Skessuhorn - 06.02.2019, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 25
Snæfellsbær -
miðvikudagur 6. febrúar
Foreldrakaffi leikskólabarna.
Í tilefni af degi leikskólans er
fjölskyldum leikskólabarna á
Kríubóli og Krílakoti boðið í
morgunkaffi á leikskólanum illi
klukkan 8:00 og 9:00. Foreldrar
mæta þá með börnum sínum
í sinn leikskóla þar sem verður
hægt að kynna sér starfið og eiga
góða stund með börnunum.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 6. febrúar
Þekkir þú fólkið á myndinni?
Myndaskoðun úr ljósmyndasafni
Stykkishólms á Amtsbókasafninu
kl. 10:00.
Dalabyggð -
miðvikudagur 6. febrúar
Dagur leikskólans í Auðarskóla. Í
tilefni af Degi leikskólans er mikil
dagskrá á leikskóla Auðarskóla
allan daginn. Dagskránni lýkur
með því að íbúum Dalabyggðar
og öðrum gestum er boðið í
vöfflukaffi í Auðarskóla kl. 14:00
til 16:00.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 6. febrúar
Vesturlandsslagur í körfunni.
Snæfell tekur á móti Skallagrími í
Domino‘s deild kvenna. Leikurinn
hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu í
Stykkishólmi.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 7. febrúar
Alzheimerkaffi í Félagsbæ
kl. 17:00 til 18:30. Berglind
Indriðadóttir hjá Farsælli öldrun
- þekkingarmiðstöð, kemur
og fjallar um mikilvægi virkni
í daglegu lífi með heilabilun.
Kaffiveitingar, söngur og
gleði. Kaffikjald er kr. 500. Allir
velkomnir.
Stykkishólmur -
föstudagur 8. febrúar
Snæfell mætir Hetti í 1. deild
karla í körfuknattleik. Leikurinn
hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu í
Stykkishólmi.
Borgarbyggð -
föstudagur 8. febrúar
Félagsvist Kvenfélags Hvítársíðu
í Brúarási kl. 20:30. Verðlaun og
veitingar í lokin.
Akranes -
laugardagur 9. febrúar
Krakkaspjall á Bókasafni Akraness
kl. 11:00. Bókaklúbbur fyrir 9-12
ára krakka (aðrir áhugasamir
velkomnir líka). Spjallað um allt;
bækur, myndasögur, rafbækur,
hljóðbækur. Allir mega koma
með sína bók til að tala um. Boðið
upp á djús og kex. Umsjón með
Krakkaspjalli hefur Katrín Lilja
Jónsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans.
Dalabyggð -
laugardagur 9. febrúar
Þorrablót Suður-Dala í Árbliki.
Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald
hefst kl. 20:00. Engu til sparað
í veitingum, dansi, söng og
gleði. Útlitsþema kvöldsins er
„umhverfisvænt, endurnýtt,
skreytt og skáldað“. Matur frá
Dalakoti. Hljómsveitin Duplex
leikur fyrir dansi. Nánar á
Facebook-síðu viðburðarins.
Borgarbyggð -
laugardagur 9. febrúar
Borgarnesblótið 2019 í
Hjálmakletti. Veislustjórar eru
Orri Sveinn og Ingi Björn. Laddi
kemur og kitlar hláturtaugar
gesta. Borgnesingur ársins verður
útnefndur. Myndband í boði KB
(Kvikmyndafélags Borgarness).
Hljómsveitin Bland leikur fyrir
dansi. Húsið opnar kl. 19:30 og
borðhald hefst 20:30.
Borgarbyggð -
laugardagur 9. febrúar
Grettissaga Einars Kárasonar á
Sögulofti Landnámssetursins
í Borgarnesi kl. 20:00. Einn af
okkar virtustu rithöfundum og
rómuðustu sagnamönnum, Einar
Kárason, mun stíga á stokk á
Söguloftinu í Landnássetrinu í
Borgarnesi og flytja Grettissögu.
Einar er sá listamaður sem hefur
verið með flestar frumsýningar í
Landnámssetrinu. Nú ætlar hann
að segja okkur eina vinsælustu
Íslendingasöguna, söguna
um ógæfumanninn Grettir
Ásmundsson. Miðasala á www.
landnam.is.
Borgarbyggð -
laugardagur 9. febrúar
Þorrablót í Logalandi. Húsið
opnar 20:30 og borðhald
hefst stundvíslega kl. 21:00.
Veislustjóri er Jón Gnarr.
Hljómsveitin Meginstreymi
leikur fyrir dansi. Sjá nánar á
Facebook-viðburðinum: Þorrablót
í Logalandi 2019.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
2. febrúar. Drengur. Þyngd:
3.838 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar:
Lilja Björg Gunnarsdóttir og
Sunday Ekwugwum, Kópavogi.
Ljósmóðir: Hrafnhildur
Ólafsdóttir.
3. febrúar. Drengur. Þyngd:
3.728 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar:
Signý Sigurlaug Smáradóttir og
Helgi Valur Gylfason, Reykjavík.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
Leita að leiguhúsnæði
Halló, halló! Ég heiti Lilja og er
að leita að 2-3 herbergja íbúð
eða stúdíóíbúð á Akranesi.
Væri betra ef dýrahald er leyft.
Greiðslugeta er í mesta lagi
180 þúsund og ég gæti flutt
inn strax. Er reglusöm, róleg
og það er ekkert óþarfa vesen
á mér. Vinsamlegast hafið
samband í síma 661-3267.
Húsnæði á landsbyggðinni
Ég er 34 ára gamall drengur,
fæddur og uppalinn í
Búðardal og langar að flytja
á Vesturlandið aftur. Óska
eftir húsnæði frá apríl 2019.
Tölvupóstur: benni.joh@gmail.
com.
Markaðstorg
Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug, við andlát og útför
ástkærs föður okkar, afa og langafa
Ragnars Sveins Olgeirssonar,
áður bónda á Oddsstöðum
í Lundarreykjadal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar í Borgarnesi, fyrir einstaklega góða
umönnun og hlýju.
Sigurður Oddur Ragnarsson Guðbjörg Ólafsdóttir
Olgeir Helgi Ragnarsson Theodóra Þorsteinsdóttir
barnabörn og langafasynir
Borgarbyggð -
þriðjudagur 12. febrúar
Ögn um útfararsiði - Fyrirlestur
Þórólfs Sveinssonar frá
Ferjubakka í Snorrastofu kl.
20:30. Fyrirlesturinn fellur í röð
stofnunarinnar, Fyrirlestrar í héraði,
sem að jafnaði eru einu sinni í
mánuði að vetrinum. Þórólfur
fjallar mest um húskveðjuna,
sið sem kom og fór. Þá verður í
fyrirlestrinum fjölmargt annað
sem tengist útförum fyrr og nú
en lítið sem ekkert um trúarlega
hlið útfararsiða. Kaffiveitingar og
umræður að fyrirlesti loknum.
Aðgangseyrir er kr. 500.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 14. febrúar
Myndamorgunn í Safnahúsi
Borgarfjarðar kl. 10:00 til 11:30.
Gestir greina ljósmyndir á
Héraðsskjalasafni.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 14. febrúar
Fyrirlestur Þóru Elfu Björnsson
um heimilisfólkið á Svarfhóli í
Stafholtstungum, hjónin Björn
Ásmundsson og Þuríði Jónsdóttur,
sem þar bjuggu á 19. öld og eftir
aldamótin 1900. Fyrirlesturinn
hefst kl. 19:30 í Safnahúsi
Borgarfjarðar.