk
Búist við afgangi frá rekstri
Stykkishólmsbæjar
Frá Stykkishólmi. Baldur leggur úr höfn á liðnu sumri. Ljósm. úr safni/ sá.
Á fundi byggðarráðs Borgar-
byggðar síðastliðinn fimmtudag
var lagt fram erindi framkvæmda-
stjóra hjúkrunarheimilisins Brák-
arhlíðar um viðbrögð við svari
heilbrigðisráðuneytisins við erindi
stjórnar Brákarhlíðar, dags. 13.
febrúar 2017. Vísast til fréttarinn-
ar á síðunni hér til vinstri. Byggð-
arráð bókaði að lýst væri miklum
vonbrigðum með þá afstöðu heil-
brigðisráðuneytisins að hafna er-
indi stjórnar Brákarhlíðar um að
fá leyfi til að fjölga hjúkrunar-
rýmum í dvalarheimilinu Brákar-
hlíð á þann hátt að nýta fyrirliggj-
andi húsnæði betur en nú er gert.
Þá skorar byggðarráð á heilbrigð-
isráðherra að endurskoða fyrr-
greinda afstöðu sína og ganga til
samstarf við hjúkrunarheimilið
Brákarhlíð um að fjölga hjúkrun-
arrýmum á þann hagkvæmasta hátt
sem mögulegt er.
Í ályktun byggðarráðs seg-
ir: „Niðurstaða ráðuneytisins að
hafna erindinu með þeim rökum
að Vesturlandið sé eitt best setta
heilbrigðisumdæmi landsins hvað
varðar fjölda hjúkrunarrýma fær
ekki staðist skoðun þar sem það
segir ekkert til um stöðu mála
hjá Brákarhlíð og í Borgarbyggð.
Heilbrigðisumdæmi Vesturlands er
mjög víðfeðmt. Aðgengi íbúanna
að hjúkrunarrýmum er mjög mis-
munandi milli sveitarfélaga innan
þess. Biðlistar eru eftir hjúkrunar-
rýmum í Brákarhlíð. Hann er bæði
samsettur af þeim sem eru íbú-
ar heimilisins á dvalarrýmum svo
og af fólki utan þess.“ Því segir að
mikil undirliggjandi þörf sé fyrir
fjölgun hjúkrunarrýma til að mæta
þörfum sífellt stækkandi hóps aldr-
aðs fólks í sveitarfélaginu. Biðlistar
eftir hjúkrunarrýmum hafa lengst
verulega í stærstu byggðarkjörnum
Vesturlands. Þessari þróun verður
ekki mætt nema með markvissum
aðgerðum svo sem að auka fjölda
rýma á þann hagkvæmasta máta
sem mögulegur er.“
mm
Byggðarráð skorar á
heilbrigðisráðherra