Skessuhorn - 06.02.2019, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 201914
Talsvert frost hefur verið á Snæfells-
nesi að undanförnu eftir ágæt hlý-
indi í vetur. Í þessu kuldakasti hef-
ur talsverður ís myndast í höfninni
í Ólafsvík en þó ekki það mikið að
hann hafi tafið skipaumferð. Með-
fylgjandi mynd var tekin við höfnina
síðastliðið laugardagskvöld. af
Kalt í Ólafsvíkurhöfn
Bygging fimleikahúss við Vestur-
götu á Akranesi hófst formlega
þegar fyrsta skóflustungan var tek-
in í lok ágústmánaðar. Síðan þá
hafa framkvæmdir staðið yfir og
eru komnar á fullan skrið um þess-
ar mundir. Búið er að fleyga klöpp-
ina þar sem húsið á að rísa og þessa
dagana er unnið að því að steypa
upp tæknikjallara og sökkla húss-
ins, að því er fram kemur á vef-
síðu Akraneskaupstaðar. Þegar það
er búið verður hafist handa við að
steypa plötuna og útveggi hússins. Í
sumar verður síðan ráðist í að gera
nýja búningsklefa sem bæði munu
nýtast íþróttahúsinu á Vesturgötu
og nýja fimleikahúsinu. Á meðan
þær framkvæmdir standa yfir má
búast við því að íþróttahúsið verði
lokað að hluta eða öllu leyti. Þá
hefur sparkvellinum við Brekku-
bæjarskóla verið lokað á meðan
framkvæmdir standa yfir. Gert er
ráð fyrir því að hann verði opnaður
á nýjan leik fyrir lok sumars. kgk
Verið að steypa
kjallara fimleikahúss
Framkvæmdir við fimleikahús á Akranesi eru nú komnar á fullan skrið.
Ljósm. Akraneskaupstaður.
Í áliti meirihluta umhverfis- og sam-
göngunefndar Alþingis, sem afgreitt
var úr nefndinni á mánudag, var
samþykkt fjárveiting vegna sjóvarna
við Faxabraut á Akrnesi. Í nefndar-
álitinu segir: „Vegna niðurrifs Sem-
entsverksmiðjunnar eru breyttar að-
stæður á Faxabraut á Akranesi sem
er skilgreind sem stofnvegur. Sjór
gengur yfir veginn og hamlar upp-
byggingu á svæðinu þar sem íbúða-
byggð er fyrirhuguð. Fjárþörf til
sjóvarna og vegagerðar er um 550
millj. kr. Meiri hlutinn leggur til að
200 milljónum króna verði varið til
sjóvarna á svæðinu á árunum 2019
og 2020, þ.e. 100 millj. kr. hvort ár,
og farið verði í aðrar framkvæmdir
við veginn í kjölfar aukins svigrúms
á árunum 2021 og 2022. Brýnt er
að ljúka verkinu sem allra fyrst.” Þá
segir að fjármunir til framkvæmdar-
innar verði fluttir af fjárveitingu til
Vestfjarðavegar um Gufudalssveit á
árunum 2019 og 2020 en fyrir liggur
að framkvæmdir við lagningu vegar-
ins geta fyrst hafist árið 2020.
mm
Samgöngunefnd afgreiðir fjár-
veitingu til sjóvarna á Akranesi
Gefur yfir Faxabraut.
Mynd úr safni frá því áður en niðurrif Sementsverksmiðjunnar hófst.
Frumvarp um opinberan fjárstuðn-
ing við öflun og miðlun frétta og
fréttatengds efnis var kynnt á blaða-
mannafundi í menntamálaráðu-
neytinu síðastliðinn fimmtudag.
Frumvarpið er unnið á grundvelli
stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinn-
ar um að bæta þurfi rekstrarum-
hverfi einkarekinna fjölmiðla og því
meginmarkmiði stjórnvalda að efla
lýðræðislega umræðu og lýðræðis-
þátttöku. Frumvarpsdrögin má nú
finna í Samráðsgátt stjórnvalda þar
sem áhugasamir eru hvattir til þess
kynna sér efni þess og senda inn
umsagnir og ábendingar.
„Hér á landi hefur ríkið ekki veitt
fjölmiðlum beinan stuðning eins og
lengi hefur verið gert annars stað-
ar á Norðurlöndunum og víðar í
Norður-Evrópu. Fjölbreyttir og
traustir fjölmiðlar eru mikilvægir
fyrir lýðræðið á hverjum tíma og
fyrir okkur Íslendinga er hlutverk
þeirra einnig sérlega brýnt þegar
kemur að íslenskri tungu og menn-
ingu. Okkar fyrsta úrlausnarefni er
að styrkja rekstrarumhverfi einka-
rekinna fjölmiðla og ég fagna því
að geta í dag kynnt frumvarpsdrög
sem ég tel að muni stuðla að öflugri
fjölmiðlun hér á landi,“ sagði Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra.
