Skessuhorn - 06.02.2019, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 19
TENGDU ÍSLENSKA
NÁTTÚRU OG
MENNINGU INN Á
GISTISTAÐINN ÞINN
Erum með íslensku mynstrin í rúmfötum,
koddaverum, púðum, dúkum, svuntum ,
handklæðum og blóðbergs ilmvörur.
Nánari upplýsingar á sala@lindesign.is.
Skoðaðu úrvalið á www.lindesign.is
GLERÁRTORGI | SMÁRATORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
1287. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar-
þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 12. febrúar
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á
því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á
beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, •
mánudaginn 11. febrúar kl. 20:00.
Framsókn og frjálsir í Stúkuhúsinu, mánudaginn • 11. febrúar
kl. 20:00.
Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, laugar• daginn 9.
febrúar kl. 10:30.
Bæjarstjórnarfundur
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 12. febrúar 2019
kl. 20:30 í Bókhlöðu Snorrastofu
Ögn um útfararsiði
Þórólfur Sveinsson á Ferjubakka flytur
Fjallað verður um fjölmargt,
sem tengist útförum fyrr og nú,
mest um húskveðjuna, sið sem
kom og fór.
Kaffiveitingar og umræður
Aðgangur kr. 500
Verið velkomin
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Nú í vetur hafa nemendur á ung-
lingastigi Grunnskóla Snæfells-
bæjar tekið þátt í spurningakeppni
í skólanum sem ber nafnið Visk-
an. Fyrirkomulag keppninnar er
svipað og í Útsvari og nemendum
því blandað saman í lið. Voru þrír í
hverju liði. Krakkarnir stóðu sig öll
mjög vel og var keppt til úrslita nú
eftir áramótin. Sigurvegarar í Visk-
unni 2018 voru þau Hreinn Ingi
Halldórsson í 9. bekk, Eir Fann-
arsdóttir í 10. bekk og Benedikt
Gunnarsson í 10. bekk. Sigurliðið
fékk Viskuna afhenta en Viskan er
farandbikar og verður hann veittur
á hverju ári ásamt því að nöfn sigur-
vegaranna verða merkt á hann. Að
auki fengu sigurvegararnir gjafa-
bréf fyrir pitsu og kók á Skerinu.
þa
Sigurvegarar Viskunnar í GSNB
Ingibjörg Guðjónsdóttir, handverks-
kona á Akranesi, heldur bútasaums-
sýningu á Bókasafni Akraness, dag-
ana 8. febrúar til 8. mars næstkom-
andi. Ingibjörg er fædd 1949 og upp-
alin á Arkarlæk í Skilmannahreppi.
Hún flutti til Akraness 16 ára gömul,
þar sem hún hefur verið búsett síðan.
Ingibjörg, sem alltaf er kölluð Inga,
er sjúkraliði og vinnur á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands á Akranesi en
hún er gift Jóni Ármanni Einarssyni.
Á sýningunni á Bókasafninu sýnir
Inga fjölbreytt handverk, handunn-
in teppi og vélsaumuð. Hún teiknar
sjálf upp og litar eigin mynstur og
segist fá mikla ánægju út úr því að
skapa allt frá grunni. Á sýningunni
gefur að líta fyrsta teppið sem Inga
saumaði árið 1986. Síðan þá hef-
ur hún saumað ógrynni teppa, fjöl-
breytt að litum og formi.
Inga var lengi í saumaklúbbn-
um Skagaquilt á Akranesi, en þegar
fækkaði í hópnum á Skaganum færði
hún sig yfir í Skraddaralýsnar, búta-
saumshóp í Hvalfjarðarsveit. Skradd-
aralýs hittast reglulega í félagsheim-
ilinu Fannahlíð.
Þetta er 25. sýning Ingu, en hún
hefur tekið þátt í fjölmörgum sam-
sýningum auk þess að sýna ein sitt
handverk. Fyrsta sýning hennar var
árið 1990, heima í stofu. Verk hennar
hafa farið víða og var m.a. verk eft-
ir hana valið af Íslenska bútasaums-
félaginu árið 2006 til að taka þátt í
samsýningu sem fór víða um Evrópu,
farandssýning sem stóð yfir í þrjú ár.
Auk þess tók hún þátt í Quiltsýningu
í Birmingham fyrir hönd Íslenska
bútasaumsfélagið árið 2014.
„Sýningin verður opin á afgreiðslu-
tíma Bókasafnsins, virka daga kl.
12-18 og á laugardögum kl. 11-14.
Allir eru hjartanlega velkomnir við
opnun sýningarinnar föstudaginn 8.
febrúar kl. 16-18,“ segir í tilkynn-
ingu frá Bókasafni Akraness.
mm/hj
Líf í tuskunum hjá Ingu Guðjóns
Handverkskonan Ingibjörg Guðjónsdóttir á Akranesi. Ljósm. úr safni Skessuhorns frá 2016.