Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 41
LÆKNAblaðið 2019/105 349
gefa þeim þetta lyf,“ segir hann. Þá þurfi
að huga betur að geislun vegna mynd-
greininga. „Fólk fær krabbamein af slíku
svo vert er að forðast þær ef hægt er.“
Horfa til sjúklinga
Stefán leggur mikla áherslu á að heilsa
fólks sé í fyrirrúmi í átakinu, ekki
sparnaður, þótt átakið komi vissulega í
veg fyrir sóun.
„Þessi herferð er sjúklingum í hag. Hún
er ekki sett á stofn til að heilbrigðisstofn-
anir, heilbrigðisyfirvöld eða aðrir spari
peninga,“ segir hann og leggur áherslu á
orð sín. „Tilgangurinn er að forðast tjón.“
Hann segir því mikilvægt að læknafélögin
geri þetta upp á eigin spýtur, án aðkomu
heilbrigðisyfirvalda, því aðkoma þeirra
myndi skapa vantraust um tilganginn.
„Þegar við byrjuðum í Noregi undir-
bjuggum við verkefnið vel. Við töluðum
við lækna og sjúklinga og vorum með
markhópa. Fólk varð undrandi þegar sagt
var að herferðin væri að undirlagi lækna-
samtaka. Það vakti traust almennings og
heilbrigðisyfirvalda líka,“ sagði hann.
Sjö ár frá fyrstu herferð
Sjö ár eru nú frá því að átakið gegn of-
lækningum hófst í Bandaríkjunum. Það
barst hratt til Kanada. „Þeim hefur orðið
mest ágengt og eru í forsvari fyrir alþjóða-
hreyfinguna,“ segir Stefán. Þar sem enn
sé innan við ár síðan átakinu var ýtt úr
vör i Noregi sé of snemmt að segja til um
árangur.
„Kollegar eru hrifnir og við fáum já-
kvæð viðbrögð frá heilbrigðisyfirvöldum
líka,“ segir Stefán. Alls staðar nefnist
átakið Choosing Wisely, en Ítalir tali um
hægar lækningar, Svisslendingar um
skynsamlega læknisfræði. „Þetta er alltaf
sama hugmyndafræðin þótt útfærslan sé
misjöfn; að forðast það sem er óþarft og
skaðlegt.“
Í Choosing Wisely er sjúklingum bent á að snjallt sé að spyrja lækninn fjögurra spurninga:
1. Þarf ég virkilega á þessu prófi, rannsókn eða meðferð að halda?
2. Hverjar eru aukaverkanirnar?
3. Eru einfaldari eða öruggari leiðir í boði?
4. Hvað gerist ef ég geri ekki neitt?
Þar sem átakinu er ekki aðeins beint að almenningi heldur einnig að læknum setjast hópar úr
hverri sérgrein saman og búa sér til leikreglur sem henta hverri sérgrein til að koma í veg fyrir
oflækningar.
Stefán Hjörleifsson var gestur stjórnar Læknafé-
lagsins í lok maí. Hann fór yfir undirbúning og
fyrstu skref átaksins Gjör kloke valg sem læknar
hafa ráðist í gegn oflækningum. Mynd/gag