Við samningu frumvarpsins var
m.a. byggt á skýrslu nefndar um
rekstrarumhverfi einkarekinna fjöl-
miðla, greinargerð fjölmiðlanefnd-
ar um sama efni, hagrænni skoðun
á rekstrarumhverfi einkarekinna
fjölmiðla hér á landi og yfirgrips-
mikilli greiningarvinnu sem unn-
in var í samstarfi við sérfræðinga
á sviði fjölmiðla. Frumvarpið sæk-
ir að hluta fyrirmynd í sambæri-
lega löggjöf á hinum Norðurlönd-
unum, einkum til Danmerkur og
Noregs, um opinberan stuðning og
ívilnanir til einkarekinna fjölmiðla.
Einnig var höfð hliðsjón af íslenskri
löggjöf um tímabundnar endur-
greiðslur og stuðning á afmörkuð-
um sviðum. Fram kom hjá ráðherra
að ráðgert er að leggja frumvarpið
fram á Alþingi í vor og að gildistaka
þess verði 1. janúar 2020.
Meginefni frumvarpsdraga:
Komið verði á fót nýju stuðnings-
kerfi fyrir einkarekna fjölmiðla hér
á landi vegna kostnaðar sem fellur
til við miðlun frétta, fréttatengds
efnis og umfjöllunar um samfélags-
leg málefni. Styrkirnir verði í formi
endurgreiðslu á allt að 25% af hluta
ritstjórnarkostnaðar.
Hámarksfjárhæð stuðnings til
hvers umsækjenda verði 50 millj-
ónir kr. á ári.
Mögulegt verði að veita stað-
bundnum miðlum viðbótarendur-
greiðslu.
Ráðgert er að framlag ríkisins
nemi 300-400 milljónum kr. á ári.
Helstu forsendur
stuðnings
Aðalmarkmið fjölmiðils skal vera
miðlun frétta, fréttatengds efnis og
umfjöllun um samfélagsleg mál-
efni.
Fjölmiðill skal hafa veitt full-
nægjandi upplýsingar um eignar-
hald og yfirráð.
Efni fjölmiðilsins skal vera fjöl-
breytt og fyrir allan almenning á
Íslandi.
Prentmiðlar skulu koma út að
lágmarki 48 sinnum á ári. Netmiðl-
ar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir
sambærilegir miðlar skulu miðla
nýju efni daglega.
Ritstjórnarefni skal að lágmarki
vera 40% af því efni sem birtist í
prentmiðlum sem dreift er endur-
gjaldslaust. Ritstjórnarefni í öðrum
prentmiðlum og netmiðlum skal að
lágmarki vera helmingur af birtu
efni.
Einn sjötti hluti ritstjórnarefnis
skal byggja á sjálfstæðri frétta- eða
heimildaöflun.
Starfsmenn í fullu starfi skulu
vera að lágmarki þrír (eða einn hjá
staðbundnum miðlum).
Fjölmiðill hafi starfað óslitið í
tólf mánuði eða lengur fyrir þann
tíma er umsókn um endurgreiðslu
berst til fjölmiðlanefndar.
Fjölmiðill sé ekki í vanskilum við
opinbera aðila eða lífeyrissjóði.
mm
Fjölmiðlafrumvarp til
kynningar í Samráðsgátt
Lilja D Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti frumvarpið á
blaðamannafundi síðastliðinn fimmtudag.
Ungmenna- og tómstundabúð-
ir hafa verið starfræktar á Laug-
um í Sælingsdal frá árinu 2005 en
nú er liggur fyrir að þetta er síð-
asti veturinn sem búðirnar verða
starfræktar þar. Leigusamningur
UMFÍ og Dalabyggðar um starf-
semina á Laugum rennur út í lok
maí á þessu ári. UMFÍ hefur geng-
ið frá samningi við Bláskógabyggð
um húsnæði í íþróttamiðstöð gamla
Íþróttakennaraskólans á Lauga-
vatni undir starfsemina. Búðirnar
verða fluttar að Laugavatni í sumar
og starfsemin hefst þar næsta haust.
Þá segir á vefsíðu Ungmenna-
og tómstundabúðanna að öll að-
staða á Laugavatni henti vel und-
ir starfið. „Á Laugavatni er öll að-
staða í göngufæri. Heimavistin er
við íþróttahúsið og stutt að fara á
milli. Húsakostur á Laugavatni er í
góðu ásigkomulagi og er unnið að
því að gera allt klárt fyrir næsta vet-
ur,“ segir á vefsíðu Ungmenna- og
tómstundabúðanna.
arg
Ungmenna- og tómstundabúðirnar
verða fluttar á Laugarvatn
Svipmynd frá Ungmenna- og
tómstundabúðunum á
Laugum í Sælingsdal.
Ljósm. úr safni.