Læknablaðið - feb. 2019, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2019/105 97
Skýrsla landlæknis, kulnun lækna, svokallaður mönnunarvandi, Landspítali og byggingarlóðin, hamarshögg og
sprengingar, - örlítið brot af því sem bar á góma.
Pálmi V. Jónsson hefur vakið umræður um velferð aldraðra og spurði ráðherra beint.Ungir og gamlir brennandi af spurningaþörf.
sögunni til. Það er mjög mikil áskorun,“
sagði hún.
„Ég vil líka segja það að ég hef verið
að horfa sérstaklega til mönnunar í hjúkr-
un vegna þess að það er þrástef þegar
við erum að ræða mönnunarvandann
hér,“ sagið hún. „Þá vil ég horfa til þess
að kjaramál snúist um meira en launin í
umslagið. Þau snúast líka um starfsand-
ann, starfsumhverfið og vaktaálagið. Er
möguleiki á starfsþróun og framvindu,
vísindastarfi og svo framvegis?“ Hún hafi
þegar sett saman tillögur sem hún feli
forstjórum allra heilbrigðisstofnanna að
skoða og meta. Farið verði yfir árangurinn
á ráðherrafundi í apríl.
Viðar nefndi einnig dauðann. Samfé-
lagið þurfi að huga að honum. „Við eigum
erfitt með að sleppa okkar gamla fólki.
Ég hef horft á eftir tveimur ömmum á
síðastliðnum tveimur árum deyja á hjúkr-
unarheimilum. Mér fannst það ferli drag-
ast um of.“ Fólk eigi erfitt með að sleppa
takinu af ástvinum sínum. „Við þurfum að
taka það upp hvenær og hvar við eigum
að sleppa.“
Svandís tók undir þau orð og sagði
vert að ræða gildi almennt í heilbrigðis-
þjónustu sem og siðferðileg álitamál. „Við
höfum ekki mjög þroskaða umræðu um
slík mál á Íslandi,“ sagði hún. Gildin þurfi
að vera skýr.
Umsátursástand við uppbygginguna
Læknar ræddu líka ónæði af uppbyggingu
svæðisins. Theódór Sigurðsson gjörgæslu-
læknir sagði þau oft í fáránlegu návígi við
sprengingarnar vegna byggingar nýja spít-
alans. Brynja Ragnarsdóttir fæðingarlækn-
ir sagði unnið við umsátursástand.
„Hér er verið að byggja og sprengja
allan hringinn. En eftir sitjum við og það
eru engin áform um að bæta eða stækka
aðstöðu sem er löngu úrelt, sem styður
ekki við nútíma fæðingarþjónustu eða
aðra þjónustu við konur,“ sagði hún
Svandís sagði rétt að slaka ekki á skófl-
unni og vert að komast sem fyrst yfir
þann fasa sem valdi ónæðið. Hún sagð-
ist engin svör hafa við því hvers vegna
kvennadeildin hafi ekki verið með í þess-
um uppbyggingaráformum. Hins vegar sé
nú aðeins unnið að fyrsta áfanganum.
„Stundum er talað um að þegar fyrsta
áfanga verði lokið séum við búin að nú-
tímavæða aðbúnað íslenskrar heilbrigð-
isþjónustu, en það er auðvitað ekki svo.
Taka þarf fleiri þætti til skoðunar. Í öðrum
áfanga þurfum við líka að skoða hvernig
við sjáum heilbrigðisþjónustuna til lengri
tíma og aukna áherslu á göngudeildar-
þjónustu,“ sagði Svandís.
Krabbameinsáætlun í augsýn
Agnes Smáradóttir, yfirlæknir á krabba-
meinsdeildinni, spurði um krabbameins-
áætlunina sem gerð hafi verið fyrir
nokkrum árum og endurskoðuð fyrir einu
til tveimur árum. „Við höfum ekkert heyrt
af henni. Erlendis er lögð áhersla á að slík
áætlun sé til og eftir henni farið. Hver
er staðan á krabbameinsáætluninni og
hvernig á að innleiða hana?“
Svandís svaraði um hæl: „Krabba-
meinsáætlunardrögin, sem liggja á mínu
borði, eru í raun staðfest, en það hefur
farist fyrir að kynna það.“ Þau þurfi að
kynna viðkomandi stofnunum fyrir inn-
leiðingu.
Þorgerður Sigurðardóttir, svæfinga-
læknir á gjörgæslu í Fossvogi, spurði
hvort ekki væri tími til kominn að ráða
nýtt fólk í hlutastörf? Svandís sagðist
standa algjörlega með afstöðu forstjórans
og forystu spítalans varðandi kröfur til
ráðningarhlutfalls starfsmanna.
„Ég hef enga ástæðu til annars en að
treysta forystu spítalans í þeim efnum
enda er það á borði spítalans sjálfs að taka
afstöðu og ég hlutast ekki til um ákvarð-
anir um slík mál inni í neinum stofnunum
– ekki Landspítala frekar en öðrum.“
Kristján Guðmundsson hjartalæknir
spurði að lokum um lokun Hjartagáttar-
innar og hvort ráðherra hyggðist beina
því til stjórnar spítalans að endurskoða
ákvörðunina?
Svandís sagði vert að rýna allar
ákvarðanir sem teknar væru. „Ég veit að
margar spurningar hafa vaknað við þessa
ákvörðun og ég veit líka að margar af
ástæðum þess að þessi niðurstaða varð úr
voru óhjákvæmilegar.“ Þetta sé eitt af því
sem spítalinn þurfi að taka til skoðunar.
„Því við eigum að taka ábendingar land-
læknis alvarlega,“ sagði hún.