Læknablaðið - feb. 2019, Blaðsíða 50
102 LÆKNAblaðið 2019/105
L I P R I R P E N N A R
Læknablaðið hefur beðið nokkra lipra penna
í læknastétt að senda blaðinu hugleiðingar sínar
í dagsins önn.
Þegar komið var að máli við mig í lok síð-
asta árs og ég spurð hvort ég hefði hug á
að skrifa stuttan pistil til birtingar í Lækna-
blaðinu, fylgdi sú hugmynd máli að pistill-
inn gæti innihaldið ýmsar hugleiðingar
mínar um læknishlutverkið – til dæmis
um dagleg störf mín sem læknir.
Ég var komin langleiðina með slíkan
pistil og meira að segja nokkuð ánægð
með hann, þegar hið augljósa blasti við
mér: Ég er ekki læknir.
Ég er hins vegar læknanemi. Í júní
næstkomandi stend ég á tímamótum en
þá mun ég útskrifast úr læknadeild Há-
skóla Íslands. Lýkur þar með 6 ára löngu
tímabili og ég mun ekki lengur bera tit-
ilinn læknanemi, heldur læknakandídat.
Enn reyndar ekki fullgildur læknir, nota-
bene – en töluvert nær takmarkinu.
Stór tímamót hafa þann einkennilega
eiginleika að fá okkur flest til að líta yfir
farinn veg áður en haldið er á vit ókunnr-
ar framtíðar og óneitanlega reikar hugur
minn aftur í tímann þessa dagana.
Fyrsta skóladaginn minn í læknadeild
man ég vel. Svo vel að mér er það raun-
ar næstum ótrúlegt að síðan séu liðin
tæp 6 ár. Ég var tvítug og nýútskrifuð
úr Menntaskólanum, fannst ég vita þó
nokkuð margt um ýmislegt en gerði mér
þó grein fyrir því að á þessum nýja vett-
vangi sem ég hafði kosið mér, vissi ég
ekki neitt. Magnús Karl Magnússon, þá-
verandi forseti læknadeildar, bauð okkur
velkomin til námsins og ítrekaði hversu
gríðarlega margt læknar framtíðarinnar
myndu þurfa að kunna – ekki einungis
það sem læknar nútímans kunna, heldur
aukreitis allan þann hafsjó af fróðleik sem
framtíðin myndi bera í skauti sér. Hannes
Petersen, sem seinna þetta ár átti eftir að
kenna okkur bæði anatómíu og fóstur-
fræði af mikilli list, steig næstur í pontu
og tilkynnti okkur að hér eftir heyrðu
laugardagar, sunnudagar, jóla- og sumarfrí
sögunni til – við hefðum valið að helga
okkur læknisfræðinni og því fylgdu fórnir.
Við kinkuðum öll ólm kolli.
Fram liðu síðan stundir og vart þarf
að greina lesendum Læknablaðsins frá
því hversu fjölbreytt og mörg verkefni
læknanema eru á 6 ára ferli þeirra; það
þekkja þeir flestir af eigin raun. Sum
verkefnanna hafa verið flókin, önnur
einfaldari. Sum gengu vel, önnur verr. Síð-
ustu 6 ár hef ég eytt löngum eftirmiðdög-
um í að rækta bakteríur á petrídiskum. Ég
hef tekið ótal blóðprufur og klúðrað fleiri
æðaleggjum en ég kæri mig um að segja
frá. Á skurðdeildunum hélt ég dauða-
haldi í haka klukkutímunum saman, þar
til handleggurinn var orðinn að frans-
brauði og fingurnir dofnir. Ég hef tekið
á móti fjórum börnum og fjarlægt einn
eggjastokk í smásjáraðgerð, undir vökulli
handleiðslu sérfræðings. Ég hef staðfest
andlát. Ég hef leikið heilt brúðuleikhús
fyrir skelkað barn meðan læknir saumaði
saman á því skurð á höku, aðra skurði hef
ég síðan fengið að sauma sjálf. Ég hef sett
þrjár axlir í lið og rétt ótalmörg úlnliðs-
brot. Ég hef horft í augu dauðvona manns
og fundist ég gjörsamlega hjálparlaus –
þar til hann hvíslaði lágt, með lokuð aug-
un: „Þakka þér fyrir að sitja hjá mér“. Ég
hef framkvæmt hjartahnoð í endurlífgun
og spurt mig þegar ég kom heim: Var það
mér að kenna að hann dó? Hefði hann lif-
að hefði ég hnoðað öðruvísi? Betur, hraðar
eða hægar, dýpra? Nei, líklega hefði hann
ekki lifað. Engu að síður lá ég andvaka þá
nótt.
Ég hef skyggnst inn í líkama látins
manns, í leit að dánarorsök. Hún fannst
ekki. Ég hef setið kvöldlangt á rúmstokki
manns sem nýlega missti konuna sína og
rætt við hann skáldsögur Halldórs Lax-
ness og ljóð Hannesar Péturssonar.
Einhverjum kann líklega að þykja sum
þessara verka lítilvægari en önnur – vissu-
lega læknaði ég ekki hinn dauðvona mann
með því að sitja hjá honum stutta stund,
hann lést tveimur dögum seinna. 19. aldar
heimspekingurinn Ralph Waldo Emer-
son vissi hins vegar betur og orti þessar
ljóðlínur: „Að vita að jafnvel einungis ein
manneskja hafi dregið léttara andann, af
því að þú lifðir. Það er að hafa tekist ætl-
unarverkið.“ Tveimur öldum seinna sagði
bandaríski læknirinn Patch Adams: „Ef þú
meðhöndlar sjúkdóm, þá ýmist vinnurðu
eða tapar. En ef þú meðhöndlar mann-
eskju, þá fullvissa ég þig um að þú vinnur,
hver sem útkoman verður.“
Þessi orð hef ég valið mér sem
leiðarljós, nú þegar vegferð minni sem
læknanema lýkur senn og við taka fyrstu
skref mín á braut læknisfræðinnar. Ég
vona að ég beri gæfu til þess að gleyma
þeim aldrei og óska bekkjarfélögum
mínum í læknisfræðinni hins sama, nú
þegar við stígum senn okkar fyrstu skref á
kandídatsárinu.
Setið á rúmstokki
dauðvona manns
– hugleiðingar
læknanema
Guðrún
Ingibjörg
Þorgeirsdóttir
læknanemi
á 6. ári við
Háskóla Íslands
gudruni112@gmail.com