Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 49

Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2019/105 357 Isaac Newton sem var samtímis að reikna út gang himintunglanna og skrifa eðlis- fræðiformúlur en reyndi einnig að breyta blýi í gull. Jón lærði gæti verið höfundur kveisu- strengsins sem var sýndur í Safnahúsinu í vor. Um það verður aldrei neitt sannað, en Viðar Hreinsson setur þessa kenningu fram í bók sinni um lífshlaup Jóns. Víst er um að Jón skrifaði svona lækningatæki og rithönd strengsins er ekki ósvipuð þeirri sem er á kveri sem varðveist hefur og Jón skrifaði. Sumt er þó öðruvísi svo fræðimenn treysta sér ekki til að slá neinu föstu. En Jón skrifaði tvö kvæði á árunum 1611-1612 og dugðu þau til að kveða niður tvo drauga á Snæfjallaströnd. Strengurinn sem hér er sýndur er sá eini sem hefur varðveist en hann fannst á Hólum í Hjaltadal og hafði verið notaður sem gagn í réttarhaldi yfir einhverjum sem var að reyna lækningamátt hans. Af skiljanlegum ástæðum reyndu flestir þeir sem fengust við galdra að eyða sönnunar- gögnunum og það veldur því að íslensk galdrahandrit sem varðveist hafa má telja á fingrum annarrar handar. Að drepa og fyrirkoma kveisu Kveisustrengurinn sem hér sést er slitið, ekki mjög faglega unnið pergament. Sign- ingar og særingar gera ráð fyrir hreyfing- um með notkun strengsins. Biblíutextar á latínu eru merkilegt nokk úr frægri þýðingu Erasmusar frá Rotterdam sem var ekki á hverju strái hérlendis. Hægt er að lesa handritið með nokkurri fyrirhöfn og hér er dæmi um textann sem þar er að finna: Sjálfan Guð er ég biðjandi að hann ljái mér lífstungu læknisorða … ég signi þig … fyrir flogkveisu, fyrir fárkveisu, fyrir blóð- kveisu, beinkveisu, jarðar-, lofts-, vinds- og vatnskveisu og allskonar kveisu, fyrir hinni reginrömmu kveisu. Ég skal drepa og henni fyrirkoma svo hún skal ekki meira mega en maðkur í eldi þá er heitast brennur … Særi ég kveisu allra handa kyns úr höfði þínu og heila, úr hálsi og herðum, úr andliti, augum og augnabrám, úr brjósti, kvið og baki … úr merg og mænu, úr leggjum og liðum og liðamótum, úr öllum þínum samtengdum líkama … og svo lýkur þessu með grískum heitingum sem eiga að losa viðkomandi við allra handa kveisugrand. Tak kött, drep hann… Um hinn hugsanlega höfund kveisu- strengsins, Jón lærða, er það að segja að hann slapp lengi vel undan afskiptum yfirvalda. Séra Guðmundur Einarsson pró- fastur á Snæfellsnesi skrifaði gegn Jóni og nefndi átta villukenningar Jóns í drauga- niðurkvaðningu hans og „fyrirboðinni lækningakonst“. Jón fluttist til Akraness undan Guðmundi en árið 1631 var hann dreginn fyrir dóm sakaður um að hafa skrifað nokkur kver og blöð sem innihéldu meðal annars „ristingar fyrir gulusótt, út- sótt, matleiða, hósta, kláða og höfuðverk“. Jón andmælti en það stoðaði lítt og hann var dæmdur í útlegð fyrir þessi skrif. Hann fór til Kaupmannahafnar og reyndi að fá dómnum breytt en það gekk ekki lengra en svo að hann mátti hafast við á Austurlandi. Þar bjó hann síðustu ár sín í skjóli Brynjólfs biskups í Skálholti. Þegar kemur fram undir lok 17. aldar er hætt að brenna fólk og húðstrýkja fyrir að leita sér lækninga. Á 18. öld hverfur Guð að mestu úr lækningunni, en nýjar aðferð- ir voru framan af ekki endilega betri. Til dæmis þessi meðferð við handarmeini: Tak kött, drep hann, set höndina inn í hann og geymið þar í 2-3 daga. Gætið þess að taka ætíð kött varman og skiptið um kött á 2-3ja daga fresti. Mikilvægi þess að skipta oft um umbúðir var mönnum ljós þá sem nú. Ský á auga er nú orðið fjarlægt með einfaldri aðgerð. Á þessum tíma komu kettir líka við sögu því lækningin er þessi: Tak svartan kött, drep hann og skerið af höfuðið. Brennið það og myljið í duft sem borið skal á augað. Nú hafa leysigeislar og önnur nútímakonst leyst kettina af hólmi. Heimildir fyrir þessari grein eru sóttar í heimasíðu Galdrasýningar á Ströndum en þó einkum í ágæta leiðsögn Gunnars Marels Hinrikssonar starfsmanns hand- ritadeildar Landsbókasafns um sali Safna- hússins á Safnadegi í vor. Strandagaldur Galdrasýning á Ströndum starfar á tveimur stöðum. Á Hólmavík er aðalsýningin en á Klúku í Bjarnar- firði er Kotbýli kuklarans þar sem sjá má Jón lærða að störfum við skriftir. Mynd: Ágúst Atlason. Strandagaldur ses.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.