Skessuhorn - 19.06.2019, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 2019 19
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Deildarstjóri
óskast til starfa í
leikskólanum Skýjaborg,
Hvalfjarðarsveit fyrir
næsta skólaár
Skýjaborg er í tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar
með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku.
Deildarstjórar og leikskólakennarar fá aukin undirbúningstíma
miðað við kjarasamning (leikskólakennarar 5 klst. og
deildarstjórar 7 klst.).
Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms
í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi.
Leikskólakennaranemar geta gert samning og haldið
dagvinnulaunum í staðarlotum og í vettvangsnámi í allt að
7 vikur á ári.
Umsóknarfrestur er til 27. maí næstkomandi.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni, ábyrgð, hæfniskröfur og
Umsjónarmaður eigna í
Hvalfjarðarsveit
Starf umsjónarmanns eigna hjá Hvalfjarðarsveit er laust til umsóknar,
starfshlutfall er 100%. Umsjónarmaður eigna hefur umsjón með
öllum eignum sveitarfélagsins, fasteignum, áhöldum, tækjum, lóðum
og lendum, húsumsjón í Stjórnsýsluhúsi, verkmenntahúsi, grunn- og
F steignir Hvalfj rðarsveitar samanstanda af gru skóla, leikskóla,
stjórnsýsluhúsi, verkmenntahúsi, íþróttahúsi, tveimur sundlaugum,
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Almenn umsjón eigna, eftirlit, viðhald og endurbætur.
• Meta
• Þátttaka í undirbúningi, gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana.
• Leita tilboða, semja við verktaka um stærri verk og hafa eftirlit
með framkvæmd verkefna og verklegra framkvæmda.
• Vöktun aðgangs-, bruna- og öryggiskerfa stofnana.
• Annað tilfallandi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem fellur að verkefnum og ábyrgðarsviði umsjónar-
manns eigna. Sveinspróf í löggiltri iðngrein eða önnur menntun á
• Reynsla af verkumsjón og rekstri er æskileg.
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er nauðsynleg.
• Reynsla af áætlanagerð, s.s. kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð er
æskileg.
• Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg.
• Tölvu- og snjallsímakunnátta er nauðsynleg.
• Ökuréttindi eru nauðsynleg.
• Góð samskipta- og skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð.
• Greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni.
•
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2019. Æskilegt er að
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi.
Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3,
301 Akranesi eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.
síma 896-5141 og á netfanginu bygging@hvalfjardarsveit.is.
og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðar-
sveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar eru næg og fjölbreytt
skólastarf.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á iðnaðarsvæðinu við Grundartanga með
fjölmörgum iðnfyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í
www.hvalfjardarsveit.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Ellert Gissurarson festi fyrir rétt
rúmum fjórum árum kaup á Borgar-
braut 48 í Borgarnesi og hefur síðan
verið að gera húsið hægt og rólega
upp. notar einkum helgar til verks-
ins. „Ég dunda mér við þetta þeg-
ar ég er ekki að vinna,“ segir Ellert
um framkvæmdirnar og segir þær
hafa dregist örlítið. „Ég ætlaði mér
að vera eitt ár að þessu en er nú bú-
inn að vera í fjögur,“ segir hann og
hlær.
Ellert hyggst nýta húsið sem or-
lofshús fyrir sig og konuna sína en
sjálfur færði hann lögheimilið til
Borgarness um daginn sem olli ætt-
ingjum einhverju hugarangri. „Það
komu ný lög sem sögðu að hjón
mættu hafa lögheimilið á sitthvor-
um staðnum svo að ég færði mitt
lögheimili til Borgarness,“ útskýrir
Ellert en hann fæddist og ólst upp á
Þórólfsgötunni og á því mikla teng-
ingu til staðinn. „Ættingjarnir héldu
að við hjónin hefðum skilið! Mig
langaði að gera þetta vegna þess að
það er oft verið að gagnrýna fólk
sem kaupir fasteignir, gerir þær upp,
og ætlar einungis að nota sem sum-
arhús, fyrir að leggja ekki neitt til
samfélagsins. Ég er náttúrlega upp-
haflega Borgnesingur svo að nú fær
sveitarfélagið allavega mitt útsvar,“
segir Ellert ánægður með nýja lög-
heimilið.
