Skessuhorn - 06.02.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 201912
Metnotkun á
heitu vatni
HÖFUÐB.SV: „Aldrei
áður hefur verið notað meira
af heitu vatni á höfuðborgar-
svæðinu en síðastlinn sólar-
hring. Síðustu klukkustund-
ina var metrennsli þegar íbú-
ar og fyrirtæki á höfuðborg-
arsvæðinu nýttu tæplega
17.000 rúmmetra af heitu
vatni og met fyrir meðal-
rennsli á sólarhring hefur
einnig verið slegið,“ sagði í
tilkynningu frá Veitum síð-
astliðinn laugardag -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 26. janúar -
1. febrúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 28.554 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF:
13.118 kg í þremur róðrum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 12.199 kg.
Mestur afli: Kvika SH:
12.199 kg í einni löndun.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 266.046
kg.
Mestur afli: Farsæll SH:
81.969 kg í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík: 18 bátar.
Heildarlöndun: 452.234
kg.
Mestur afli: Bárður SH:
65.703 kg í átta róðrum.
Rif: 15 bátar.
Heildarlöndun: 641.595
kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
124.264 kg í tveimur lönd-
unum.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 43.365 kg.
Mestur afli: Blíða SH:
20.864 kg í fimm róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Örvar SH - RIF:
71.006 kg. 31. janúar.
2. Tjaldur SH - RIF:
69.802 kg. 1. febrúar.
3. Hringur SH - GRU:
61.207 kg. 30. janúar.
4. Sigurborg SH - GRU:
59.231 kg. 30. janúar.
5. Tjaldur SH - RIF:
54.462 kg. 27. janúar.
-kgk
Húsnæði sem áður hýsti Arion
banka í Búðardal hefur verið til
sölu í nokkurn tíma. Félagið D9
ehf., sem er í eigu Dalamanns-
ins Leifs Steins Elíssonar og eig-
inkonu hans, hefur nú fest kaup á
húsinu. Þar er nú unnið að gerð
íbúðarherbergja á efri hæð, en
enn er ekki fullráðið hvað verð-
ur á jarðhæð. „Við erum að breyta
efri hæðinni í fimm stök herbergi
til útleigu, hvort heldur sem er til
langtíma- eða skammtímaleigu,“
segir Leifur Steinn í samtali við
Skessuhorn. „Áætlað er að her-
bergin verði tilbúin í apríl. Tvö
og jafnvel þrjú herbergjanna verða
fullbúin með sturtu og salerni en
hin herbergin verða hvert um sig
með handlaug, en salerni og sturta
verður sameiginleg,“ segir hann.
Spurður hvað standi til að gera á
neðri hæð hússins svarar hann því
til að það sé enn óráðið en þó séu
uppi ýmsar hugmyndir. „Í ljósi þess
að ég er fæddur og uppalinn Dala-
maður vildi ég að eitthvað yrði í
húsinu sem tengist Dölunum. Afi
minn var Aðalsteinn Baldvinsson
kaupmaður í Brautarholti, en hann
hafði tekið við versluninni af Birni
Jónssyni tengdaföður sínum, sem
var smiður og byggði verslunina á
sínum tíma. Nú eru liðlega 100 ár
síðan og innréttingarnar eru frið-
aðar. En þar sem húsið í Brautar-
holti er orðið nokkuð gamalt og
lélegt kviknaði sú hugmynd í sam-
tölum við eigendur þess hvort ekki
væri hægt að bjarga innréttingun-
um og koma þeim haganlega fyr-
ir í bankahúsinu í Búðardal, annað
hvort í heilu lagi eða að hluta,“ út-
skýrir Leifur Steinn. „Þar væri svo
gaman að vera með verslun með
vörur úr héraði, eins og kannski
osta, önnur matvæli, handverk
og fleira. Með þessu kæmi vel til
greina að vera með veitingarekst-
ur. En þetta kostar allt talverða
peninga og það stendur ekki til að
fara of geyst í sakirnar,“ bætir hann
við.
arg
Bankahúsið í Búðardal fær brátt nýtt líf
„Glæpastarfsemi á vinnumark-
aði verður að stöðva. Hún skað-
ar einstaklinga og samfélagið allt.
Við verðum að taka höndum sam-
an og ráðast gegn kennitöluflakki,
skilyrða keðjuábyrgð í opinberum
framkvæmdum, herða eftirlit með
brotastarfsemi og auka vernd
fórnarlamba mansals.“ Þetta sagði
Drífa Snædal, formaður Alþýðu-
sambans Íslansds, á vef ASÍ fyrir
helgi.
