Skessuhorn - 19.06.2019, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 2019 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skagamenn riðu ekki feitum hesti
frá viðureign sinni gegn erkifjend-
unum í KR á laugardag. Liðin
mættust á Akranesi í áttundu um-
ferð Pepsi Max deildar karla í knatt-
spyrnu. KR-ingar voru sterkari all-
an leikinn og sigruðu að lokum með
þremur mörkum gegn einu.
Skagamenn byrjuðu af krafti og
fengu aukaspyrnu rétt við vinstra
vítateigshornið strax á fyrstu mínú-
tu leiksins. Tryggvi Hrafn Haralds-
son var nálægt því að skora úr au-
kaspyrnunni með glæsilegu sko-
ti sem stefndi upp í nærhornið en
Beitir Ólafsson varði vel frá hon-
um. Á 15. mínútu fengu KR-ingar
vítaspyrnu þegar Kristinn jónsson
féll í teig Skagamanna. Pálmi Rafn
Pálmason fór á punktinn og skoraði
af öryggi.
Eftir markið tóku KR-ingar öll
völd á vellinum og þeir komust í 2-0
á 23. mínútu leiksins. Eftir laglegan
samleik fékk Óskar Örn Hauksson
boltann fyrir utan vítateig. Hann
sneri yfir á hægri og skoraði með
hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. Ge-
stirnir voru mun sterkari allt til
loka fyrri hálfleiks og fengu færi til
að bæta við en Skagamenn virkuðu
aftur á móti heillum horfnir.
Skagamenn voru líflegri í síðari
hálfleik en það voru engu að síður
KR-ingar sem stjórnuðu ferðin-
ni. Eftir því sem leið á leikinn
opnaðist hann meira og fleiri færi
litu dagsins ljós. Tobias Thoms-
en fékk tvö dauðafæri, annað eftir
stangarskot Óskars Arnar, en inn
vildi boltinn ekki. Þriðja mark KR
lá í loftinu og það kom á 80. mínú-
tu. Óskar Örn keyrði inn í teiginn,
lagði boltann fyrir fætur Tobiasar
sem skoraði snyrtilegt mark.
Þremur mínútum síðar minn-
kuðu Skagamenn muninn. Þórður
Þorsteinn Þórðarson sendi góða
fyrirgjöf fyrir mark KR-inga, beint
á kollinn á Viktori jónssyni sem átti
hörkuskalla að marki. Beitir virtist
verja hann í slánna, en þaðan fór
boltinn í stöngina, í bakið á Beiti og
í netið. Viktor var síðan nálægt því
að skora annað mark í uppbótartí-
ma en brenndi af úr dauðafæri og
þar við sat. KR-ingar sigruðu 3-1
og tylla sér því í toppsæti deildarin-
nar.
Skagamenn eru í þriðja sæti með
16 stig, jafn mörg og Breiðablik í
sætinu fyrir ofan en fjórum stigum
á undan næstu liðum. næst leikur
ÍA gegn HK laugardaginn 22. júní
næstkomandi. Sá leikur fer einnig
fram á Akranesi. kgk
Snæfell sigraði KM í miklum mar-
kaleik í 4. deild karla á föstudags-
kvöld. Leikið var í Reykjavík og
þegar flautað var til leiksloka höfðu
Snæfellingar skorað fimm mörk
gegn þremur mörkum heima-
manna.
Snæfell var mun sterkara í fyrri
hálfleik og skoraði fjögur af fimm
mörkum sínum fyrstu 45. mínút-
ur leiksins. Liðið fékk óskabyrjun
þegar Marius Ganusauskas kom
Snæfelli yfir strax á 4. mínútu leiks-
ins. Carles Martinez Liberato bætti
öðru marki við á 19. mínútu og
Gabrielus Zagurskas kom Stykkis-
hólsmliðinu þremur mörkum yfir
eftir hálftíma leik. Liberato var síð-
an aftur á ferðinni á 39. mínútu og
Snæfell 0-4 yfir í hléinu.
Elvedin nebic bætti fimmta
marki Snæfells við á 53. mínútu
en heimamenn minnkuðu mun-
inn fjórum mínútum síðar. Þar var
á ferðinni Mghar Idrissi Mustapa.
Heimamenn fengu vítaspyrnu á
62. mínútu leiksins. Mustapa fór
á punktinn og minnkaði muninn
í 2-5 fyrir KM. Hann fullkomn-
aði síðan þrennu sína á 65. mínútu
og minnkaði muninn í 3-5. Fleiri
mörk voru hins vegar ekki skoruð
og Snæfell fékk því stigin þrjú.
Snæfellingar eru í öðru sæti B
riðils með 13 stig eftir fimm leiki,
jafn mörg og topplið Hvíta Riddar-
ans og fjögurra stiga forskot á næstu
lið. Snæfell leikur næst föstudaginn
21. júní næstkomandi, þegar liðið
mætir Afríku á útivelli.
kgk
Víkingur Ó. tapaði gegn Keflavík
með einu marki gegn engu þegar
liðin mættust í 1. deild karla í knatt-
spyrnu á þjóðhátíðardaginn. Leikið
var í Ólafsvík.
Liðin mættu ákveðin inn á völl-
inn og nokkur harka var í leiknum
í upphafi. Ólafsvíkingar voru meira
með boltann í fyrri hálfleik en tókst
ekki að skapa sér mikið af færum.
Þeirra bestu marktilraun átti Har-
ley Willard á lokamínútu fyrri hálf-
leiks en Sindri Kristinn Ólafsson í
marki gestanna varði glæsilega frá
honum. Staðan var því markalaus í
hléinu.
