Skessuhorn - 06.02.2019, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 13
Viltu vinna með okkur
í sumar?
Við leitum að jákvæðum og framtakssömum starfskrafti
í sumarstarf á Vesturlandi með aðsetur á Akranesi.
Gott sumarstarf fyrir þá sem eru í iðn- eða tækninámi.
Hjá okkur færðu skemmtilega og hagnýta reynslu af því að vinna með
reynslumiklu fagfólki á fjölbreyttum og lifandi vinnustað sem leitast við
að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, vinnuumhverfi og möguleika
til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð.
Við tökum jafnréttið alvarlega
• Við hvetjum jafnt stelpur sem stráka til að sækja um.
• Við val á starfsfólki er tekið mið af hæfni, reynslu og umsögnum. Vandlega útfyllt umsókn skipir máli.
Til þess að sækja um þarftu að vera orðin(n) 18 ára.
Umsóknarfrestur er til 1. mars á veitur.is/sumarstorf
þar sem nánari upplýsingar um störfin er að finna.
Einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið starf@veitur.is.
Í góðu sambandi
við framtíðina
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Akraness 2005-2017 – Grenjar H3
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi 11. desember 2018
tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017,
skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirhuguð skipulagsbreyting nær til hafnarsvæðis Grenja H3.
Gerð er breyting á skipulagsákvæðum landnotkunarreits H3.
Í greinargerð skipulagsins, felst nánari skilgreining á þeirri
starfsemi sem heimil verður á svæðinu.
Breyting á deiliskipulagi Grenja er auglýst samhliða.
Breyting á deiliskipulagi Grenja – Bakkatún 30-32
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi 11. desember 2018 tillögu að
breytingu á deiliskipulagi Grenja, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Breytingin tekur til lóðanna Bakkatún 30 og 32 og felst í
að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir viðbyggingu til suðvesturs
frá núverandi byggingu. Hámarksvegghæð viðbyggingar er 6,5 m
og hámarkshæð viðbyggingar er 11,5 m. Breyting á aðalskipulagi
Akraness 2005-2017, vegna Grenja H3 er auglýst samhliða.
Tillögurnar verða til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að
Stillholti 16-18 Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar
www.akranes.is frá og með 7. febrúar n.k. til og með 27. mars 2019.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar þarf
að skila skriflega eigi síðar en 27. mars í þjónustuver Akraneskaup-
staðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið skipulag@akranes.is.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
Auglýsing um skipulag -
Akraneskaupstaður
Líf í tuskunum, bútasaumssýning
Ingibjörg Guðjónsdóttir sýnir handverk sitt
Sýnining opnar föstudaginn 8. febrúar kl. 16-18.
Sýningin verður síðan opin á afgreiðslutíma safnsins og lýkur 8. mars.
Opið mán. - föst. kl. 12-18 og lau. kl. 11-14.
Allir velkomnir, kaffiveitingar við opnun
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Í síðustu viku var byrjað að rífa Skeið-
faxa, hið gamla en sérhæfða efnis-
flutningaskip Sementsverksmiðjunn-
ar. Á síðasta ári auglýsti verksmiðjan
skipið til sölu, en vænleg tilboð bár-
ust ekki. Skipið hefur staðið undan-
farið ár á búkkum á hafnarsvæðinu á
Grenjum á Akranesi en nú er byrj-
að að búta það niður og járnið verður
selt til endurvinnslu. mm
Byrjað að rífa Skeiðfaxa
Sérhæfð vél byrjuð að kroppa í skipið. Fjær sést í Höfrung AK sem þar hvílir „lúin
bein.“ Ljósm. Einar Brandsson
Rétt fyrir mánaðamót póstlögðu
starfsmenn Spalar 2.600 bréf til við-
skiptavina sem enn hafa ekki skil-
að veglyklum og eiga inni peninga á
áskriftarreikningum vegna veglykla í
Hvalfjarðargöng. Frá þessu er greint
á heimasíðu fyrirtækisins. Viðtakend-
ur fá tíu daga frest til að bregðast við
erindinu með því að nálgast inneign
sína og skila veglyklum og afsláttar-
miðum. „Þeir sem ekki bregðast við
eiga áfram kröfur á félagið þar til
kröfulýsingu lýkur,“ segir á vef Spal-
ar. „Þetta er lokatilraun til að ná til
þeirra sem eiga inni hjá Speli. Starfs-
menn snúa sér síðan að öðrum mál-
um sem varða undirbúning að því að
leggja af starfsemi félagsins og loka
skrifstofu þess á Akranesi,“ segir þar
enn fremur.
Þá er minnt á að í samningi Spal-
ar og íslenska ríkisins er kveðið á um
að verði enn til fjármunir hjá félaginu
þegar hlutafé hefur verið greitt út,
skuli þeir renna til sérstakra, óskil-
greindra verkefna sem tengjast rekstri
Hvalfjarðarganga. kgk
Vel á þriðja þúsund
eiga enn inni hjá Speli Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is