Læknablaðið - aug. 2019, Síða 31
LÆKNAblaðið 2019/105 339
Könnun Læknafélagsins sem sýndi að 7%
kvenlækna töldu sig hafa orðið fyrir kyn-
ferðislegri áreitni kallaði ekki á sérstakar
aðgerðir innan Landspítala, enda var
þegar hafin vinna við innleiðingu sam-
skiptasáttmála, sem hófst í kjölfar #MeToo-
byltingarinnar. Þetta segir Ásta Bjarna-
dóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs
spítalans.
„Könnunin staðfesti það sem við viss-
um. Það mælist mikið álag og streita og
einelti og áreitni koma því miður líka
fyrir. Niðurstöðurnar ýttu þó undir að
hálfu stöðugildi hefur verið bætt við í
stuðnings- og ráðgjafateymi spítalans.
Sálfræðingur bætist nú í hóp þeirra 10
sérfræðinga sem verja á bilinu 10%-50%
af starfstíma sínum í að sinna líðan starfs-
fólks spítalans,“ segir Ásta.
Sagði tölurnar sláandi
Landlæknir kallaði eftir því á Læknadög-
um að brugðist yrði við „sláandi tölum“
úr niðurstöðu könnunar Læknafélagsins
á líðan og starfsumhverfi lækna. „Þetta
finnst mér með ólíkindum miðað við alla
umræðuna sem er í gangi. Þetta er eitt-
hvað sem þarf að skoða strax,“ sagði Alma
Möller landlæknir eftir kynningu skýrsl-
unnar þar.
Ásta segir að kvartanir vegna kyn-
bundins áreitis hafi aukist fyrst í kjöl-
far #Metoo-umræðunnar en síðan dottið
niður. Tilfellin séu nokkur á ári.
„Við breyttum verklagi og bjuggum
til óformlega leið til að skoða málin án
rannsóknar. Mörg mál hafa endað í þeim
farvegi,“ segir hún. „Starfsfólk vill oft
að málið sé skoðað en vill ekki formlega
rannsókn,“ segir hún. Með óformlegri
rannsókn njóti þau sem kvarti nafnleynd-
ar. Hvert mál sé einstakt og ekkert eitt sem
eigi við um þau öll.
Eftir könnun Læknafélagsins hafi
Landspítali fengið í hendur nýjar tölur
um starfsanda og viðhorf starfsmanna. Í
könnuninni sem nefnist Stofnun ársins
sjáist stöðug framför í öllum þáttum frá
árinu 2017. Starfsmenn eru bæði ánægðari
með stjórnun og starfsanda og stoltari en
áður.
„Það eru engar byltingar í tölunum en
þær mjakast upp á við,“ segir Ásta raunsæ
en sátt við árangurinn. Einnig hafi verið
spurt um kynferðislega áreitni og einelti
í þeirri könnun, en niðurstöðurnar verði
birtar í sérstakri skýrslu sem enn hefur
ekki borist.
Ásta telur að vinnan við Samskiptasátt-
mála spítalans sé að skila sér í þessum
bætta árangri. Sáttmálinn hafi litið dags-
ins ljós á vordögum 2018 eftir fimmtíu
fundi þar sem starfsmenn lögðu til efni
í sáttmálann. Sáttmálinn sé nú í inn-
leiðingu.
„Kafli átta í sáttmálanum tekur sérstak-
lega á kynbundinni áreitni, kynferðislegri
áreitni og einelti sem er bannað sam-
kvæmt lögum að láta viðgangast,“ segir
hún. Í haust eigi að endurtaka könnun
innan spítalans sem gerð var í desember
2017 til að sjá hvort árangur hafi náðst.
Aukin þjónusta auglýst
„Við vitum að líðan starfsmanna er mik-
ilvæg sem er meginástæða þess að við
erum með stuðnings- og ráðgjafateymi,“
segir hún. Starfsfólk geti þar fengið tíma
hjá fagaðilum: sálfræðingum, félagsráð-
gjöfum, hjúkrunarfræðingum, iðjuþjálfum
og geðlækni. Með því að fjölga þessum
sérfræðingum nú sé hægt að hafa meira
frumkvæði í að bjóða aðstoð vegna þeirra
vandamála sem komi upp.
„Við stefnum á að auglýsa aukna þjón-
ustu stuðnings- og ráðgjafateymisins eftir
sumarfrí. Þetta er áherslumál hjá okkur
í ljósi þess hvernig tölur um kulnun og
brottfall mælast,“ segir hún.
Auka stuðning til að
bæta líðan starfsmanna
Landspítala
Hálft stöðugildi bætist við stuðnings- og ráðgjafateymi Landspítala í haust. Tilgangur
teymisins er að efla andlega líðan samstarfsmanna og styðja þá til að takast á við
starfið. Þetta segir Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landspítala.
Líðan og viðhorf starfsmanna miði í rétta átt
Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
mannauðssviðs Landsspítalans.
Starfsfólk láti vita af óæskilegri hegðun
Mikilvægt er að fólk láti vita af óæskilegri hegðun. „Helst strax, og helst beint við
gerandann,“ segir Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landsspít-
alans. „Það er minna umburðarlyndi fyrir óæskilegri hegðun en áður,“ segir hún og
að aukin meðvitund sé um hvað sé heilbrigð hegðun og hvað ekki.
„Við viljum að fólk láti í sér heyra ef það sér eitthvað óæskilegt. Aðhaldið í
nærumhverfinu er mjög mikilvægt,“ segir hún. Fólk eigi ekki að kyngja því þegar
það verði fyrir óæskilegri hegðun, eða verður vitni að henni. „Ef fólk tjáir sig og það
er menninginn, náum við mestum árangri.“
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir