Skessuhorn - 06.02.2019, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 15
www.skessuhorn.is
Fréttaveita Vesturlands
FRAMKVÆMDASTJÓRI KENNSLU OG ÞJÓNUSTU
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni
Reynsla af störfum í háskólaumhverfi er æskileg, ekki síst á sviði
kennslumála
Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta
Háskólinn á Bifröst auglýsir eftir framkvæmdastjóra kennslu
og þjónustu, sem fer fyrir kennslusviði skólans. Sviðið sinnir
fjölbreyttri þjónustu við nemendur og kennara og eru t.d.
náms- og starfsráðgjöf hluti af sviðinu sem og bókasafn
skólans. Um er að ræða fullt starf.
Búseta á Bifröst eða í nágrenni er æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastýra
kennslu- og þjónustu, kennslustjori@bifrost.is. s. 433 3000
Umsóknir skulu sendar á rektor@bifrost.is. Umsóknarfrestur er til
og með 17. febrúar nk.
Helstu verkefni:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Verkefni tengd kennslu, námsmati, innritunum og brautskráningu
Umsjón með tölfræðilegum upplýsingum um skólastarfið og
birtingu þeirra
Ábyrgð á nemendaskrár- og kennslukerfi skólans
Gerð námsskráa, námskeiðslýsinga og kennsluáætlana í samstarfi
við starfsfólk
Umsjón með framkvæmd kennslumats og úrvinnslu þess
Þátttaka í gæðastarfi skólans m.a. vegna úttekta
Skipulagning skólastarfsins, þ.m.t. vinnuhelga
Þátttaka í nefndastarfi skólans, samskipti við aðila utan skólans
s.s. ráðuneyti og aðra háskóla.
Búseta á Bifröst eða í nágrenni er æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastýra kennslu og
þjónustu, kennslustjori@bifrost.is s. 433 3000
Umsóknir skulu sendar á rektor@bifrost.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar nk.
Málþing
22. febrúar 2019 í Gamla Kaupfélaginu, Akranesi
Landmælingar Íslands kynna málþingið
Ríkisstofnun úti á landi – búbót eða basl?
Í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá flutningi Landmælinga Íslands frá Reykjavík á Akranes verður rýnt í hvað það þýðir að
vera með ríkisstofnun utan höfuðborgarsvæðisins
kl. 13:00– 13:05 Ávarp fundarstjóra - Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður samtaka ferðaþjónustunnar
kl. 13:05– 14:10 Framsaga Eydís Líndal Finnbogadóttir og Magnús Guðmundsson, forstjórar Landmælinga Íslands
Guðjón Brjánsson, alþingismaður
Vífill Karlsson, hagfræðingur SSV og dósent við Háskólann á Akureyri
kl. 14:10 – 14:25 Kaffihlé
kl. 14:25 -14:55 Framsaga Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
kl. 14:55 – 15:25 Pallborðsumræður með frummælendum
kl. 15:25 – 15:30 Samantekt og málþingslok
Málþingið er opið öllum að kostnaðarlausu og hefst skráning 20. janúar á www.lmi.is
Reykholtskórinn gaf nýlega út
geisladiskinn „Vinur kær“ en und-
irtitill hans er „Reykholtskórinn
með Bjarna og Viðari“. Upptök-
urnar fóru fram í Reykholtskirkju
og annaðist Sveinn Kjartansson
hjá Stúdíó Sýrlandi þær að mestu
leyti en Georg Magnússon ann-
aðist upptöku fjögurra laga.
Fyrri níu lögin á þessum hljóm-
diski voru tekin upp í ársbyrjun
2008 að aflokinni ferð kórsins á
Íslendingaslóðir á vesturströnd
Bandaríkjanna og Kanada. Þá var
stjórnandi kórsins Bjarni Guð-
ráðsson, bóndi og organisti í Nesi,
en hann hafði stjórnað kórnum frá
upphafi um miðjan níunda áratug
síðustu aldar.
Seinni lögin níu voru svo tekin
upp á árinu 2016 en þá hafði Við-
ar Guðmundsson, bóndi og org-
anisti að Miðhúsum í Kollafirði á
Ströndum, tekið við stjórn kórsins
frá árinu 2012, en áður hafði hann
verið meðleikari frá 2001.
Hægt er að panta disk á net-
fanginu dagny@lbhi.is og fá hann
sendan. Verðið er 2.500 krónur
með sendingarkostnaði. Diskur-
inn er einnig til sölu í móttöku
Snorrastofu í Reykholtskirkju.
-fréttatilkynning
Reykholtskórinn sendir
frá sér geisladisk