Skessuhorn - 06.02.2019, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 201918
Leikdeild Umf. Skallagríms ætlar
að færa Fullkomið brúðkaup á fjal-
irnar í vetur. Sýnt verður í félags-
heimilinu Lyngbrekku og frum-
sýning er föstudagskvöldið 22.
febrúar næstkomandi. Fullkomið
brúðkaup er eftir Robin Hawdon
og þýðandi er Örn Árnason. Leik-
stjóri er Guðmundur Lúðvík Þor-
valdsson. „Fullkomið brúðkaup er
hurðafarsi eins og þeir gerast bestir
og býður upp á að það verði hleg-
ið allan tímann. Okkur langaði að
setja upp fyndna og skemmtilega
sýningu og Fullkomið brúðkaup
er hvort tveggja,“ segir Svanhvít
Pétursdóttir í samtali við Skessu-
horn. Hún er formaður leikdeildar
Umf. Skallagríms og fer jafnframt
með hlutverk brúðarinnar Rakelar
í Fullkomnu brúðkaupi. „Verkið
gerist á sveitahóteli þar sem ýmis-
legt kemur upp á. Misskilningur-
inn er allsráðandi, margir brand-
ararnir tvíræðir og þetta verður
allt mjög fyndið og skemmtilegt,“
segir hún og er bjartsýn á góðar
viðtökur. „Ég vona að við náum að
sýna verkið tíu til fimmtán sinnum
og reikna með að það verði mikið
hlegið og allar sýningarnar mjög
skemmtilegar,“ segir hún.
Sex leikarar fara með hlutverk í
Fullkomnu brúðkaupi. Kvenhlut-
verkin eru þrjú og karlhlutverkin
jafn mörg. Þegar allt er talið seg-
ir Svanhvít að milli tíu og fimm-
tán mans muni koma að sýning-
unni hverju sinni þegar. Leikend-
ur hafa æft stíft frá því nýja árið
gekk í garð. „Þetta er allt mjög
skipulega unnið. Leikstjórinn er
vel skipulagður og drífandi og það
er mjög gott að vinna með hon-
um. Það var sett í hlutverk fyrir jól
og þá byrjuðum við að lesa sam-
an. Æfingar fóru síðan á fullt eft-
ir áramót og við höfum æft nánast
á hverju kvöldi allt þetta ár. Það
hefur gengið mjög vel að æfa og
við erum komin með verkið upp
á svið,“ segir hún. „ Núna eru all-
ir um það bil komnir með textann
sinn upp á tíu og við erum á loka-
sprettinum hvað varðar búninga.
Ég reikna síðan með að við verð-
um byrjuð að renna verkinu í heild
sinni á æfingum allavega viku fyrir
frumsýningu. Þetta er allt að slíp-
ast saman jafnt og þétt og vel tím-
anlega fyrir frumsýninguna,“ segir
Svanhvít Pétursdóttir að endingu.
Frumsýning leikdeildar Umf.
Skallagríms á Fullkomnu brúð-
kaupi verður sem fyrr segir í Lyng-
brekku að kvöldi föstudagsins 22.
febrúar. Miðasala er hjá leikdeild-
inni í síma 846-2293.
kgk/ Ljósm. aðsendar.
Leikdeild Umf. Skallagríms setur Fullkomið brúðkaup á svið:
„Hurðafarsi eins og þeir gerast bestir“
Frá æfingum Leikdeildar Umf. Skallagríms í Lyngbrekku. „Það hefur gengið mjög vel að æfa og við erum komin með verkið upp á svið,“
segir Svanhvít Pétursdóttir, formaður leikdeildar Umf. Skallagríms.
Nemendur unglingadeild-
ar Brekkubæjarskóla á Akranesi
eru um þessar mundir að undir-
búa sýningu á leikritinu Leitinni.
Verkið er samið af tónmennta-
kennurunum Heiðrúnu Hámund-
ardóttur og Samúel Þorsteinssyni
en þetta er þriðja verkið sem þau
semja fyrir nemendur Brekkubæj-
arskóla. Um 70 nemendur taka á
einhvern hátt þátt í sýningunni
að þessu sinni. „Við leggjum allt-
af mikla áherslu á að allir sem
vilja fái tækifæri til þess að taka
þátt. Við leggjum okkur fram við
að finna hlutverk fyrir alla. Enda
er nóg sem þarf að gera í kring-
um svona sýningu. Það er hægt að
leika, syngja, dansa, spila í hljóm-
sveitinni, farða, sjá um tæknimál
eða sviðsmynd og fleira. Við reyn-
um að virkja krakkana sem mest og
veita þeim leiðsögn,“ segir Heið-
rún í samtali við Skessuhorn.
„Leikritið er um unga krakka
sem strjúka og lenda í ýmsum æv-
intýrum,“ segir Heiðrún en vill
ekki gefa meira upp um sögu-
þráðinn. „Ég vil ekki segja of mik-
ið en hvet fólk eindregið til þess
að koma á sýningu. Æfingaferlið
hefur gengið ótrúlega vel og erum
við svo heppin að frábær hópur
nemenda og kennara stendur að
baki sýningunni og hafa lagt á sig
mikla vinnu svo að allt gangi upp.
Hópurinn er samheldinn og stað-
ráðinn í að skila góðri sýningu til
bæjarbúa,“ segir Heiðrún og bæt-
ir því við að uppsetning á svona
verki krefjist mikillar samvinnu.
„Þetta er í raun samstarfsverkefni
okkar allra, kennara og nemenda
og margir kennarar sem koma að
þessu á einn eða annan hátt.“
Frumsýning verður í Bíóhöll-
inni á Akranesi föstudaginn 15.
febrúar. Fyrir upplýsingar um
fleiri sýningar er áhugasömum
bent á að leikskránni verður dreift
í öll hús á Akranesi á næstunni.
Þá verður hægt að fá upplýsingar
á skrifstofu Brekkubæjarskóla en
þar verður hægt að kaupa miða í
forsölu.
arg/ Ljósm. Jónas H. Ottósson
Sýning nemenda Brekkubæjarskóla frumsýnd 15. febrúar
Hér má sjá hluta af hópnum sem tekur þátt í sýningunni en mikil áhersla er lögð á að allir sem vilja fái að taka þátt.
Nemendur í Brekkubæjarskóla setja upp leikritið Leitina. Æfingar ganga mjög vel fyrir frumsýninguna sem verður föstudaginn 15. febrúar.