Pípan og tóbakið
enn á borðinu
Aðspurður segir Ellert það ekki hafa
verið sérstakan draum eða ákveðið
plan að kaupa fasteign á æskuslóð-
unum. Hann hafi verið að skoða á
fleiri stöðum á landinu en svo sá
hann óvænt húsið við Borgarbraut
48 auglýst til sölu og bauð í það.
„Það var einhver annar sem bauð
á móti mér og þetta fór fram og til
baka. Ég var næstum búinn að gef-
ast upp en á endanum datt það mín
megin,“ segir hann ánægður með
kaupin. „Fyrst þegar ég kem að
skoða var eins og fyrri eigandi hefði
bara gengið út. Pípan hans og pípu-
tóbakið var ennþá á borðinu,“ segir
Ellert þegar hann kíkti í fyrst sinn
í húsið. Lóðin er stór, eða um 700
fermetrar, og húsið í heildina um 80
fermetrar. „Ég gæti sett annað hús
hérna ef mér dytti það í hug,“ segir
hann og hlær.
Endurnýjað að
flestu leyti
Húsið var ekki í góðu ástandi þegar
Ellert festi kaup á því og segir hann
allt hafa verið ónýtt í því. „Ástand-
ið á húsinu var slæmt. Ég braut allt
hérna á milli og mokaði út úr hús-
inu, gólfinu og öllu. Eina sem er eft-
ir er eldavélin og stiginn sem ég ætla
að setja aftur upp. Það er það eina
sem ég held í sem er upprunalegt.“
Í upphafi var planið hjá Ellerti
að gera húsið eins og það var þeg-
ar hann ólst upp, að fallegu stein-
húsi. „Steypan var ónýt og það var
ekki hægt að gera neitt með hana,
því miður. Í staðinn klæddi ég hús-
ið, skipti um alla glugga og lagði
nýtt rafmagn. Í rauninni skipti ég
um allt sem hægt er að skipta um,“
segir Ellert sem er smiður að mennt
og atvinnu. „Það er voða gaman að
koma hingað og allir búnir að taka
mér ofsalega vel. Ég heyrði eitt-
hvað um að það átti að byggja hérna
blokk og fjarlægja þetta hús og húsið
hérna við hliðina einnig. Mér finnst
við eigum að reyna að halda í gömlu
húsin og umhverfið eins og það er
eins og við mögulega getum.“
Fyrir
múmínálfastrákinn
Fyrir rétt rúmum tveimur vik-
um vakti mikla athygli ein viðbót
í garðinum á Borgarbraut 48. Um
er að ræða krúttlegt en myndarlegt
hús sem búið er að reisa í garðin-
um og er áberandi við aðalgötu bæj-
arins. Hús þetta er tveggja hæða, í
laginu eins og turn, fagurblátt á lit
með rautt þak, hvíta glugga og hurð.
Spurðu sumir heimamenn sig hvort
múmínálfarnir hefðu flutt sig um set
í Borgarnes því húsið er keimlíkt því
sem er í Múmíndalnum. „Þetta er
fyrir barnabarnið mitt,“ segir Ellert.
„Það komu margir að skoða húsið
þegar ég setti það upp og virkilega
gaman hvað fólk er almennt ánægt
með þetta,“ bætir hann við glaður.
Húsið kemur frá Finnlandi en þar
er maður sem hannar og smíðar hús
af þessu tagi. „Við fáum einingarn-
ar frá Finnlandi og setjum svo húsið
saman sjálf. Barnabarnið mitt, Vil-
hjálmur Ellert, er mikill múmínál-
fastrákur og byggði ég þetta fyrir
hann. Planið er svo að fara meira í
lóðina í kringum húsið og gera fal-
legt í kring,“ segir Ellert að lokum,
spenntur að sýna barnabarninu sínu
nýja húsið í garðinum.
glh
Það þurfti að endurnýja allt í húsinu. Hér mun eldhúsið verða.
Gerir upp gamalt hús í Borgarnesi
Ellert Gissurarson.
Sumarhúsið og múmínálfahúsið við Borgarbraut 48 í Borgarnesi.
Borgarbraut 48 fyrir fjórum árum síðan, áður en Ellert hóf framkvæmdir.
Múmínálfahúsið hefur heillað
Borgnesinga.
Múmínálfahúsið er á tveimur hæðum.