Læknablaðið - aug. 2019, Síða 43
LÆKNAblaðið 2019/105 351
Engin ástæða er að ætla annað en að staða
oflækninga sé álíka hér og í Noregi. Þetta
segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins. Hún segir heimil-
islækna oft á tíðum grípa til víðtækari úr-
ræða en þeir telji sjálfir nauðsynleg.
„Það er margvísleg pressa. Það er um-
fjöllunin í samfélaginu, áhyggjur og mjög
oft sem læknar hafa ekki tíma til að bíða
og sjá þróunina eða meðhöndla skynsam-
lega út af tímapressu eða annarri pressu.
Það er vissulega raunveruleiki heimilis-
lækna í dag,“ segir hún. Hraðinn og press-
an úr mörgum áttum orsaki oflækningar.
„Menn velja oft fljótlegustu leiðina
sem er að skrifa út eitthvert lyf eða koma
sjúklingi annað í staðinn fyrir að sannfæra
hann um að það sé í lagi að bíða og sjá.“
Hún segir því átak um snjallar lækning-
ar, Choosing Wisely, eins og „talað út úr
hjarta heimilislæknisins.“ Nauðsynlegt sé
að bjóða upp á önnur úrræði sem minnki
inngrip og lyfjanotkun.
„Já, ég held að átak sem þetta sé bæði
nauðsynlegt og gott inn í umræðuna um
að til séu svo mörg úrræði við krankleika
og vanlíðan,“ segir hún. Mjög jákvætt væri
ef Læknafélagið réðist í átakið. „Þá erum
við alveg til í að vera með.“
Sigríður segir heilmikið um að fólk
komi með lausnirnar af netinu. „Fólk er oft
komið mjög langt frá raunveruleikanum.
Búið að finna sér mjög sjaldgæfa sjúkdóma
sem hafa jafnvel ekki fundist á landinu
og auðvelt að slá á slíkt,“ segir hún. „Þá
er kúnstin í samtalinu að fá fram hver ótti
skjólstæðingsins er og hverjar væntingar
hans eru. Samtalið þarf að ganga út á það,“
segir hún.
Spurð hvort heimilislæknar óttist að
verða teknir fyrir á samfélagsmiðlum í
kjölfar samtals við sjúklinga segir Sigríður
Dóra svo ekki vera. „Þeir óttast frekar
tímaleysi og hraða í vinnunni og skort á
öðrum úrræðum,“ segir hún. Mikilvægt sé
að tryggja læknum þann möguleika sem
og ráðrúm til að leyfa hlutunum að þróast
og þroskast, því þá sé betur hægt að sjá
framvinduna.
„Það er oft miklu erfiðara að gera það
en að gera eitthvað til að komast yfir að
þjónusta sem flesta.“
Oflækningar
hér eins
og í Noregi
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir,
framkvæmda stjóri
lækninga hjá Heilsugæslu
höfuðborgar svæðisins, sat
fund Stefáns Hjörleifssonar
með stjórn Læknafélagsins
um snjallt val í lækningum.
Mynd/gag