„Þetta snýst um mannréttindi og
heill samfélagsins. Öflug verkfæri
til að ráðast gegn svindlurunum
er að finna í tillögum starfshóps
félagsmálaráðherra sem kynntar
voru í gær. Þegar tillögurnar verða
að veruleika verður hægt að fagna
langþráðum sigri enda hafa þetta
verið baráttumál verkalýðshreyf-
ingarinnar í mörg ár. Ég er bjart-
sýn og vongóð um framhaldið.
Að taka á glæpastarfsemi á vinnu-
markaði ásamt húsnæðismálunum
er risastór þáttur í að bæta kjör
fólks og tryggja réttindi. Við erum
sífellt að færast nær heildarmynd-
inni sem tengist kjarasamningun-
um og verður hluti lausnarinnar,“
sagði Drífa síðastliðinn föstudag.
mm
Heildarmyndin
er að skýrast
Drífa Snædal forseti ASÍ.
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, tók í síðustu
viku við skýrslu samstarfshóps um
undirboð og brotastarfsemi á inn-
lendum vinnumarkaði sem starfað
hefur undir forystu Jóns Sigurðsson-
ar fyrrverandi ráðherra. Í skýrslunni
leggur samstarfshópurinn áherslu á
að stöðva tafarlaust brotastarfsemi
á vinnumarkaði hvort sem um er að
ræða félagsleg undirboð eða ann-
ars konar brot í ljósi sameiginlegra
hagsmuna launafólks, atvinnulífs-
ins og samfélagsins alls. Samstarfs-
hópurinn stendur sameiginlega að
þeim tillögum sem fram eru lagðar.
Markmiðið með tillögum samstarfs-
hópsins er að regluverk á vinnu-
markaði verði skilvirkt og að þær
aðgerðir sem ráðist verður í skili til-
ætluðum árangri. Að mati hópsins
er skýr pólitískur vilji og stuðning-
ur stjórnvalda forsenda þess að ár-
angur náist.
Samstarfshópurinn telur brýnasta
verkefnið vera að taka á kennitöluf-
lakki á skilvirkan hátt. Lagðar verði
til grundvallar sameiginlegar til-
lögur Samtaka atvinnulífsins og Al-
þýðusambands Íslands, svo og til-
lögur Ríkisskattstjóra. Í tillögunum
er m.a. kveðið á um heimild til að
setja forsvarsmenn fyrirtækja í tíma-
bundið bann við þátttöku í stjórnun
félaga með takmarkaða ábyrgð við
tilteknar aðstæður (atvinnurekstrar-
bann), og auk þess er skerpt á fjöl-
mörgum öðrum atriðum. Þá er lagt
til að komið verði upp föstum sam-
ráðshópi stjórnvalda og aðila vinnu-
markaðarins sem beri ábyrgð á sam-
eiginlegri stefnumótun um aðgerðir
gegn brotastarfsemi á vinnumark-
aði.
Þá er lagt til að þau stjórnvöld
sem fara með valdheimildir á vinnu-
markaði (Lögreglan, Ríkisskatt-
stjóri, Vinnueftirlitið, Vinnumála-
stofnun) geri með sér formlegt
samkomulag um skipulegt samstarf
gegn brotastarfsemi á vinnumark-
aði. Formbundin verði reglulegt
samráð og samstarf þessa samstarfs-
vettvangs við aðila vinnumarkarð-
arins um stöðumat, greiningu og
sameiginlegt vinnustaðaeftirlit. Út-
fært verði hvernig megi fyrirbyggja
alvarleg og/eða ítrekuð brot gegn
starfsmönnum með því að útvíkka
refsiábyrgð lögaðila og fyrirsvars-
manna. Stjórnvöldum verði veitt-
ar lagaheimildir til að taka á brota-
starfsemi, m.a. með þvingunarúr-
ræðum og stjórnvaldsviðurlögum.
Þá leggur starfshópurinn til að sett
verði skylda til keðjuábyrgðar í lög
um opinber innkaup.
Tillöguna í heild sinni má lesa á
vef félagsmálaráðuneytisins.
mm
Leggja til að böndum verði
komið á kennitöluflakkara
Fulltrúar starfshópsins ásamt ráðherra og fleirum.