Læknablaðið - aug 2019, Qupperneq 24
332 LÆKNAblaðið 2019/105
á rannsóknartímanum greindust 56 sjúklingar með miðþekjuæxli.
Þar af voru einungis 6 konur og meðalaldur hópsins var 71 ár. Al-
gengasta kvörtunin var mæði (80%) og brjóstverkur (55%). Tæp
90% höfðu reykt og 61% verið útsett fyrir asbesti. Við greiningu
voru 21% sjúklinga á stigi I, 9% á stigi II og 70% á stigum III eða
IV; tæpur helmingur með fjarmeinvörp. Eins og fimm ára lifun
var 33% og 3,6%.
Samantekt
Asbest var mikið notað á Íslandi fram að innflutningsbanni árið
1983 og í nokkru magni eftir það. Asbesttengdir sjúkdómar geta
bæði verið góðkynja og illkynja og koma einkum fram í fleiðru
og lungum. Biðtími eftir að fá asbesttengda sjúkdóma er langur,
allt að 40 árum og því eru þeir en að koma fram og verða í talsvert
mörg ár til viðbótar. Tíðni illkynja miðþekjuæxla er enn vaxandi á
Íslandi en þau hafa mjög sterk tengsl við asbestútsetningu. Ljóst er
að vegna umfangs asbests sem ætla má að sé enn í mannvirkjum
er þekking á asbesttengdum sjúkdómum enn brýn og verður það á
komandi áratugum. Til að greina asbesttengda sjúkdóma er mik-
ilvægt að taka nákvæma atvinnusögu og búsetusögu. Mikilvægt
er að muna eftir hugsanlegum tengslum ákveðinna sjúkdóma við
asbestútsetningu.
Þakkir
Höfundar þakka Gunnari Júlíussyni lækni og Gunnari Andrés-
syni lækni fyrir aðstoð við öflun tölvusneiðmynda. Einnig fær
Vigdís Pétursdóttir þakkir fyrir mynd af fleiðruskellu. Þá fær Jó-
hannes Helgason þakkir fyrir yfirlestur og ábendingar.
Tafla IV. Fjöldi illkynja miðþekjuæxla 1965-2014 á tíu ára tímabilum og áhættu-
hlutföll ásamt 95% öryggisbilum (ÖB) flokkað eftir kynjum. Fyrsta tímabilið er
viðmið.
Fjöldi tilfella Áhættuhlutfall 95% ÖB
Karlar 1965-1974 1 Viðmið
1975-1984 4 3,34 0,37-29,84
1985-1994 9 6,53 0,83-51,57
1995-2004 19 12,24 1,64-91,39
2005-2014 27 14,90 2,03-109,7
Hneigð, p-gildi <,000
Konur 1965-1974 2 Viðmið
1975-1984 0 -
1985-1994 3 1,07 0,18-6,43
1995-2004 4 1,26 0,23-6,89
2005-2014 7 1,92 0,40-9,22
Hneigð, p-gildi 0,11
Tafla V Aldursleiðrétt dánartíðni á milljón íbúa fyrir árin 1994 til 2010 í nokkrum
Evrópulöndum vegna fleiðruþekjuæxlis og asbestveiki (fjöldi ára sem eru grunn-
ur að nýgengistölum).*
Land Miðþekjuæxli Asbestveiki
Danmörk 8.87 (13) 1.91 (13)
Finnland 8.96 (15) 2.39 (15)
Frakkland 7.74 (10) 0.79 (10)
Þýskaland 7.04 (13) 0.71 (13)
Ísland 24.58 (13) 4.59 (2)
Holland 15.91 (15) 0.49 (15)
Noregur 7.99 (15) 2.07 (15)
Svíþjóð 7.65 (14) 0.60 (14)
England 18.36 (11) 1.16 (11)
*Taflan er einföldun á töflu sem birt er í heimild 45
Y F I R L I T S G R E I N