Skessuhorn - 09.10.2019, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 2019 31
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefur samið við hina bandarísku
Keiru Robinson um að leika með
liði Borgnesinga í Domino‘s deild
kvenna í vetur.
Keira er 25 ára gömul og leikur
stöðu bakvarðar. Hún lék með Vir-
ginia Commonwealth háskólanum
í bandaríska háskólaboltanum. Á sí-
num atvinnumannaferli hefur hún
leikið á Spáni og í Argentínu við
góðan orðstír, að því er fram kemur
á Facebook-síðu Skallagríms.
Keira lék sinn fyrsta leik fyrir
Skallagrím síðastliðinn miðvikudag
þegar liðið tapaði naumlega gegn
Haukum í Borgarnesi. Í þeim leik
skoraði hún 19 stig, tók sjö fráköst
og gaf 7 stoðsendingar. kgk
Skallagrímskonur máttu sætta sig
við sex stiga tap gegn Haukum,
66-72, eftir jafnan og spennandi
baráttuleik í fyrstu umferð Dom-
ino‘s deildar kvenna. Leikurinn fór
fram í Borgarnesi á miðvikudags-
kvöld.
Skallagrímskonur höfðu yfir-
höndina í upphafi leiks, leiddu mest
með tíu stigum í fyrsta leikhluta en
höfðu fimm stiga forskot að honum
loknum, 22-17. Gestirnir komust
betur inn í leikinn í öðrum fjórð-
ungi og leikurinn var hnífjafn síð-
ustu mínútur fyrri hálfleiks. Hauk-
ar leiddu með einu stigi í hléinu,
38-39.
Haukakonur höfðu heldur yfir-
höndina í þriðja leikhluta en Skalla-
grímsliðið fylgdi þeim eins og
skugginn. Skallagrímskonur náðu
forystunni stutta stund um miðjan
leikhlutann og svo aftur fyrir loka-
fjórðunginn, 56-53. Fjórði og síð-
asti leikhlutinn var jafn og spenn-
andi. Skallagrímskonur voru feti
framar, leiddu með tveimur stig-
um kringum miðjan fjórðunginn.
Þá tóku Haukakonur endasprett,
náðu forystunni þegar tvær mínút-
ur lifðu leiks og náðu að stela sigr-
inum á lokamínútunum. Lokatölur
voru 66-72, Haukum í vil.
Keira Robinson var stigahæst í
liði Skallagrísm með 19 stig, en hún
tók sjö fráköst og gaf sjö stöðsend-
ingar að auki. Emilie Hessendal var
með 14 stig, 13 fráköst, sjö stoð-
sendingar og fjóra stolna bolta,
Maja Michalska skoraði 12 stig og
Árnína Lena Rúnarsdóttir var með
tíu stig og sex fráköst.
Stigahæst í liði Hauka var Lovísa
Björt Henningsdóttir með 18 stig.
Eva Margrét Kristjánsdóttir var
með 16 stig og 13 fráköst, Seairra
Barrett var með 16 stig og níu frá-
köst, Þóra Kristín Jónsdóttir skor-
aði tólf stig, gaf níu stoðsending-
ar og tók sex fráköst, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir skoraði sjö stig og
tók sex fráköst og Gunnhildur Lind
Hansdóttir skoraði fjögur stig.
Skallagrímskonur eru eftir fyrstu
umferðina í sjötta sæti deildarinn-
ar án stiga. Næst leikur liðið gegn
Grindavík í kvöld, miðvikudaginn
9. október. Sá leikur fer einnig fram
í Borgarnesi.
kgk
Skagamenn mættu Reyni Sandgerði
í annarri umferð 2. deildar karla
í körfuknattleik síðastliðið föstu-
dagskvöld. Leikið var suður með
sjó. Sóknarleikurinn var í algjöru
aðalhlutverki í leik ÍA og Reyn-
is, en varnarleikurinn var að mestu
látin liggja á milli hluta. Stigaskor-
ið leiksins var með ólíkindum hátt,
en honum lauk með 38 stiga sigri
Reynis, 151-113.
Skagamenn hafa tapað fyrstu
tveimur leikjum sínum í deildinni
en í báðum þeirra skorað meira en
110 stig. Næst mætir ÍA liði Stál-
úlfs föstudaginn 11. október. Sá lei-
kur fer fram á Akranesi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Snæfellingar máttu sætta sig við
stórt tap gegn sterku Vestraliði,
64-114, þegar liðin mættust í fyrstu
umferð 1. deildar karla í körfu-
knattleik. Leikið var í Stykkishólmi
á föstudagskvöld.
Gestirnir frá Ísafirði náðu und-
irtökunum snemma leiks, leiddu
9-14 um miðjan fyrsta leikhluta,
bættu síðan í og höfðu 13 stiga
forystu að honum loknum, 31-18.
Þeir settu síðan í fluggírinn í öðr-
um leikhluta, juku forskotið jafnt
og þétt og leiddu með 34 stigum í
hléinu, 32-66.
Snæfellsliðið náði sér ekki á strik
eftir hléið og missti Vestra enn
lengra fram úr sér í þriðja leik-
hluta. Að honum loknum var stað-
an 43-95 og úrslit leiksins ráðin.
Snæfellingar voru þó ekki af baki
dottnir og áttu sinn besta fjórðung í
fjórða leikhluta, þar sem þeir skor-
uðu 21 stig á móti 19 stigum gest-
anna. Lokatölur urðu því 64-114
og stórt tap Snæfells staðreynd.
