Skessuhorn - 06.02.2019, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Aðalfundur KFÍA 2019
Aðalfundur KFÍA verður haldinn mánudaginn 18. febrúar,
næstkomandi, kl. 20:00 í hátíðarsalnum að Jaðarsbökkum.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aðalfundarstörf
Áhugasamir aðilar sem hafa hug á að starfa í stjórnum fé-
lagsins eru vinsamlegast beðnir um að snúa sér til kjörnef-
ndar sem í sitja Magnús Brandsson (magnus.brandsson@
islandsbanki.is), Jónína Víglundsdóttir (jonavig@gmail.com)
og Þórður Guðjónsson (thordur@skeljungur.is).
Stjórn Knattspyrnufélags ÍA
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Góð vika er að baki hjá Skallagríms-
mönnum í Domino‘s deild karla í
körfuknattleik. Á föstudag bundu
þeir enda á langa taphrinu þeg-
ar þeir sigruðu botnlið Breiðabliks
með 91 stigi gegn 90. Var það fyrsti
sigur Skallagríms í deildinni síðan í
október. Þeir héldu síðan upptekn-
um hætti á mánudagskvöld þeg-
ar þeir fengu Hauka í heimsókn í
Borgarnes. Leikurinn var hnífjafn
og spennandi en Skallagrímsmenn
voru áræðnir og yfirvegaðir á loka-
mínútunum og sigruðu með einu
stigi, 80-79.
Haukar byrjuðu leikinn betur á
mánudaginn en Borgnesingar voru
aldrei langt undan. Þeir komu sér
þétt upp að hlið gestanna seint í
fyrsta leikhluta og komust yfir áður
en hann var úti, 22-21. Mikið jafn-
ræði var með liðunum í öðrum
fjórðungi. Skallagrímsmenn leiddu
mest með fimm stigum en Haukar
fylgdu þeim eins og skugginn. Borg-
nesingar létu forskotið þó aldrei af
hendi og voru þremur stigum yfir í
hléinu, 44-41.
Skallagrímsmenn náðu góðum
kafla snemma í þriðja leikhluta og
níu stiga forskoti í stöðunni 60-51.
Haukar svöruðu fyrir sig og jöfnuðu
áður en leikhlutinn var úti í 66-66.
Þeir skoruðu síðan fyrstu sex stig
lokafjórðungsins en Skallagríms-
menn komu til baka og jöfnuðu í
74-74 þegar fimm mínútur voru
eftir. Liðin fylgdust að næstu mín-
úturnar og leikurinn var hnífjafn.
Borgnesingar voru bæði áræðnir
og yfirvegaðir í aðgerðum sínum á
lokaandartökum leiksins. Þrátt fyrir
að brenna af tveimur vítum síðustu
30 sekúndurnar komust þeir fjórum
stigum yfir á lokaandartökum leiks-
ins. Það kom því ekki að sök þeg-
ar Haukar settu þriggja stiga skot
með tvær sekúndur á klukkunni.
Skallagrímur sigraði með einu stigi,
80-79.
Domagoj Samac var atkvæða-
mestur í liði Skallagríms með 21 stig
og tíu fráköst. Aundre Jackson skor-
aði 14 stig og tók tíu fráköst, Eyj-
ólfur Ásberg Halldórsson var með
13 stig og sjö stoðsendingar, Matej
Buovac skoraði tólf stig og tók sex
fráköst og Björgvin Hafþór Rík-
harðsson var með ellefu stig, fimm
fráköst og sex stoðsendingar.
Hilmar Smári Henningsson var
öflugastur gestanna með 21 stig,
fimm fráköst og sex stoðsendingar.
Haukur Óskarsson skoraði 16 stig
og gaf fimm stoðsendingar og Rus-
sel Woods jr. var með 14 stig og átta
fráköst.
Með öðrum sigurleik sínum hafa
Skallagrímsmenn galopnað botn-
baráttu Domino‘s deildarinnar.
Borgnesingar hafa átta stig í ellefta
sæti og er tveimur stigum á eftir liði
Vals í sætinu fyrir ofan. Næst leik-
ur Skallagrímur á morgun, fimmtu-
daginn 7. febrúar, þegar liðið mætir
Keflvíkingum á útivelli. kgk
Tveir sigrar hjá
Skallagrími í vikunni
Eyjólfur Ásberg Halldórsson fer framhjá varnarmönnum Hauka í leiknum á
mánudagskvöld. Ljósm. Skallagrímur.
Skagamenn unnu góðan sigur á
Ármanni í 2. deild karla í körfu-
knattleik á fimmtudagskvöld,
106-89. Leikið var í íþróttahúsinu
við Vesturgötu á Akranesi. Skaga-
menn voru sterkari í upphafsfjórð-
ungnum og leiddu með 14 stig-
um að honum loknum, 31-17. Ár-
menningar komu aðeins til baka
í öðrum leikhluta áður en Skaga-
menn tóku góða rispu og leiddu
með 15 stigum í hálfleik, 56-41.
Gestirnir minnkuðu muninn
í sex stig í upphafi síðari hálf-
leiks. En eftir það hafði ÍA undir-
tökin á vellinum og með góðum
kafla tryggðu þeir sér 24 stiga for-
skot fyrir lokafjórðunginn. Stað-
an 81-65 og Skagamenn komnir
í vænlega stöðu. Þeir héldu Ár-
menningum í skefjum í fjórða leik-
hluta og unnu að lokum með 17
stigum, 106-89.
Arnar Smári Bjarnason var stiga-
hæstur í liði ÍA með 25 stig, Hjalti
Ásberg Þorleifsson skoraði 15, Je-
rome Cheadle var með 13 stig og
Jón Frímannsson ellefu.
Í liði gestanna var Arnór Fjalars-
son stigahæstur með 33 stig, Guð-
jón Hlynur Sigurðarson skoraði
19 stig og Brynjar Birgisson lauk
leik með tólf stig.
Skagamenn hafa 13 stig í fjórða
sæti deildarinnar, jafn mörg og KR
B í sætinu fyrir ofan og tveimur
stigum meira en KV í sætinu fyrir
neðan. Næst leikur ÍA sunnudag-
inn 10. febrúar næstkomandi, þeg-
ar liðið heimsækir Val B.
kgk
Skagamenn sterkari allan tímann
Arnar Smári Bjarnason átti góðan leik
þegar ÍA sigraði Ármann. Ljósm. jho.
Snæfell heimsótti KR í topp-
slag átjándu umferðar Domino‘s
deildar kvenna á miðvikudags-
kvöld. Skemmst er frá því að segja
að Snæfellskonur áttu ekki góðan
dag. Þær fundu aldrei taktinn og
töpuðu að lokum stórt, 90-54.
Snæfellskonur byrjuðu leikinn
illa og skoruðu aðeins níu stig allan
fyrsta leikhlutann. Á meðan skor-
aði KR 19 stig og var komið með
þægilega forystu eftir fyrstu tíu
mínúturnar. Leikur Snæfells batn-
aði eftir því sem leið á en KR réði
áfram lögum og lofum á vellinum
og gætti þess að hleypa Hólmurum
ekki inn í leikinn. Staðan í hálfleik
var 44-23 og KR-ingar með unn-
inn leik í höndunum.
Munurinn á liðunum hélst meira
og minna óbreyttur í þriðja leik-
hluta og KR-leiddi með 22 stig-
um fyrir lokafjórðunginn, 66-44.
Í fjórða leikhluta bættu heimakon-
ur við forskotið og unnu að lokum
stórsigur, 90-54.
Kristen McCarthy var atkvæða-
mest í liði Snæfells með 18 stig,
13 fráköst og fimm stoðsendingar.
Gunnhildur Gunnarsdóttir skor-
aði 15 stig og tók sjö fráköst en
aðrar höfðu minna.
Kiana Johnson skoraði 28 stig
fyrir KR, tók níu fráköst og gaf
átta stoðsendingar. Þorbjörg Andr-
ea Friðriksdóttir skoraði 20 stig og
tók sex fráköst og Orla O‘Reilly
var með 15 stig, sex fráköst og átta
stoðsendingar.
Snæfell hefur 22 stig í fjórða sæti
deildinnar, tveimur stigum á eftir
Val en með tveggja stiga forskot á
Stjörnuna í sætinu fyrir neðan.
Næsti leikur Snæfells er Vestur-
landsslagur gegn Skallagrími. Sá
leikur fer fram í Stykkishólmi í
kvöld, miðvikudaginn 6. febrúar.
kgk
Snæfellskonur fundu aldrei taktinn
Kristen McCarthy og liðsfélagar
hennar í Snæfelli náðu sér ekki á strik
gegn KR. Ljósm. sá.
Snæfellingar töpuðu stórt gegn
Vestra, 105-63, þegar liðin mætt-
ust í 1. deild karla í körfuknattleik
á föstudagskvöld. Leikið var á Ísa-
firði.
Heimamenn komu mjög ákveðn-
ir til leiks og ætluðu sér að gera út
um leikinn strax í upphafsfjórð-
ungnum. Staðan var 36-11 og Vestri
kominn í vænlega stöðu eftir fyrsta
leikhluta. Snæfellingar léku betur í
öðrum fjórðungi, minnkuðu mun-
inn niður í 19 stig, 47-26 en þá tóku
heimamenn góðan sprett og fóru
með 29 stiga forskot inn í hálfleik-
inn, 58-29.
Vestramenn byrjuðu síðari hálf-
leikinn af krafti, keyrðu upp hraðann
og skoruðu 15 stig af 18 fyrstu stig-
unum í þriðja leikhluta. Þeir héldu
uppteknum hætti og náðu mest 54
stiga forskoti snemma í fjórða leik-
hluta. Snæfellingar náðu aðeins
að koma til baka og laga stöðuna á
lokamínútunum, en töpuðu að lok-
um stórt, 105-63.
Ísak Örn Baldursson var atkvæða-
mestur í lið Snæfells með 14 stig og
Aron Ingi Hinriksson skoraði ellefu
en aðrir komust ekki í tveggja stafa
tölu á stigatöflunni.
Jure Gunjina var stigahæstur í liði
heimamanna með 18 stig en Ne-
bosja Knazevic var að öðrum ólöst-
uðum maður leiksins. Jann skoraði
17 stig og gaf 17 stoðsendingar í liði
Vestra og tapaði engum bolta. Hugi
Hallgrímsson skoraði 17 stig einn-
ig, Ingimar Baldursson skoraði 12
stig, Nemanja Knazevic skoraði ell-
efu stig og tók 16 fráköst og Hilmir
Hallgrímsson var með tíu stig.
Snæfell vermir botnsæti deildar-
innar með tvö stig eftir 15 leiki, jafn
mörg og Sindri í sætinu fyrir ofan en
Hólmarar eiga leik til góða. Næst
leika þeir á föstudaginn, 8. febrú-
ar, þegar þeir mæta Hetti í Stykkis-
hólmi.
kgk
Stórt tap Snæfellinga
Ísak Örn Baldursson var atkvæðamestur Snæfellinga í tapinu gegn Vestra. Ljósm. sá.