Skessuhorn - 06.02.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 17
að hann hafi týnst í Ameríku sama
ár. Þar hittir hann fyrir Toltekana,
sem töldu á þessum tíma um fimm
milljónir manna, að því er talið er
og rís til æðstu metorða. Ef þetta er
satt þá er Björn Breiðvíkingakappi
vafalítið ein merkilegasta persóna
Íslendingasagnanna. Ekki aðeins
hefur hann verið hann valdamesti
Íslendingur allra tíma en samt al-
gerlega verið ýtt til hliðar í sög-
unni. Ekki nóg með að hann hafi
fundið nýja heimsálfu heldur var
hann gerður þar að konungi,“ seg-
ir Sigurður Hjartason sagnamaður
að endingu.
kgk
tíð Snorra Sturlusonar. Hann réði
stórum hluta af Suður- og Norð-
urlandi ásamt öllu Vesturlandi og
Snæfellsnesi út að Stykkishólmi.
En hann hafði engan áhuga á því
sem var utar en Stykkishólmur, þar
var eiginlega ekkert að hafa. Hlut-
irnir voru dálítið öðruvísi í gamla
daga. Breiðuvík er að mínu viti
einn fallegasti staður landsins, en
það var einskis virði á landnámsöld
að vera með frábært útsýni en ekk-
ert ræktarland,“ bætir hann við.
Ferðirnar smám
saman að þróast
Framundan er þriðja sumarið þar
sem Sigurður býður upp á sögu-
ferðir frá Stóra-Kambi. Hann seg-
ir vel hafa gengið undanfarin tvö
ár en bætir því við að það taki tíma
að byggja svona lagað upp. „Þetta
er veðurháð, við förum ekki nema
í skaplegu veðri. En þrátt fyrir að
síðasta sumar hafi verið leiðinlegt
höfum við bara einu sinni þurft
að fella niður ferð,“ segir hann.
„Smám saman er þetta að þróast
líka. Núna erum við að velta því
fyrir okkur að skipta söguferðun-
um í tvennt og bjóða líka upp á
sögur án þess að fara á bak. Eins
og þetta er núna þarf fólk bæði að
langa að fara á bak og hlusta á sög-
ur, það er dálítið þröngur mark-
hópur og ég held það væri skyn-
samlegt að bjóða hvort tveggja,“
segir hann. „Síðan hefur mér dott-
ið í hug að það væri gaman að segja
sögu Íslands og þessa svæðis svona
í kringum aldamótin 1900, aðeins
nær í tíma. En það er bara hug-
mynd enn sem komið er og ekk-
ert víst hvort eða hvenær verður
af því,“ segir Sigurður. „Núna er
aðaláherslan á að halda áfram að
segja sögu Björns Breiðvíkinga-
kappa. Það er saga nærsamfélags-
ins, saga bæjarins sem ég bý á, lít-
ið þekkt en stórmerkileg saga um
gleymdan karakter Íslendinga-
sagnanna,“ segir hann. „Ef hún
er sönn þá er Björn Breiðvíkinga-
kappi líklega fyrsti Evrópubúinn í
Ameríku, því hann fór í sína hinstu
ferð frá Íslandi árið 998 og talið er
Vinstri græn í Borgarbyggð boða til opins fundar
með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Við hvetjum ykkur öll til að mæta og
taka þátt í lifandi þjóðmálaumræðu.
Fundurinn verður
haldinn á Hótel Hamri
miðvikudaginn
13. febrúar kl. 17.00.
Boðið upp á hressingu.
Opinn fundur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Akraneskaupstaður auglýsir
eftir umsjónaraðila eftir-
farandi viðburða ársins 2019:
Írskir vetrardagar 14. - 17. mars•
Sjómannadagurinn 2. júní•
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní•
Írskir dagar 4. - 7. júlí•
Vökudagar lok október - byrjun nóvember•
Viðkomandi yrði ábyrgur fyrir skipulagi, utanumhaldi og framkvæmd
viðburðanna í samvinnu við forstöðumann menningar- og safnamála.
Tekið er við umsóknum í íbúagátt Akraneskaupstaðar og skal greint
frá reynslu af viðburðastjórnun, áherslum og hugmyndum um viðburði
ársins og kostnaðaráætlun fyrir eigin vinnu við umsjón verkefnisins.
Verkefnið er verktakavinna.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður menningar- og
safnamála, 433-1000 og ella.gunnarsdottir@akranessofn.is.
Frestur til að skila inn umsóknum er til og með 17. febrúar næstkomandi.
#VISITAKRANES
Sigurður segir söguna af Birni með miklum tilþrifum. Ljósm. úr einkasafni.
www.skessuhorn.is