Fréttablaðið - 12.03.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 2 . M A R S 2 0 2 0
NÝTT
– Hagkvæm matarkaup
– Heitar og ilmandi
– Ljúffengar og næringarríkar
– Án allra rotvarnarefna
VIÐSKIPTI Ásgeir Jónsson seðla-
bankastjóri telur að viðskipta-
bankarnir þrír ættu að endurskoða
áform sín um að greiða út arð í ljósi
versnandi efnahagshorfa vegna
útbreiðslu kórónaveirunnar.
Boðaðar arðgreiðslur bankanna,
sem hluthafar munu greiða atkvæði
um á aðalfundum þeirra síðar í
þessum mánuði, nema samanlagt
tæplega 24 milljörðum króna. Tveir
bankanna, Íslandsbanki og Lands-
bankinn, eru í eigu ríkissjóðs.
„Það má spyrja sig hvort það sé
við hæfi að bankarnir greiði út arð
eins og staðan er núna,“ segir Ásgeir
í viðtali við Markaðinn. Vísar hann
þar til þess að bankarnir þurfi að
hafa borð fyrir báru til að mæta
afskriftum á útlánasöfnum sínum í
yfirstandandi niðursveiflu og svig-
rúm til að takast á við tímabundna
lausafjár- og greiðslufjárerfiðleika
fyrirtækja, einkum í ferðaþjónustu.
Aðspurður segir hann að allir
bankarnir ættu að endurskoða til-
lögur sínar um arðgreiðslur. „Já,
mér finnst það í ljósi aðstæðna. Þeir
þurfa á þessum krónum að halda
frekar en hluthafar,“ útskýrir Ásgeir.
Tillaga stjórnar Arion banka,
sem er skráður á markað og í einka-
eigu, gerir ráð fyrir því að samtals
tíu milljarðar króna verði greiddir
í arð til hluthafa. Þá hefur Lands-
bankinn boðað arðgreiðslu upp á
9,5 milljarða og Íslandsbanki hyggst
greiða 4,2 milljarða í arð.
Þrátt fyrir væntanlegar arð-
greiðslur, sem stjórnir bankanna
gerðu tillögur um í síðasta mánuði,
munu eiginfjárhlutföll bankanna
eftir sem áður vera vel umfram þær
eiginfjárkröfur sem gerðar eru til
þeirra.
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands flýtti vaxtaákvörðun sinni
um eina viku og ákvað í gær að
lækka vexti um hálft prósentustig.
Um leið var meðaltalsbindiskylda
bankanna lækkuð úr einu prósenti
í núll prósent til að rýmka lausafjár-
stöðu þeirra. Fjárfestar brugðust
vel við ákvörðun nefndarinnar og
hækkaði Úrvalsvísitalan um 2,5
prósent og ávöxtunarkrafa óverð-
tryggðra ríkisskuldabréfa lækkaði
um allt að 20 punkta.
Birgir Haraldsson, sérfræðingur
hjá Akta sjóðum, segir Seðla-
bankann hafa tekið góð skref með
aðgerðum sínum og skilaboðum í
gær. Fastlega megi búast við frekari
vaxtalækkunum. „Óvissan hefði
orðið of mikil ef bankinn hefði beðið
í eina viku í viðbót.“ – hae / sjá síðu 12
Endurskoði arðgreiðsluáform
Viðskiptabankarnir ættu að endurskoða boðaðar arðgreiðslur vegna versnandi efnahagshorfa, að mati
seðlabankastjóra. Þeir þurfi á þessum krónum að halda. Væntanlegar arðgreiðslur nema 24 milljörðum.
Landsbankinn 9,5 milljarðar
Arion banki 10 milljarðar
Íslandsbanki 4,2 milljarðar
✿ Arðgreiðslutillögur
COVID -19 Lokað er fyrir matar-
úthlutun hjá Mæðrastyrksnefnd
vegna COVID-19. „Hér er mikil
nálægð milli fólks og sjálf boða-
liðar okkar eru flestallir fullorðnar
konur í áhættuhópi,“ segir Anna H.
Pétursdóttir, formaður nefndarinn-
ar. Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar Íslands,
segir ekki ljóst hvort af næstu
úthlutun verði. Víðir Reynisson
yfirlögregluþjónn segir að skoða
þurfi þann hóp sem ekki eigi fyrir
nauðsynjavörum. – bdj / sjá síðu 4
Matarúthlutun
hefur stöðvast
Anna H. Péturs-
dóttir, formaður
mæðrastyrks-
nefndar.
Erlendir ferðamenn spreyttu sig á þeirri þjóðaríþrótt Íslendinga að losa bíl úr skaf li, skammt sunnan við Geysi í gær, þar sem nokkrir þeirra sátu fastir. Vetrarfærð er nú um allt land. Holta-
vörðuheiði var lokuð í gær og víða var beðið með mokstur vegna veðurs um norðanvert landið. Það spáir vondu á Vestfjörðum, Suðausturlandi og miðhálendinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI