Skessuhorn


Skessuhorn - 19.06.2019, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 19.06.2019, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 201916 Hópur fólks á Akranesi, sem á það sameiginlegt að hafa veikst vegna rakaskemmda og myglu í atvinnuhúsnæði, hefur ritað landlækni bréf. Farið er fram á að landlæknisembættið beiti sér fyrir aðgerðum í heilbrigðiskerf- inu vegna veikinda sem rekja má til sýkts húsnæðis. Hópurinn sér sig knúinn til að fara fram á þetta þar sem hann stendur frammi fyrir ráðaleysi sérfræðinga þeg- ar kemur að veikindum sem rekja má til rakaskemmda. „Það eru jafnvel til læknar sem væna sjúk- linga um ímyndunarveiki. Kerf- ið er því máttlaust þegar kem- ur að þessu,“ segja viðmælendur Skessuhorns. Í bréfi þeirra seg- ir meðal annars: „Við eigum það öll sameiginlegt að glíma við veikindi vegna staðfestra raka- skemmda og myglu á vinnustað og höfum leitað til lækna sem búa yfir ólíkri sérfræðiþekkingu í þeirri von að fá leiðbeiningar og aðstoð við að ná bata. Það hef- ur oftast, því miður, borið lítinn árangur,“ segir í upphafi bréfs- ins. Þá er bent á að mygla sé hið nýja asbest og beri að meðhöndla sem slíkt. Blaðamaður Skessuhorns sett- ist niður með nokkrum þeirra sem standa að ritun ákallsins til lands- læknis. Fólkið býr allt á Akranesi en hefur veikst vegna rakaskemmda og myglu á vinnustöðum bæði á höf- uðborgarsvæðinu en þó einkum á Akranesi. Hluti hópsins biðst und- an að koma fram undir nafni, en þær Kolbrún Sandra Hreinsdótt- ir og Ragnheiður Sigurðardótt- ir samþykkja að gera það, ekki síst til að lesendur leggi trúnað við frá- sögn þeirra, en vantrú og höfnun eru einmitt algeng viðbrögð sam- félagsins þegar nýir sjúkdómar, eins og þessir, gera vart við sig. Þær vilja upplýsa almenning um veikindin, að þau séu alvarleg og ekki síst til að fólk geti áttað sig á einkennun- um. Kolbrún er starfsmaður ríkis- skattstjóra, en nýverið var húsnæði RSK við Stillholt á Akranesi rýmt og starfsemin flutt að Kirkjubraut. Hún kveðst þakklát Snorra Ol- sen ríkisskattstjóra fyrir hans með- höndlun á málinu. Í fyrstu hafi ver- ið búið að ákveða að starfsemi RSK yrði áfram í húsinu meðan viðgerð- ir á því færu fram, en daginn eftir að hún sendi honum ítarlega lýsingu á sjúkdómsferli sínu hafi verið ákveð- ið að flytja starfsemina annað. Þegar Ragnheiður veiktist af völdum raka og myglu í atvinnu- húsnæði var fyrirtækið sem hún vinnur hjá til húsa við Bæjarháls í Reykjavík, í húsi Orkuveitu Reykja- víkur. Það hús og fleiri hafa eins og kunnugt er verið sýkt af myglu og rakaskemmdum og hafa ýmist ver- ið rýmd eða jafnvel rifin. Á höf- uðborgarsvæðinu má nefna fyrr- um hús Íslandsbanka við Kirkju- sand, gömlu Heilsuverndarstöðina í Reykjavík sem landlæknir er ný- lega fluttur úr, hluta Landspítalans við Hringbraut og fleiri stofnanir og fyrirtæki. Á Akranesi hefur auk húsnæðis RSK við Stillholt meðal annars verið staðfest mygla í tveim- ur þjónustuhúsum við Dalbraut; húsi Orkuveitunnar og Fjöliðjunni. Þannig að raki og mygla í húsnæði finnst víða. Húsasótt víðfeðmara orð En hvers vegna skyldi mygla og rakaskemmdir hafa þessar alvar- legu afleiðingar á fólk og er þetta nýtt fyrirbrigði? Líklega hafa margir heyrt minnst á orðið húsa- sótt. Öfgakennd tilfelli húsasóttar voru einmitt rakin til raka sem náð hafði að búa um sig í byggingarefn- um vegna t.d. lélegrar loftræsing- ar. Viðmælendur Skessuhorns segja að um sé að ræða myglugró sem nái við vissar aðstæður, þ.e. vegna raka, galla í byggingu, byggingar- efnum eða hönnunar húsa, að búa um sig. Tegundirnar Aspergillus og Penicillum mynda eiturefni sem eru heilsuspillandi mönnum. Sumar Aspergillus tegundir framleiða afla- toxín sem eru best þekktu sveppa- eiturefnin en þau eru meðal eitruð- ustu efna sem til eru og þar að auki krabbameinsvaldandi. Aspergillus tegundir valda ofnæmi og astma en lítil gróin berast auðveldlega niður í lungu (Fungal glossary, Aspergillus, skv. heimasíðu Mycotoxins). Þannig getur byggingarefni einnig leyst frá sér eiturefni sem smjúga út í and- rúmsloftið og eitri það. Þetta geta verið gólfdúkar, klæðningarplötur og gifs. Í myglusýktu húsnæði hef- ur jafnvel orðið að farga húsgögn- un, pappír og öðru sem ekki er hægt að þrífa með sérstökum hætti. Þrátt fyrir að ýmsar staðreyndir liggi fyr- ir um byggingarefni hefur ekki ein ákveðin skilgreining verið sett fram um húsasótt eða myglu. Hvort held- ur vitnað sé í læknisfræði eða verk- fræði. „Þó er hægt að sammælast um eftirfarandi skilgreiningu: „Þeg- ar íbúar húss (einn eða fleiri) hafa óæskileg líkamleg eða andleg ein- kenni/óþægindi sem tengja má dvöl í rými,“ segir á vef Verkís, en þar segir einnig um húsasótt: „Hjá fyr- irtæki sem þjáist af húsasótt má bú- ast við að starfsmenn sýni eftirfar- andi einkenni: Óútskýrð fjarvera, aukin veikindatíðni, minni afköst og starfsánægja sem getur leitt af sér háa starfsmannaveltu. Einnig hafa rannsóknir sýnt að of hátt hitastig minnkar afköst verulega.“ Alvarleg veikindi Ekki fór á milli mála að fólkið sem myndar hópinn sem blaðamaður ræddi við á Akranesi þjáist af afleið- ingum myglu og rakaskemmda. Ein- kennin eru svipuð hjá þeim öllum, en í stuttu máli lýsa þau sér sem höf- uðverkur, lið- og beinverkir, jafnvel taugaverkir og á margan hátt eins og flensa. „Auk þess eru einkenni á borð við hjartsláttartruflanir, melt- ingarvandamál, innri kuldi, sár í húð og munni, flökurleiki og dep- urð. Almennt verður mikil skerð- ing á lífsgæðum. Veikindunum get- ur fylgt mikil þreyta og verður sjúk- lingur jafnvel rúmliggjandi og ófær að leysa verkefni daglegs lífs. Augu þorna og óþægindi eru í öndunar- vegi sem lýsir sér sem hæsi, bólg- ur og bjúgur í hálsi. Raddleysi get- ur fylgt þrálátum bólgum í hálsi og raddböndum. „Við erum „bjúguð“ alla daga, bara mismunandi mikið,“ segir Kolbrún Sandra. „Sjúkdómseinkenni okkar skar- ast að hluta og hjá sumum lýsa þau sér eins. En það er ekki algilt,“ seg- ir Kolbrún Sandra. Ragnheiður kveðst hafa orðið að vera langdvöl- um frá vinnu vegna veikinda sinna. Þá þurfi eiginmaður hennar, þegar hann kemur heim úr vinnu, að byrja á að skipta um föt í bílskúrnum, fara í sturtu og klæðast öðrum fötum áður en hann fer inn í íbúðina. „Eft- ir að ég veiktist er ég farin að flokka húsnæði eftir loftgæðum. Ef ég kem inn í húsnæði sem er sýkt finn ég það strax og verð að forða mér út. Get heldur ekki setið í bíl með fólki sem hefur dvalið inni í sýktu húsi. Þannig má segja að þessi sjúkdómur gagntaki mann.