Læknablaðið - feb. 2019, Blaðsíða 46
98 LÆKNAblaðið 2019/105
Valgarður Egilsson var margslunginn
maður og ég ætla hreint ekki að halda því
fram að ég hafi þekkt hann að einhverju
marki, en leiðir okkar lágu saman á sviði
krabbameinsrannsókna um nokkurra ára
skeið. Þau samskipti voru oftast fólgin í
því að horfa á ættartré og velja fjölskyldur
til rannsókna á ættgengi brjóstakrabba-
meins, og við unnum saman að því að
safna lífsýnum. En stundum – of sjaldan
– bryddaði Valgarður upp á vangaveltum
um eðli og tilurð krabbameina. Um það
hafði hann sínar hugmyndir og hafði
hugsað í þaula. Og þar fór hann ekki
troðnar slóðir, eða öllu heldur fylgdi hann
ekki því sem mest var talað um í því efni á
þessum tíma.
Í síðustu bókinni sem hann gaf út, árið
2014, og er sjálfsævisaga (auðvitað ekki
skrifuð í neinum venjulegum ævisagna-
stíl, Valgarður var aldrei venjulegur) lýsir
hann því hvernig hann komst að þeirri
eindregnu sannfæringu að orsaka krabba-
meina væri að leita í truflaðri starfsemi
hvatbera. Hann las og las og beindi sjón-
um að „orkubúskap frumnanna – sem
afgerandi þætti í lífi allra frumna“ og þar
með hvatberum. Hann tók að aðhyllast
„þá gömlu kenningu um orkubúskapinn
(að truflun í orkubúskap frumunnar væri
þáttur í illkynja eðli krabbameins)“. Hér
vísar Valgarður til kenninga og rannsókna
Otto Warburgs næstum hálfri öld fyrr,
sem sýndu að krabbameinsfrumur beina
orkuskiptum framhjá hvatberum jafn-
vel þótt nægilegt súrefni sé til staðar. Á
þessum tíma var eiginlega enginn að pæla
í þessu, Valgarður fann engan. Otto War-
burg hélt áfram að birta um þetta greinar
meðan hann lifði en hann var í raun löngu
gleymdur.
Eftir að krabbameinsfræðin höfðu
gengið út á æxlisgen og bæligen og
brenglaðan boðflutning seinustu áratugi
20. aldar rönkuðu menn allt í einu við sér
og áttuðu sig á því að efnaskiptin hefðu
ekki verið með í sögunni. Og nú voru
greinar Otto Warburgs dregnar fram aftur
og allir vita um „Warburg-áhrifin“. Í ljós
kom að krabbameinsfrumur þurfa á starf-
semi hvatbera að halda, ekki til orkufram-
leiðslu, heldur til þess að sjá þeim fyrir
afurðum efnaskipta til efnasmíði í vaxandi
frumum. Þessi skyndilega aukni áhugi
mælist auðvitað í birtum greinum um
hvatbera og krabbamein. Þær voru lengi
100-200 á ári, stökkið kom árið 2002 í fleiri
en 500 og 2017 voru þær tæplega 2000.
Valgarður vann að rannsóknum sínum
kauplaust í London í 7 ár og síðan í fáein
ár eftir að hann fluttist heim til Íslands og
notaði gersveppi sem tilraunalíkan. Um
þessar rannsóknir birti Valgarður 7 grein-
ar á árunum 1975-1987. Þær vöktu ekki
mikla athygli á sínum tíma en einhverjir
tóku eftir þeim þegar áhuginn hafði vakn-
að á hvatberum og krabbameini. Þannig
tók 32 ár að fá tilvitnun í fyrstu greinina.
Einn af nemendum Valgarðs á rann-
sóknastofu í frumulíffræði var Vilmundur
Guðnason, nú prófessor og forstöðu-
læknir Hjartaverndar. Þeir rannsökuðu
hexókínasa í brjóstakrabbameinsæxlum
og fundu að ein gerð hans, hexokínasi II í
hvatberum, var meira tjáð í brjóstakrabba-
meinsæxlum en eðlilegum vef. Ekki var
mikill hljómgrunnur fyrir þessar niður-
stöður þá, en í tveimur nýlegum greinum
er vitnað í þessa grein og nú er talið að
hexókínasi II gegni lykilhlutverki í að ræsa
Warburg-áhrifin. Valgarður steig síðan
örlítið hliðarspor, áður en hann gafst upp
fyrir tískunni og sneri sér að erfðafræði
krabbameina. Í samvinnu við Snorra Þor-
geirsson við National Cancer Institute
í Bandaríkjunum notaði hann tvívíðan
rafdrátt til að skoða hvort munur væri á
próteinum í brjóstakrabbameinsvef og
eðlilegum brjóstvef. Vissulega sást mun-
ur, en með úrvinnslutækni þess tíma var
engin leið að átta sig á hvaða merkingu
niðurstöðurnar höfðu. Nú heita svona
rannsóknir proteomics, beitt er massagrein-
ingu ásamt lífupplýsingatækni og flókinni
stærðfræðilegri úrvinnslu.
Í minni sveit, sem Valgarður tengdist
reyndar því að Egill bróðir hans átti þar
bústað, sat um aldamótin þarsíðustu
sjálfmenntaður fræðimaður, Brynjúlfur
Jónsson frá Minna-Núpi, og hugsaði um
tilveruna. Þessar hugsanir setti hann síðan
á blað í bókinni „Saga hugsunar minnar”.
Brynjúlfur komst með hugsun sinni að því
að tilveran öll væri samsett af ofursmá-
um eindum, það er atómum, sem hann
hafði aldrei lesið neitt um. Valgarður var
andlega skyldur Brynjúlfi, þeir eru ekki
margir sem komast svona nálægt stórum
sannleika með skýrri hugsun einni saman.
Valgarður naut þess umfram Brynjúlf að
geta byggt á því sem hann hafði lesið og
prófað hugmyndir sínar með tilraunum,
en strandaði svo á því að tækni og tíðar-
andi voru ekki komin jafn langt og hann.
Helga M. Ögmundsdóttir
Valgarður Egilsson, hvatberar og krabbamein
M I N N I N G A R O R Ð