Læknablaðið - aug 2019, Qupperneq 42
350 LÆKNAblaðið 2019/105
Læknafélag Íslands stefnir á að kanna
viðhorf lækna til fullyrðinga um að of-
lækningar séu stundaðar hér á landi. Gera
á sambærilega könnun meðal íslenskra
lækna og gerð var meðal þeirra norsku.
Þetta segir Reynir Arngrímsson, formaður
Læknafélagsins. Hann segir að takist að
fjármagna átak um snjallt val þegar kemur
að þjónustu í heilbrigðiskerfinu verði ráð-
ist í verkið.
„Snjallt val eða þekkingarmiðað val á
heilbrigðisþjónustu gengur í stuttu máli
út á að bæði læknar og notendur heil-
brigðisþjónustunnar eiga að spyrja sig lyk-
ilspurninga áður en sérhvert læknisverk er
hafið,“ lýsir Reynir.
Stefnt sé að því að heilbrigðisþjónustan
sé byggð á sannreyndum viðurkenndum
vísindalegum aðferðum og rannsókum.
„Ekki á að endurtaka áður gerðar rann-
sóknir eða íhlutanir. Nauðsynlegt er að
spyrja hvort meðferðin eða rannsóknin
sé sannanlega nauðsynleg í hverju tilviki.
Loks að inngripið valdi ekki skaða.“
Reynir segir að jafnframt gangi átakið
út á að læknar innan hverrar sérgreinar
rýni eigin vinnuhætti. „Hver sérgreina-
hópur á að finna fimm úrsérgengin úrræði
og rannsóknir sem tímabært er að leggja
af og fræða þá sem leita eftir slíkum úr-
ræðum um breytta meðferðarnálgun.
Aðgengi að fræðsluefni og gögnum þar að
lútandi verði á heimasíðum sem læknar
geti bent á og nálgast sjálfir,“ segir hann.
Skottulækningar hafi aukist
„Einnig skiptir miklu máli að vara við
sjúkdómabraski og skottulækningum sem
hefur vaxið fiskur um hrygg undir nýjum
kennimerkjum svokallaðra viðbótarmeð-
ferða.“ Reynir segir að því miður séu ýms-
ar heilbrigðisstéttir farnar að feta sig inn á
þær brautir.
„Þær byggjast meira á trúgirni og
blekkingum en að þær standist viður-
kennda vísindalega nálgun. Það er
áhyggjuefni þegar heyrist talað fyrir slíku
sjúkdómabraski í þingsölum Alþingis, en
með því er verið að stuðla að sóun á al-
mannafé,“ segir hann.
Reynir segir markmiðið einnig að lækn-
ar rýni starfshætti sína sem geti verið svar
við ásökunum um oflækningar. „Ég tel að
það séu vísbendingar um oflækningar hér
á landi. Við sjáum það til dæmis núna að
átak í heilsugæslunni hefur skilað sér í því
að lyfjaávísanir á breiðvirk sýklalyf hafa
dregist mjög saman. Það gerðist eftir að
umræður hófust um þær og gangskör var
gerð að því að reyna að minnka þær,“ seg-
ir Reynir. Þetta megi að sjálfsögðu flokka
undir eina tegund oflækninga.
„Annað dæmi sem bent hefur verið á er
of frjálsleg notkun sterkra ópíóíð-verkja-
lyfja við langvarandi stoðkerfisverkjum.
Í Bandaríkjunum falla dómar og himin-
háar fjársektir á lyfjafyrirtæki fyrir ranga
upplýsingagjöf um sum þessara lyfja. Hér
sýnir reynsla lækna að endurskoða þarf
hvernig lyfin eru notuð svo tryggt sé að
þeir sem sannlega þurfa og gagn hafa af
þeim fái þau en hinir séu upplýstir og
fræddir um önnur úrræði,“ segir Reynir.
Hér þurfi fræðslu og aðgengi að upplýs-
ingum í anda átaksins um snjallt val.
Fagmennskan aukist
Reyni leist vel á framkvæmd átaksins í
Noregi sem Stefán Hjörleifsson kynnti
fyrir stjórn félagsins og hagsmunaaðilum.
Læknafélagið vinni nú að því að afla upp-
lýsinga og ákveða næstu skref.
„Við viljum byrja á að upplýsa um
þennan möguleika og skoða hverjir geti
verið samstarfsaðilar okkar að átakinu,“
segir hann. Aðdragandinn og lýsingarnar
á undirbúningnum í Noregi hafi heillað,
sem og viðfangsefnið.
„Átakið er til faglegra endurbóta á
þjónustunni,“ segir hann. Nú strandi á
fjármagni. Þá sé líka spurning hvernig
Fræðslustofnun lækna geti komið að
málinu. „Þetta verkefni gæti tengst inn í
endurmenntun okkar lækna að einhverju
leyti.“ Læknastéttin hefði gott af því að
skoða vinnubrögð sín og hvernig hún geti
komið að fræðslu til almennings.
„Ég tel að þetta átak ætti að gera
vinnuna skilvirkari og þjónustuna bæði
betri og faglegri.“
Læknafélagið skoðar oflækningar
Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands, sér tækifæri í átaki gegn oflækningum.
„Nauðsynlegt er að spyrja
hvort meðferðin eða rann-
sóknin sé sannanlega
nauðsynleg í hverju tilviki.“