Skessuhorn - 06.02.2019, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 21
aðgengi almennings að heilbrigð-
isstarfsmanni þar sem ráðlegging-
ar eru veittar um viðeigandi heil-
brigðisþjónustu á réttum tíma, á
réttum stað og réttri stund. Fjöl-
margir Skagamenn hafa, undanfar-
in þrjú ár, nýtt sér fjarhjúkrun um
síma og mér hefur borist til eyrna
ánægja fólks með þjónustuna. Sjálf
er ég mjög ánægð með þjónustuna
og hef mikla trú á að það sé hægt
að gera stóra góða hluti með þess-
ar tegund af hjúkrun. Ég hef þá
trú að við eigum eftir að sjá meira
af fjarhjúkrun um síma í framtíð-
inni, við þurfum bara að vekja at-
hygli á henni, hvað hjúkrunin fel-
ur í sér og hugsanlegan ávinning
hennar. Í meistaranámi mínu sem
ég lauk á síðasta ári framkvæmdi
ég rannsókn sem bar heitið; Fjar-
hjúkrun um síma á Íslandi, inntak
starfsins eins og hjúkrunarfræð-
ingar lýsa því; eigindleg lýsandi
rannsókn. Þessi rannsókn segir til
um hvernig hjúkrunarfræðingar
framkvæma fjarhjúkrun um síma,
hvað er gott og vel gert og hvað
skortir. Mig langar til að setja hér
fram ágrip af rannsókninni.
Ágrip rannsóknar um
fjarhjúkrun um síma
Fjarhjúkrun um síma (e.telenurs-
ing) er ein tegund fjarheilbrigð-
isþjónustu á Íslandi. Þjónustunni
er ætlað að auðvelda almenn-
ingi aðgang að heilbrigðisstarfs-
manni og sporna gegn óþarfa og
rangri notkun á grunnþjónustu og
kostnaðarsömum bráðadeildum.
Tilgangur rannsóknarinnar er að
varpa ljósi á inntak fjarhjúkrunar
um síma á Íslandi að mati hjúkr-
unarfræðinga sem starfa við hana.
Rannsóknin er lýsandi eigind-
leg rannsókn með hálfstöðluðum
viðtalsramma. Úrtak er einsleitt
tilgangsúrtak, alls 17 hjúkrunar-
fræðingar sem starfa við fjarhjúkr-
un um síma og voru þátttakendur
þrettán eða 76,5%. Gögnin voru
innihaldsgreind og fimm flokkar
fundnir sem lýstu því hvað felst í
fjarhjúkruninni. Yfirflokkur; að
tryggja öryggi. Undirflokkar; 1)
beiting vísindalegrar aðferðar; 2)
beiting heildrænnar einstaklings-
hæfðrar nálgunar; 3) þróun á færni
í að greina hið óséða; 4) innri og
ytri ógnir. Niðurstöður rannsókn-
arinnar benda til þess að fjarhjúkr-
un um síma felist fyrst og fremst í
því að tryggja öryggi þjónustunn-
ar fyrir skjólstæðinga og hjúkrun-
arfræðinga í þeim aðstæðum sem
þeir eru þegar símtal á sér stað.
Hjúkrunarfræðingarnir tryggja
öryggi þjónustunnar með því að
nota vísindalegar aðferðir hjúkr-
unar eða hjúkrunarferli sem fel-
ur í sér upplýsingasöfnun, grein-
ingu og ráðgjöf. Þeir veita einstak-
lingshæfða þjónustu og sýna af sér
hæfni í listinni að hjúkra þar sem
þeir flétta saman eigin hjúkrun-
arþekkingu, færni og faglegri og
persónulegri reynslu við upplýs-
ingar frá skjólstæðingum og eru
meðvitaðir um þætti sem geta haft
áhrif á öryggi fjarhjúkrunarinn-
ar. Þannig ná hjúkrunarfræðingar
að þekkja skjólstæðinginn, byggja
upp mynd af honum, gera heild-
rænt mat á heilbrigðisvanda og
veita viðeigandi ráðgjöf.
Rannsóknarniðurstöður gefa
hagnýtar upplýsingar um hvað
fjarhjúkrun um síma felur í sér,
hvers hún krefst af hjúkrunar-
fræðingum og hvar skórinn krepp-
ir. Niðurstöðurnar geta nýst sem
grunnur að umbótum á fjarhjúkr-
un um síma. Frekari rannsókna er
þörf á viðfangsefninu sem og þró-
unar á gagnreyndum leiðbeining-
um og kennsluefni. Greina þarf
hvernig nýta má sem best fjar-
hjúkrun um síma á Íslandi.