“ Þannig lýsir Ragn- heiður því sem í raun eru varnarvið- brögð líkamans, rétt eins og þegar fólk er haldið ofnæmi. „Það sem ger- ist þegar við veikjumst af myglu eða í rakaskemmdu húsnæði á sér stað eitrun, tankurinn einfaldlega yfir- fyllist og maður getur ekki starfað við slíkar aðstæður,“ segir hún. Kol- brún Sandra bætir við að þessu fylgi allskyns efnaóþol, til dæmis af ilm- og hreinsiefnum. „Ég hafði ávallt verið heilsuhraust og ekki gjörn á að fá umgangspestir áður en ég hóf störf á skattstofunni árið 2007. Smám saman fóru ýmis einkenni að gera vart við sig. Raunar er eins og þetta læðist að manni. Ég var algjör- lega grunlaus um að verri heilsa gæti átt rætur í húsnæðinu sem ég vann í,“ segir Kolbrún Sandra. Litið í baksýnisspegilinn „Þegar litið er í baksýnisspegilinn með þá vitneskju sem ég hef í dag þá var ég orðin veik á árunum 2011 til 2015,“ segir Kolbrún Sandra. „Ég tók upp flestar kvefpestar, var með tíða og mikla höfuðverki ásamt svima sem olli jafnvægis- truflunum. Á árunum 2016-2017 fór mér svo að hraðversna. Á þeim tíma fékk ég svæsnar hálsbólgur og ennisholusýkingar ásamt bronkít- is. Hjá mér lýsti sjúkdómurinn sér sem innri kuldi, meltingartruflanir og magaverkir, daglegir sinadrætt- ir ásamt miklum vöðvaverkjum og stífleika og ég átti af þeim sökum erfitt með svefn. Þessu fylgdi mik- il þreyta og framtaksleysi, gloppótt minni, svimi, stanslaus höfuðverk- ur, sjóntruflanir, skjálfti í höndum, bjúgsöfnun, mæði og opin sár. Allt- af beit ég á jaxlinn. Í apríl í fyrra höfðu einkennin versnað mjög og var ég að lokum sjúkraskráð frá vinnu í júní 2018. Mörg af mín- um einkennum minnkuðu í kjölfar þess og sum hurfu eftir að ég fór út úr húsnæðinu. Það er hræðilegt til þess að hugsa að maður veikist við það eitt að mæta til vinnu þar sem vanræksla á viðhaldi eignarinnar og leki sem hefur verið til staðar frá upphafi hafi rænt mann heilsunni. Í september síðasta haust fór ég til sérfræðings í ofnæmis- og ónæm- islækningum. Reyndist það mikið gæfuspor. Álit hans var að það væri greinilegt orsakasamband á milli vinnustaðar þar sem rakaskemmd- ir væru þekktar auk myglu. Hann sagði að ég ætti ekki að snúa aftur á vinnustað minn fyrr en ljóst væri að húsnæðið væri ekki mögulega heilsuspillandi. Hann tilkynnti mín veikindi til Vinnueftirlitsins. Ég þurfti að glíma við eigin fordóma Skelfilegar afleiðingar myglu í rakaskemmdum húsum „Þurfum að kljást við fordóma í kerfinu og jafnvel höfnun“ Ragnheiður Sigurðardóttir og Kolbrún Sandra Hreinsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.