Bæði liðin virtust ákveðin í að
skora í upphafi síðari hálfleiks og
áttu nokkrar marktilraunir. Það
voru síðan gestirnir frá Keflavík
sem brutu ísinn á 64. mínútu leiks-
ins. Adam Árni Róbertsson skoraði
með skoti fyrir utan teig sem fór í
stöngina og inn.
Á 71. mínútu var Harley hárs-
breidd frá því að jafna metin fyrir
Ólafsvíkinga en þrumuskot hans
small í stönginni svo bergmálaði
um alla áhorfendastúku. Var það
besta færi Víkings í síðari hálf-
leik. Þeim tókst ekki að ógna marki
gestanna að ráði það sem eftir lifði
leiks og Keflvíkingar fóru því með
sigur af hólmi, 0-1.
Víkingur Ó. hefur 13 stig í fjórða
sæti deildarinnar, jafn mörg og
Fjölnir og Keflavík í sætunum fyrir
ofan. næsti leikur Ólafsvíkinga er
gegn Fram, sem situr í fimmta sæti,
laugardaginn 22. júní. Sá leikur fer
fram í Ólafsvík.
kgk
Skallagrímur tapaði gegn toppliði
KA er liðin mættustu í sjöundu um-
ferð í 3. deildar karla í knattspyrnu.
Leikið var í Borgarnesi á föstudags-
kvöld.
Heimamenn byrjuðu betur
og áræðni einkenndi leik þeirra.
Fyrsta mark leiksins kom á 31. mín-
útu þegar Marteinn Theódórsson
kom Borgnesingum yfir og leiddu
Skallagrímsmenn með einu marki
þegar gengið var til búningsklef-
anna.
Í seinni hálfleik voru Reykvík-
ingar mun sprækari og sóttu hart
að heimamönnum. Það voru ekki
nema þrjár mínútur liðnar af hálf-
leiknum þegar dæmt var víti á
Skallagrím. Einar Már Þórisson fór
á punktinn fyrir KV og skoraði af
miklu öryggi og jafnaði metin. Ein-
ar Már var svo aftur á ferðinni á 65.
mínútu þegar hann bætti við sínu
öðru marki og kom þannig sínum
mönnum í vænlega stöðu.
Ekki gekk upp hjá Skallagrími
að koma boltanum í netið það sem
eftir lifði leik. KV styrkir þannig
stöðu sína enn fremur á toppi 3.
deildar með 18 stig á meðan Skalla-
grímur situr í næst neðsta sæti með
sex stig, jafn mörg stig og Höttur/
Huginn og Augnablik. næsti leikur
Skallagríms er gegn Hetti/Hugin á
Egilsstöðum laugardaginn 22. júní
næstkomandi.
glh/ Ljósm. úr safni/ sas.
Kári mátti sætta sig við 2-3 tap á
heimavelli gegn Dalvík/Reyni, þeg-
ar liðin mættust í sjöundu umferð 2.
deildar karla í knattspyrnu á sunnu-
dagskvöld.
Káramenn skoruðu fyrsta mark
leiksins á 13. mínútu. Boltinn barst
á Stefán Ómar Magnússon hægra
megin í vítateignum sem skoraði með
föstu skoti í fjærhornið. Vel klárað
hjá Stefáni. Þremur mínútum síðar
skoruðu Káramenn klaufalegt sjálfs-
mark sem skráð var á Ásgrím Ósk-
ar jóhannesson markvörð og staðan
orðin 1-1.
Á 22. mínútu fékk Kári vítaspyrnu.
Andri júlíusson tók spyrnuna og skor-
aði örugglega. Ellefu mínútum síðar
jöfnuðu gestirnir metin. Þeir fengu
aukaspyrnu úti á vinstri kanti. Bolt-
inn var sendur fyrir á Snorra Eldjárn
Hauksson sem tók hann viðstöðu-
laust á lofti og skoraði, en spurning
hvort Ásgrímur hefði ekki getað gert
betur í markinu þar sem spyrnan var
beint á hann. Fleiri mörk voru ekki
skoruð í fyrri hálfleik og staðan því
jöfn í hléinu, 2-2.
Síðari hálfleikur var ekki gamall
þegar gestirnir komust yfir. númi
Kárason fékk laglega sendingu
inn fyrir vörnina og lagði boltann
framhjá Ásgrími og í netið. Kára-
menn áttu nokkrar álitlegar sóknir
það sem eftir lifði leiks en tókst ekki
að jafna metin. niðurstaðan varð því
2-3 sigur Dalvíkur/Reynis.
Káramenn hafa fimm stig í ell-
efta sæti deildarinnar, þremur stigum
minna en ÍR í sætinu fyrir ofan. næst
leikur Kári gegn liði KFG á morgun,
fimmtudaginn 20. júní. Sá leikur fer
fram í Akraneshöllinni.
kgk
Barist um skallabolta í leik Víkings Ó. og Keflavíkur á þjóðhátíðardaginn.
Ljósm. af.
Stöngin út og stöngin inn
Tap hjá Skallagrími
Snæfellssigur í markaleik
Tap gegn erkifjendunum
ÍA í þann mund að minnka muninn eftir þrumuskalla Vikors Jónssonar sem fór í
þverslá, stöng og bakið á markverðinum á leiðinni í netið. Ljósm. gbh.
Tap í höllinni
Liðsmenn Kára máttu sætta sig við tap á sunnudaginn.
Ljósm. úr safni/ Knattspyrnufélag Kára.