Ég vona að mér hafi tekist að
gefa ykkur lesendum góðum smá
innsýn í starf mitt á heilsugæsl-
unni Akranesi og ég hvet ykkur til
að nýta ykkur þjónustu hjúkrunar-
fræðinga á heilsugæslunni.
Hulda Gestsdóttir
Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Af því tilefni ætlar stjórn deildar
hjúkrunarfræðinga á Akranesi og
nágrennis að standa fyrir því að
birta greinar eftir hjúkrunarfræð-
inga í Skessuhorni. Greinarnar
verða birtar jafnt og þétt yfir af-
mælisárið og í þeim munu lesend-
um fá smá innsýn í þau fjölbreyttu
störf og áskoranir sem hjúkrunar-
fræðingar fást við. Hulda Gests-
dóttir, hjúkrunarfræðingur á Akra-
nesi, ritar:
Verkefnastjóri á heilsu-
gæslunni á Akranesi
Ég heiti Hulda Gestsdóttir og er
hjúkrunarfræðingur. Ég er bú-
sett á Akranesi og starfa sem verk-
efnastjóri á heilsugæslunni á Akra-
nesi. Ég á unnusta sem heitir Elías
Halldór Ólafsson og saman eigum
við fjögur börn á aldrinum 10–26
ára. Ég útskrifaðist með BSc. úr
hjúkrunarfræðum frá Háskóla Ís-
lands árið 2003, kláraði kennslu-
réttindanám heilbrigðisgreina frá
HÍ árið 2008 og lauk meistara-
prófi í hjúkrun árið 2018 frá HÍ.
Ég hef að mestu unnið við heilsu-
gæsluhjúkrun á mínum starfsferli
en hef unnið öðru hvoru í deild-
arvinnu og líkað það mjög vel. Í
dag starfa ég sem verkefnastjóri á
heilsugæslunni á Akranesi og mig
langar til að segja ykkur frá því
hvað ég geri þar. Starf mitt þar er
tvíþætt og felur í sér móttöku og
umönnun skjólstæðinga á hjúkr-
unarstýrðri móttöku og samskipti
og umönnun skjólstæðinga í gegn-
um síma eða fjarhjúkrun um síma.
Hjúkrunarstýrð
móttaka
Á heilsugæslunni á Akranesi er
starfrækt hjúkrunarstýrð mót-
taka þar sem hjúkrunarfræðingar,
í nánu samstarfi við lækna stöðv-
arinnar, bera ábyrgð á klínísku
mati á heilbrigðisvanda skjólstæð-
inga og meðferð þeirra. Markmið
þjónustunnar er að koma til móts
við skjólstæðinga og auðvelda að-
gengi að heilbrigðisþjónustu og
að forgangsflokka bráðleika ein-
kenna og koma fólki í réttan far-
veg, hvort heldur sem er með
hjúkrunaríhlutun sem þá hjúkr-
unarfræðingar afgreiða eða tilvís-
un áfram á lækna stöðvarinnar til
læknisfræðilegrar íhlutunar. Það
eru ótal verk sem ég framkvæmi í
þessu starfi og meðal annars sár-
og sárameðferð, blóðþrýstings-
eftirlit, líkamsmat eins og lungna-
hlustun, eyrnaskoðun og mat á
húð. Ég gef lyf, sprautur, bólu-
setningar, t.d. ferðamannabólu-
setningar og starfsmannabólu-
setningar og framkvæmi alls kyns
rannsóknir eins og hjartalínurit,
öndunarpróf og heyrnamælingu.
Síðast en ekki síst þá sinni ég and-
legri líðan skjólstæðinga og býð
upp á fjölskylduviðtöl þegar talin
er þörf á því.
Fjarhjúkrun um síma
Í fjarhjúkrun um síma sinni ég
skjólstæðingum í gegnum símann
þar sem ég greini og forgangsraða
bráðleika heilbrigðisvanda, veiti
heilbrigðisráðgjöf og vegvísun í
heilbrigðiskerfinu og miðla heil-
brigðisupplýsingum eins og nið-
urstöðum rannsókna. Markmiðið
með þjónustunni er að auðvelda
Hefur trú á að hægt sé að gera stóra
hluti með fjarhjúkrun um síma