Pavel Kraljic skoraði 13 stig fyr-
ir Snæfell, Anders Gabriel Aders-
teg var með tólf stig og sex fráköst,
Brandon Cataldo ellefu stig og átta
fráköst og Guðni Sumarliðason
ellefu stig. Aron Ingi Hinriksson
og Dawid Einar Karlsson skoruðu
fimm stig og þeir Kristófer Kort
Kristjánsson, Viktor Brimnir Ás-
mundarson og Eiríkur Már Sæv-
arsson skoruðu tvö stig hver.
Reynsluboltinn Nebosja Kneze-
vic dró vagninn í liði Vestra með 25
stig, fimm stoðsendingar og fimm
stolna bolta. Nemanja Knezevic var
með 16 stig og átta fráköst og Ingi-
mar Aron Baldursson skoraði 16
stig einnig. Matec Macek var með
13 stig og átta fráköst, Hugi Hall-
grímsson 13 stig og fimm stolna
bolta, Hilmir Hallgrímsson ellefu
stig og Marko Dmitrovic skoraði
tíu stig, tók sjö fráköst og gaf fimm
stoðsendingar.
Snæfellingar verma botnsætið að
loknum fyrsta leik mótsins án stiga.
Næst leika Hólmarar gegn Selfyss-
ingum, föstudaginn 11. október
næstkomandi. Sá leikur fer fram á
Selfossi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Meistaraflokkur kvenna í blaki
tók á móti liði Vestra frá Ísafirði á
laugardaginn í íþróttahúsi Grund-
arfjarðar. Einhver skrekkur virðist
vera í liði Grundarfjarðar í byrj-
un móts en gestirnir frá Ísafirði
unnu fyrstu hrinuna mjög sannfær-
andi 25-12. Önnur hrina var í járn-
um allan tímann en fór svo á end-
anum svo að gestirnir unnu hana
líka 27-25 og því komnar í 2-0
í leiknum. Þriðja hrinan var svo
líka jöfn en því miður fyrir heima-
menn náðu gestirnir að sigra hana
líka 25-19 og því leikinn 3-0. Nú
er liðið búið að tapa fyrstu tveim-
ur leikjum sínum á heimavelli 3-0
gegn Aftureldingu B og Vestra.
Næsti leikur liðsins er á morgun,
fimmtudaginn 10. október, gegn
Ými á útivelli en leikurinn verður
í Fagralundi klukkan 18:30.
tfk
Skallagrímur mátti játa sig sigraðan
gegn sterku liði Álftaness, 90-65,
í fyrstu umferð 1. deildar karla í
körfuknattleik. Leikið var á Álfta-
nesi á föstudagskvöld.
Jafnræði var með liðunum í
upphafi leiks. Heimamenn leiddu
snemma í fyrsta leikhluta, en
Skallagrímsmenn komust yfir
stutta stund áður en Álftnesingar
tóku forystuna að nýju seint í leik-
hlutanum. Leiddu þeir með þrem-
ur stigum að upphafsfjórðungnum
loknum, 24-21. Álftnesingar kom-
ust níu stigum yfir snemma í öðrum
leikhluta áður en Skallagrímsmenn
minnkuðu muninn í tvö stig í stöð-
unni 30-28. Þá tóku heimamenn
heldur betur rispu og skoruðu 21
stig gegn aðeins þremur stigum
Skallagríms það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks. Staðan í hléinu var því
51-31 og heimamenn með unninn
leik í höndunum.
Skallagrímsmenn minnkuðu
muninn lítið eitt í fjórða leikhluta
og munaði 17 stigum á liðunum
fyrir lokafjórðunginn, 67-50. Fram-
an af fjórða leikhluta voru Skalla-
grímsmenn öflugri. Þeir náðu hægt
en örugglega að kroppa stig af for-
skoti heimamanna. Þegar leikhlut-
inn var hálfnaður var forskot Álft-
nesinga komið niður í tólf stig. Þá
tóku heimamenn við sér að nýju og
gerðu út um leikinn með miklum
endaspretti. Loktaölur urðu 90-65,
Álftnesingum í vil.
Arnar Smári Bjarnason var stiga-
hæstur leikmanna Skallagríms með
15 stig en Kristján Orri Ómarsson
kom honum næstur með 13 stig og
sjö fráköst. Kristófer Gíslason skor-
aði níu stig, Hjalti Ásberg Þorleifs-
son var með sex stig og sjö fráköst,
Jón Hrafn Baldvinsson sex stig og
sex fráköst, Isaiah Coddon skoraði
sex stig og Davíð Guðmundsson og
Ásbjörn Baldvinsson skoruðu fimm
stig hvor.
Samuel Prescott Jr. átti stórleik í liði
heimamanna, skoraði 37 stig og tók
níu fráköst. Birgir Björn Pétursson var
með 15 stig og fimm fráköst, Vilhjálm-
ur Kári Jensson skoraði tíu og tók tíu
fráköst og Þorgeir Kristinn Blöndal
skoraði tíu stig og tók sex fráköst.
Skallagrímur situr í sjöunda sæti
deildarinnar án stiga eftir fyrstu um-
ferðina. Næst leika Borgnesingar gegn
Breiðabliki á morgun, fimmtudaginn
10. október. Sá leikur fer fram í Borg-
arnesi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ Skallagrímur.
Keira Robinson í búningi Skallagríms.
Ljósm. Skallagrímur.
Keira Robinson
í Skallagrím
Naumt tap í fyrsta leik
Gunnhildur Lind Hansdóttir sækir að körfunni í leiknum gegn Haukum.
Ljósm. Skallagrímur.
Sóknin í aðalhlutverki
Stórt tap á heimavelli
Tap gegn Vestra á heimavelli
Tap í fyrsta leik